Morgunblaðið - 27.07.2016, Síða 30
Háifoss er austarlega við Línuveginn. Hann er 122 metra
hár, tilkomumikill og telst vera annar hæsti foss landsins.
röngunni“ er um hálftíma gangur.
Efst í dalnum er svo komið að vold-
ugum landamærum; hliði sem er
gátt inn á Hrunamannaafrétt.
En nú höldum við austur um
Línuveginn, yfir ása, hryggi og nið-
ur í gil þar sem lækjarsprænur
falla fram. Yfir þær er farið á vaði
og þá gildir að halda sig á grynn-
ingum og „vera á brotinu“ eins og
vanir fjallamenn komast að orði. –
Og fagurt er á fjöllum, sagði Halla
við Eyvind forðum. Orðin eru sígild
þótt afréttarlandið hér sé hrjóstr-
ugt. Örnefnið Fjallmannaklettur
segir sína sögu. Skammt frá kletti
þeim er Helgaskáli, hús smalanna í
Hrunamannahreppi, sem er nefnt
eftir föllnum fjallkóngi þeirra.
Stóra-Laxá er hér skammt austan,
vatnsmikil og enginn jeppamaður
ætti þar að fara yfir á vaðinu nema
á traustum bíl og aldrei einn. Frá
Stóru-Laxá er ekið um það bil tíu
kílómetra til austurs að Fossá sem
einnig er farið yfir á vaði. Örstutt
neðan þess er Háifoss, annar hæsti
foss landsins, sem er 122 metra
hár. Hér fellur Háifoss fram í miklu
gili og nokkru innar er annar foss,
Granni, sem er þó talsvert lægri og
vatnsminni. Skammt fyrir austan
fossana tvo, sem eru í mynni Þjórs-
árdals, erum við svo komin í Hóla-
skóg og á Hafið við Þjórsá og þá er
Línuvegurinn að baki.
Ekki fjölfarin leið
Að jafnaði er Línuvegurinn hefl-
aður einu sinni á sumri og dyttað
að öðru eftir atvikum. Leiðin er
greið en seinfær, lítið kynnt og því
ekki fjölfarin. Slíkt er umhugsunar-
efni þegar talað er um nauðsyn
þess að fjölga leiðum og stöðum
sem til dæmis erlendir ferðamenn
fara og heimsækja til að jafna um-
hverfisálag. Á ferðum blaðamanns
um þessa löngu leið á dögunum
vakti því nokkra eftirtekt að mæta
mótorhjólamanni, jeppa og göngu-
manni – aðeins einum af hverju.
Meira var það nú ekki og það á frá-
bærum degi til ferðalaga um há-
sumar.
Á Brúarhlöðum er tenging milli sveita, en Línuvegurinn er
skorinn í sundur af Hvítá. Því þarf fólk að leggja lykkju á leið.
Frá austurbakka Hvítár er mjög skemmtilegt sjónarhorn að
Gullfossi, en fáir þekkja eða hafa komið að fossinum hér.
Við Tjaldafell norðan við Skaldbreiður eru skálar sem eigendur nýta sér meðal annars vegna vetrarferða. Fjallamannaklettur er örnefni með kuldalegum hljóm, en það segir þó allt.
Helgaskáli á Hrunamannaafrétti sem er skammt frá vaðinu á Línuveg-
inum yfir Stóru-Laxá er nefndur eftir föllnum fjallkóngi sveitarinnar.
Biskupsbrekka á Uxahryggja-
leið. Skjaldbreiður eru hér í baksýn.
Hlöðufell er tilkomumikil móbergsstapi á hásléttunni upp af
Laugardalnum í Bláskógbyggð og líkist Herðubreið um margt.
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016
Njóttu hálendisins
Frá Heimaey á heimsenda er ný
heimildarkvikmynd um Pál Stein-
grímsson kvikmyndagerðarmann.
Hún var forsýnd í Sagnheimum,
byggðasafni Vestmannaeyja, á af-
mælisdegi Páls síðastliðinn mánu-
dag. Í Sagnheimum er Pálsstofa þar
sem geymdir eru munir sem tengj-
ast ferli Páls, m.a. fjöldi viðurkenn-
inga sem hann hefur hlotið.
Undirtitill myndarinnar er Ferils-
hlaup Páls Steingrímssonar. Þar er
stiklað á stóru í fjölmörgum ævin-
týrum þessa Eyjapeyja sem kominn
er í hóp víðförlustu Íslendinga.
Ævintýraþráin vaknaði snemma og
braust út með ýmsu móti á æskuár-
unum. Í myndinni er m.a. sagt frá
svaðilför Páls og æskufélaga hans á
heimasmíðuðum kajökum upp undir
Landeyjasand.
Páll lauk kennaranámi og fór til
Kanada. Þar leituðu ævintýrin hann
uppi. Páll stundaði myndlistarnám
og lagði hann stund á myndlist auk
þess að starfa sem myndlistar- og
náttúrufræðikennari. Páll var bjarg-
veiðimaður á meðan sú iðja stóð með
mestum blóma í Eyjum. Þeim kafla
eru gerð góð skil í myndinni.
Um fertugt nam Páll kvikmynda-
gerð. Hann hefur verið ákaflega öt-
ull síðan við gerð kvikmynda, eink-
um heimildarmynda. Þær eru nú
orðnar um 70 talsins og hafa margar
verið sýndar víða um heim.
Páll Magnússon hafði umsjón með
gerð myndarinnar og tók viðtöl við
nafna sinn. Friðþjófur Helgason
annaðist kvikmyndatöku og Ólafur
Ragnar Halldórsson sá um mynd-
gerðina. gudni@mbl.is
Ævintýraferill Eyjapeyjans
Heimildarkvikmynd um Pál Steingrímsson forsýnd