Náttúrufræðingurinn - 2014, Side 46
Náttúrufræðingurinn
46
mynd sýnir snið yfir landgrunnið
norðan Lónsdjúps byggt á túlkun
þeirra. Ástæða er til að benda á að
þykkt setlaganna við landgrunns-
brún er allt að 600 metrar.
Uppruni hryggjanna
Hryggirnir í Lónsdjúpi eru á
því svæði, sem gert er af nokkur
hundruð metra þykkum setlögum
samkvæmt segulmælingum. Þessi
setlög hafa harðnað og myndað fast
berg, enda er ytri hluti Lónsdjúps
skorinn í þau. Brattur norðaustur-
kantur djúpsins sýnir vel að um hart
berg er að ræða.
Þau öfl, sem líklegust eru til að
móta landform við núverandi skil-
yrði á 230 til 330 metra sjávardýpi,
4. mynd. Túlkun Leós Kristjánssonar og Geirfinns Jónssonar á segulmælingum á mæli-
sniði yfir landgrunnið í námunda við Lónsdjúp. Myndin sýnir storkuberg, öfugt (R) og
rétt (N) segulmagnað. Yst á landgrunninu er síðan þykk linsa úr setbergi (S). Lóðrétti
kvarðinn á sniðinu er í kílómetrum, en lárétti ásinn er 45 km langur. Set(bergs)linsan er
því allt að 600 m þykk. Lega sniðsins er sýnd á 3. mynd (rauð lína). – Interpretation of
structure of the SE Iceland margin based on magnetic surveys.2 The section shows igne-
ous rocks, normally (N), and reversely (R) magnetized. The outermost part of the margin
is made up of sedimentary rocks (S). Vertical scale in km. Length of section 45 km. The
sediment lens is thus up to 600 m thick.
3. mynd. Landgrunnið suðaustanlands. Hér er kortið af 1. mynd sett inn á sjókort af svæðinu. Myndin sýnir helstu landslagsdrætti á
svæðinu, m.a. „djúpin” og „grunnin”. Rauð lína sýnir legu sniðsins á 4. mynd. Sjókort frá Sjómælingasviði Landhelgisgæslunnar.
– The southeast Icelandic shelf, showing position of Lónsdjúp as one of a series of shelf troughs. Red line indicates position of section
illustrated in Fig. 4. Nautical map from Icelandic Coast Guard Hydrographic Department.
-0,200
-0,600
-1,000
-1,400
-1,800
-2,200
-2,600
-3,000