Morgunblaðið - 27.07.2016, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Óvenjulegasti baðstaður á Íslandi,
náttúrulaugin við norðausturjaðar
Holuhrauns, sem mikilla vinsælda
naut á síðasta ári er horfinn. Laug
þessi myndaðist í kjölfar eldgossins
þar sem stóð frá í
ágúst 2014 fram í
febrúar í fyrra.
Eftir það rann
vatn undan
hrauninu og kom
fram 35-40 gráðu
heitt og myndað-
ist þar þá frábær
baðpottur sem
spurðist vel út
svo fólk flykktist
þangað. Nú hefur
hraunið kólnað mikið og vatns-
rennslið við hraunjaðarinn, sem er
talsvert minna en áður, var í fyrra-
dag komið niður í 16 gráðu hita, að
sögn Sigurðar Erlingssonar land-
varðar sem mældi hitastigið.
Jökulsá yfir baðstaðinn
Í atburðarásinni við Holuhraun nú
hefur það einnig gerst að nú flæmist
ein hvítra kvísla Jökulsár á Fjöllum
að Holuhrauni og flæðir yfir bað-
staðinn sem var. „Farvegur Jökulsár
er að breytast. Í vetur féll áin að
jaðri hraunsins að suðaustan og
flæmdist svo frá því. Núna rennur
hún niður með öllum austurjaðri
þess og finnur sinn gamla farveg aft-
ur. Þetta eru merkilegar breytingar
sem mjög áhugavert hefur verið að
fylgjast með,“ segir Sigurður sem er
landvörður á Norðursvæði Vatna-
jökulsþjóðgarðs.
Hraunið kólnar
Ökumönnum á öllum þokkalega
búnum jeppum er fært að Holu-
hrauni þangað sem eru um 115 kíló-
metrar frá Hringveginum á Mý-
vatnsöræfum. Landverðir sem hafa
aðstöðu í Drekagili við Öskju, sem er
um 10 kílómetra frá Holuhrauni,
standa vaktina við jaðarinn þess og
eru með skipulagðar gönguferðir á
hverjum morgni klukkan 10 og lýsa
þeir þá staðháttum, náttúrufari og
fleiri áhugaverðu.
„Þótt yfirborð hraunsins sé farið
að kólna er á sumum stöðum ekki
nema einn metri niður á 100 gráðu
heitt hraun. Það kraumar því ágæt-
lega í þessu ennþá ,“ segir Sigurður
Erlingsson.
Ljósm/Sigurður Erlingsson
Elfur Jökulsá á Fjöllum rásar milli farvega og er nú þar sem fólk baðaði sig í fyrra. Myndin var tekin sl. mánudag.
Vatnið er orðið kalt og
baðstaðurinn horfinn
Jökulsá á Fjöllum í nýjum farvegi fellur að Holuhrauni
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Svaml Heitir lækir runnu undan heitu hrauninu eftir eldgosið svo úr varð
frábær náttúrulaug sem nú er horfin. Myndin var tekin fyrir ári.
Sigurður
Erlingsson
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Þetta er loksins að fæðast. Loka-
úttekt er í næstu viku og ef allt geng-
ur að óskum opnum við nokkrum
dögum síðar,“ segir Hörður Jóhann-
esson, einn eigenda nýs kaffihúss í
Reykjavík, Kaffi Laugalækjar, sem
mun opna í húsi sem áður hýsti Verð-
listann í Laugarneshverfi.
Hörður segir að stefnt sé að því að
opna kaffihúsið á tímabilinu 10-15.
ágúst. Að sögn hans verður meðal
annars myndlistargallerí á kaffihús-
inu auk þess sem boðið verður upp á
mat. Upphaflega var áætlað að opna
um miðjan júní en að sögn Harðar
má rekja tafirnar til þess að stjórn-
sýslan hafi gengið hægt. „Á móti má
benda á að við erum að gera þetta í
fyrsta skipti og kunnum ekki alla
verkferla upp á tíu. Við erum að
reyna að vanda okkur eins og við get-
um, en ég get vissulega viðurkennt
að stjórnsýslan er að gera mann grá-
hærðan,“ segir hann. Í húsinu verður
einnig starfrækt farfuglaheimilið
Laugalækur Hostel sem að sögn
Harðar mun rúma allt að 50 manns.
„40 verða á hæðinni fyrir ofan kaffi-
húsið í kojum með sameiginlegu eld-
húsi og stofu...Við hliðina erum við
svo með 130 fermetra íbúð og þar er
hugmyndin að vera með gistingu fyr-
ir 10 manns í sex herbergjum,“ segir
Hörður.
Verðlistinn fluttur
Í húsinu sem mun rúma kaffihúsið
og gistinguna var verslunin Verðlist-
inn með starfsemi frá 1964 þar til á
þessu ári. Um hríð stóð til að Verð-
listinn myndi hætta starfsemi en
hann hefur verið rekinn af Erlu
Wiegelund um áratuga skeið. Dóttir
hennar, Þorbjörg Kristjánsdóttir,
ákvað þess í stað að taka við keflinu
og er Verðlistinn, sem selur föt fyrir
heldri konur, nú á Suðurlandsbraut.
„Verslunin var opnuð 1964 en frá
1961 höfðu foreldrar mínir selt föt
um allt land og við Pétur bróðir fór-
um með,“ segir Þorbjörg. „Þetta hef-
ur gengið svo ótrúlega vel eftir að við
fluttum verslunina. Flestar verslanir
hófu útsölu í júní en við erum ekki
byrjuð með útsölu. Við trúum þessu
varla, dag eftir dag, þegar við sláum
út úr kassanum,“ segir Þorbjörg.
Kaffi Laugalæk-
ur brátt opnað
Verðlistinn lifir góðu lífi á Suður-
landsbraut Stjórnsýslan hægði á
Ljósmynd/Hörður Jóhannesson
Kaffi Laugalækur Stefnt er að opnun nýs kaffihúss í Laugarneshverfi í
ágúst. Verðlistinn sem áður var í húsinu í rúm 50 ár er nú á öðrum stað.
Mennta- og
menningar-
málaráðuneytið
og ÍSÍ munu á
fimmtudaginn
kynna og undir-
rita tímamóta-
samning til
næstu þriggja
ára um stór-
aukið fjár-
framlag ríkisins
til afreksíþrótta
á Íslandi.
Nú fær sambandið um 140
milljónir króna í framlög frá rík-
inu á ári hverju og segir í til-
kynningunni að um sé að ræða
byltingu fyrir afreksíþróttir á Ís-
landi.
Við athöfnina verður landsliðs-
fólk, þjálfarar og forsvarsfólk
sérsambanda ÍSÍ.
vidar@mbl.is
Tilkynnt um stór-
aukin framlög til ÍSÍ
Íþróttir Tilkynnt
verður um stór-
aukin framlög.
Veiði á makríl hefur glæðst mikið
það sem af er júlí en samkvæmt
bráðabirgðatölum Fiskistofu hef-
ur verið landað um 20 þúsund
tonnum það sem af er mán-
uðinum, en rúm 2.200 tonn veidd-
ust í júní og 223 tonn í maí. Ís-
lensk skip mega veiða rúm 166
þúsund tonn af makríl á þessu ári
en tæpum 152 þúsund tonnum
var úthlutað á skip en 14.500
tonn fluttu einstök skip af
óveiddum heimildum síðasta árs.
Mikil veiði hefur verið við Vest-
mannaeyjar og kom Beitir NK til
Neskaupstaðar í síðustu viku með
840 tonn sem fengust að mestu
fyrir vestan eyjarnar, samkæmt
upplýsingum frá Síldarvinnslunni.
Í Vestmanneyjum hefur miklu
verið landað af makríl síðari
hluta júlímánaðar, Heimaey VE
landaði um 160 tonnum í upphafi
mánaðar en kom í land með 525
tonn í lok mánaðar samkvæmt
tölum Fiskistofu. benedikt@mbl.is
Makrílvertíð hafin
Mikil veiði við Vestmannaeyjar
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
sími 571 5464
Nýjar haustvörur
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R