Morgunblaðið - 27.07.2016, Page 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016
Eos
Skeifunni 8 | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Dvergarnir sjö
Kakó / Kaffikrús verð 2.790,- stk.
Morgunverðarskál verð 3.490,- stk.
Strumparnir
Diskar Ø19 cm 6 í pk. verð 7.590,-
Dvergarnir sjö
Kökustandur
verð 6.990,-
Skemmtilegt leirtau frá EGAN á Ítalíu
Dvergarnir sjö
Diskar Ø19 cm 7 stk í pakka verð 9.490,-
Strumparnir
Kakó / Kaffikrús verð 2.590,- stk.
Morgunverðarskál verð 2.590,- stk.
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Ógnaröld er hið nýja eðlilega ástand í
bæði Þýskalandi og Frakklandi, ef
marka má fjölmiðla og álitsgjafa
þeirra. Franski forsætisráðherrann
Manuel Valls sagði í fyrradag, að
landsmenn yrðu að búa lengi við
þetta ástand; ógnina af hryðjuverk-
um, því landið ætti í stríði við hin
myrku öfl. Hafa Frakkar upplifað sjö
hryðjuverkaárásir frá í janúar 2014.
Og á aðeins sjö dögum í liðinni viku
urðu Þjóðverjar fyrir fjórum blóð-
ugum morðárásum á óbreytta borg-
ara. Talið er að þær eigi eftir að leiða
til varanlegra breytinga í landinu.
Bæði í Þýskalandi og í Frakklandi
er brostin sú samstaða sem áður ein-
kenndi viðbrögð við hryðjuverkum
og ofbeldisverkum sem meðal annars
þykja tengd innflytjendamálum. Í
stað eindreginnar samheldni gagn-
vart ógninni deila franskir stjórn-
málaleiðtogar og flokkar nú hart í
framhaldi af hryðjuverkinu í Nice að
kvöldi þjóðhátíðardagsins. Ásakanir
fljúga á alla kanta en harðast hefur
verið sótt að innanríkisráðherranum
Bernard Cazeneuve. Er hann m.a.
sakaður um tilraunir til að ljúga til
um öryggisviðbúnað í borginni.
Hægrimenn kenna Cazeneuve um
skort á öryggisgæslu í tengslum við
hátíðarhöld í Nice 14. júlí. Blossuðu
deilurnar upp eftir að Sandra Bertin,
yfirmaður fjarskiptadeildar lögregl-
unnar í borginni, skýrði frá því að
lagt hafi verið að henni að breyta
skýrslu sinni um öryggisgæslu að
kvöldi þjóðhátíðardagsins. Stjórnaði
hún eftirliti með öryggismyndavélum
þetta kvöld, er stórum flutningabíl
var ekið á fólk sem safnast hafði sam-
an á göngugötunni meðfram ensku
ströndinni.
Bertin segir ráðuneyti Cazeneuve
hafa lagt fyrir sig samantekt um
staðsetningu sveita borgarlögregl-
unnar, um öryggistálma og viðveru
almennu lögreglunnar. Þess hafi ver-
ið krafist að hún breytti skýrslu
sinni. „Ég svaraði því til að ég myndi
ekki setja í skýrsluna það sem ég
ekki sá,“ sagði hún. Og bætti því við,
að hafi lögreglan verið þar sem ráðu-
neytið segði hafi það ekki sést á upp-
tökum öryggismyndavéla. Yfirlýs-
ingar Bertin voru eins og olía á eld
deilna um ráðstafanir í Nice. Margir
hafa gagnrýnt viðbúnaðinn og sagt
hann hafa verið ónógan í ljósi hryðju-
verkahættunnar.
Bernard Cazeneuve segir ásakanir
lögreglukonunnar fyrir neðan virð-
ingu hennar og hefur hótað henni
málsókn. Sjálfur á hann yfir höfði sér
málsókn af hálfu fjölskyldna fórnar-
lamba árásarinnar blóðugu í Nice.
Auk þeirra 84 sem týndu lífi slasaðist
331, margir þeirra lífshættulega. Var
þetta þriðja stórtæka hryðjuverkið í
Frakklandi á aðeins hálfu öðru ári.
Valls forsætisráðherra hefur komið
Cazeneuve til varnar í fjölmiðlum.
Sagði hann þræturnar „klárlega póli-
tískar og markmiðið væri að grafa
undan ríkisstjórninni“. Fyrrverandi
borgarstjóri í Nice, Christian Est-
rosi, segir málið snúast um að ríkis-
stjórnin hafi logið til um fjölda lög-
reglu- og hermanna við öryggisgæslu
í borginni þjóðhátíðardagskvöldið.
Beðin um að eyða gögnum
Í skýrslu ríkislögreglunnar um
blóðbaðið í Nice segir að Mohamed
Lahouaiej Bouhlel hafi keyrt vörubíl
sinn upp á göngugötuna til að komast
hjá lögreglutálma. Bertin segir enga
lögreglumenn hafa verið þar á upp-
tökum öryggismyndavéla. Kveðst
hún hafa sætt miklu einelti af hálfu
innanríkisráðuneytisins vegna stað-
hæfinga sinna. Bertin er mikill stuðn-
ingsmaður héraðsstjórans Estrosi úr
Lýðveldisflokknum og hefur harð-
lega gagnrýnt ríkisstjórn sósíalista á
samfélagsvefjum, að sögn blaðsins
Le Parisien. Í þrætunum um aðgerð-
ir eða aðgerðaleysi í Nice hefur það
ekki bætt úr skák fyrir stjórnvöld, að
yfirvöld reyndust hafa krafist þess,
að upptökum úr öryggismyndavélum
þjóðhátíðardagskvöldið yrði eytt.
Borgaryfirvöld sögðu að með því yrði
„sönnunargögnum eytt“ en saksókn-
arar, sem komnir voru með eintak af
upptökunum, gáfu þá skýringu, að
koma í veg fyrir að „hryllileg“ mynd-
skeið lækju til fjölmiðla. Ráðamenn í
Nice segja þetta í fyrsta sinn í sög-
unni sem þeir séu beðnir um að eyða
sönnunargögnum af glæpavettvangi
og það sé andstætt lögum.
Í viðtali á þjóðhátíðardegi Frakka,
14. júlí, boðaði Francois Hollande
forseti að neyðarástandslögin myndu
renna sitt skeið 26. júlí. Neyðar-
ástandið yrði ekki framlengt. Það
breyttist kirfilega með ódæðinu í
Nice og hafa neyðarlögin nú verið
framlengd um hálft ár. Gegn stuðn-
ingi við það á þingi fengu hægrimenn
inn í lögin víðtækari heimildir en áð-
ur í þágu lögreglunnar, leyniþjónust-
unnar og öryggissveita. Heimildir
lögreglu til húsleita og að hneppa
fólk í stofufangelsi voru rýmkaðar.
Einnig voru settar þrengri skorður
fyrir samsöfnuði fólks á almannafæri
og einstakir sýslumenn fengu heim-
ildir til að setja útgöngubann og tak-
marka aðgang að vissum byggingum.
Sorfið að Merkel
Mannskæðar árásir í Þýskalandi í
síðustu viku sýna að stefna Angelu
Merkel kanslara í málefnum flótta-
manna var „glannaleg“, segir aðstoð-
arformaður Vinstriflokksins (Die
Linke). Lét Sahra Wagenknecht svo
um mælt í fyrradag en fjórar árásir
áttu sér stað í landinu næstu sjö daga
þar á undan. Gerendur í þremur
þeirra voru flóttamenn. Kallaði hún
eftir aðgerðum til að auka á öryggis-
tilfinningu landsmanna.
„Þó svo við verðum að bíða eftir
klárlegri skýringu á bakgrunni árás-
anna getum við þó sagt þetta: Atvik
undanfarinna daga sýna að viðtaka
og aðlögun mikils fjölda flóttamanna
og flökkufólks tengist verulegum
vandamálum og hefur reynst miklu
erfiðari en Merkel reyndi í fyrra-
haust að telja okkur trú um að yrði,“
segir Wagenknecht. Flokkur hennar
er þriðji stærsti flokkur Þýskalands
og stærstur flokka stjórnarandstöð-
unnar. Fulltrúar beggja enda hins
Ógnaröld hið nýja
eðlilega ástand
Blóðug ódæðisverk í Þýskalandi og Frakklandi gætu haft
miklar afleiðingar í för með sér fyrir daglegt líf almennings
Í báðum löndum er brostin samstaða sem ríkt hefur
gagnvart hryðjuverkum og mótttöku flóttamanna
AFP
Fórnarlamba minnst Fólk stendur við kerti og blóm, sem lögð voru framan við Olympia-verslunarmiðstöðina í München þar sem níu voru myrtir.
Uppljóstrun Sandra Bertin talar við blaðamenn í Nice í vikunni.