Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Page 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.03.2016, Page 56
SUNNUDAGUR 13. MARS 2016 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is GM 3200 GM 7700 GM 9900 Borðstofuborð „Jesse Hughes hefur verið að dreifa grafalvarlegum og ærumeiðandi ásökunum á hendur okkar fólki. Rannsókn er í gangi og við við viljum að hið rétta komi fram. Framburður allra sem fyrir liggur á þess- ari stundu staðfestir fagmennsku og hugrekki örygg- isvarðanna sem voru við störf 13. nóvember. Það er þeim að þakka að hundruðum mannslífa var bjargað.“ Þannig hljóðar yfirlýsing sem eigendur Bataclan- tónleikahússins í París sendu frá sér fyrir helgi í til- efni af orðum Jesse Hughes, söngvara hljómsveit- arinnar Eagles of Death Metal, sem var við leik í húsinu þegar fjöldamorðin voru framin. Hughes kveðst hafa komist að því fyrir tónleikana að einir sex öryggisverðir myndu ekki mæta til vinnu þetta kvöld. „Í virðingarskyni við lögreglurannsóknina sem er í gangi segi ég ekki meira en blasir ekki við að þeir höfðu ástæðu til að láta ekki sjá sig,“ sagði Hug- hes í samtali við Fox Business Network, og gaf þann- ig í skyn að öryggisverðirnir gætu hafa verið viðrið- nir ódæðið. Eagles of Death Metal á tónleikum í Brussel í síðasta mánuði. AFP Fagmennska og hugrekki Eigendur Bataclan segja öryggisverði hafa unnið þrekvirki 13. nóvember sl. en söngvari Eagles of Death Metal lét í annað skína í viðtali fyrir skemmstu. Frá því var greint í Morgun- blaðinu 13. mars 1976 að þjófn- aður hefði verið framinn á rit- stjórn blaðsins tveimur dögum áður. Var kventaska tekin en í henni voru tvær bankabækur, ávísanahefti og ýmsir persónu- legir munir. Við rannsókn lög- reglu kom í ljós að þjófurinn hafði tekið kr. 32.000 út úr ann- arri bókinni í Verzlunarbank- anum. Bankafólkið gat gefið góða lýs- ingu á manninum og mundu ýmsir starfsmenn Morgunblaðs- ins eftir manni sem hafði verið að sniglast þar og lýsingin átti við. Meðal þeirra var lögreglufrétta- ritari blaðsins og slóst hann í för með lögreglu við leitina að manninum um kvöldið. Meðal annars lá leiðin í skemmtistaðinn Klúbbinn og höfðu menn ekki verið þar lengi þegar fréttaritarinn sá þjófnum bregða fyrir. Lögregla yfirheyrði manninn, sem hún kannaðist ágætlega við, og lá játning fljót- lega fyrir. Fékk starfsstúlka rit- stjórnar alla sína muni aftur og tíu þúsund krónur en afgang- inum sagðist maðurinn hafa týnt. GAMLA FRÉTTIN Fréttaritari fann þjóf Maðurinn hafði verið að sniglast á ritstjórnarskrifstofu Morgunblaðsins og stal þar kventösku. Hann fannst um kvöldið og játaði á sig glæpinn. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon ÞRÍFARAR VIKUNNAR Sviplaust andlit Emoji Ingi Þór Steinþórsson körfuboltaþjálfari Karl Wernersson athafnamaður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.