Morgunblaðið - 27.07.2016, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016
H-Berg efh | Grandatröð 12 | Hafnarfirði | S. 565 6500 | hberg@hberg.is | hberg.is
Orkupokinn
Holl
og góð
orka
Allt se
m þú
þarft
VERSLUNARMANNAHELGIN 2016
Samkvæmt grein á Wikipediu var frídagur
verslunarmanna fyrst haldinn hátíðlegur í
Reykjavík árið 1894. En að sögn Harðar Orra
Grettissonar voru Vestmannaeyingar þá búnir
að halda veglega sumarhátíð um alllangt skeið
en rekja má sögu Þjóðhátíðar í Eyjum allt aft-
ur til ársins 1874.
„Árið 1922 taka íþróttafélögin Þór og Týr
við hátíðinni sem verður fljótlega þeirra
helsta fjáröflunartæki, og skiptust félögin á að
hafa umsjón með viðburðinum. Íþróttir skip-
uðu stóran sess í dagskránni framan af en
hlutur tónlistarinnar jókst smám saman.
Fyrsta þjóðhátíðarlagið var samið árið 1933
og hefur nýtt lag verið samið á hverju ári síð-
an þá,“ útskýrir Hörður en hann situr í
Þjóðhátíðarnefnd. „Brekkusöngurinn kom svo
til sögunnar árið 1977 fyrir tilstilli Árna John-
sen.“
Samkvæmt opinberum tölum eru að jafnaði
um 15.000 gestir á Þjóðhátíð í Eyjum. Hörður
segir suma dvelja margar nætur, en aðrir
staldri stutt við. „Með Landeyjahöfn styttist
ferðalagið á milli lands og Eyja og skapaðist
sá möguleiki að verja degi á Þjóðhátíð og vera
kominn aftur heim seint um nótt. Siglir Herj-
ólfur frá Vestmannaeyjum kl. þrjú um nóttina
og svo er hægt að halda áfram með einkabíl
eða rútu áleiðis og vera kominn upp í rúm í
Reykjavík á skikkanlegum tíma.“
Eins og vera ber með svona rótgróna hátíð
hafa skapast nokkrar hefðir og hápunktar
sem gestir vilja ekki missa af. Hörður nefnir
brennuna á Fjósakletti á föstudagskvöldið og
flugeldasýninguna á miðnætti á laugardeg-
inum. Brekkusöngurinn er síðan alltaf á sín-
um stað á sunnudegi. „Fyrir heimamenn
skiptir miklu að mæta á setningu Þjóðhátíðar
klukkan 14.30 á föstudeginum og venjan að
fjölskyldan komi prúðbúin í dalinn og njóti
saman barnadagskrárinnar.“
Af stærstu stjörnunum sem von er á í ár
nefnir Hörður Quarashi, Albatross, Sverri
Bergmann, Friðrik Dór, Jón Jónsson, Agent
Fresco og Úlf Úlf. Dagskrána í heild sinni má
finna á vefsíðunni www.dalurinn.is.
Mjög sérstakt andrúmsloft þykir skapast í
Vestmannaeyjum á meðan hátíðin stendur yf-
ir. Segir Hörður að sérstaða Þjóðhátíðar felist
meðal annars í því hvað hátíðin er stór og fjöl-
breytt og eigi allir að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi og notið á eigin forsendum. Er jafn-
vel hægt að tala um nokkrar hátíðir í einni þar
sem bæði börn, unglingar og þeir sem eldri
eru geta öll skemmt sér vel,“ segir Hörður.
„Upplifunin er engu lík, gleðin innileg, jafnvel
að rómantík svífi yfir vötnum og ógleymanlegt
að heyra hvellina í flugeldasýningunni og
sönginn bergmála um Herjólfsdal.“
ai@mbl.is
Andinn er engu
líkur í Herjólfsdal
Heimamenn leggja rækt við hefðirnar á Þjóðhátíð
Morgunblaðið/GSH
Segulstál Hátíðin laðar að um 15.000 gesti ár hvert og fyllir dalinn af orku og gleði.
Kotmót Hvítasunnukirkjunnar á
sér svo langa hefð að þeir sem voru
börn þegar fyrsta mótið var haldið
eru sennilega í dag orðnir langafar
og -ömmur. „Þetta byrjaði árið 1949
og höldum við því Kotmótið í 67.
skiptið í ár. Má segja að við séum
að komast á ellilífeyrisaldurinn. Við
berum hinsvegar aldurinn vel og
mótið hentar öllum aldurshópum,“
segir Aron Hinriksson, for-
stöðumaður Hvítasunnukirkjunnar
Fíladelfíu.
Að vanda er Kotmótið (www.kot-
mot.is) haldið í Kirkjulækjarkoti í
Fljótshlíð en þar hefur verið byggð
upp góð aðstaða með 3.200 fer-
metra byggingu, tveimur stórum
samkomusölum og veitingasölu. Þá
er svefnskálapláss fyrir 120 manns
auk góðrar aðstöðu á tjaldstæði þar
sem nokkur hundruð manns gista.
Kotmótið er kristileg samkoma
en Aron leggur á það áherslu að all-
ir séu velkomnir. „Mótið er opið öll-
um og kostar ekkert inn og fáum
við fjölda gesta sem eru ekki endi-
lega hluti af Hvítasunnukirkjunni
en sækja í þetta góða og fjöl-
skylduvæna andrúmsloft sem skap-
ast,“ segir hann.
Dagskráin hefst á fimmtudags-
kvöldinu með grillveislu. „Þessi
stóra ókeypis grillveisla er
skemmtilegt upphaf á Kotmótinu
og hjálpar líka til að hvetja fólk til
að mæta snemma,“ upplýsir Aron.
Von er á tveimur erlendum gest-
um sem munu setja svip sinn á Kot-
mótið. Frá Bandaríkjunum kemur
Maria Durso sem rekur, ásamt
manni sínum, kirkjuna Christ Ta-
bernacle Church í New York. Þá
kemur sænski söngvarinn Samuel
Ljungblahd einnig á Kotmótið í ár.
„Hann verður með flotta tónleika á
sunnudagskvöldinu en óhætt er að
kalla Samuel einn allra besta gosp-
elsöngvara Evrópu. Söng hann
meðal annars í konunglega sænska
brúðkaupinu á dögunum og er gríð-
arlega skemmtilegur og flottur
söngvari,“ segir Aron. ai@mbl.is
Félagar Leikja- og þrautadagskrá
er í boði fyrir unga fólkið.
Allir velkomnir í
Kirkjulækjarkot
Von á góðum erlendum gestum á Kotmót
Það verður ekki af Ísfirðingum tekið að þeir
kunna að skemmta sér. Sést þetta vel á ár-
legu Evrópumeistaramóti í mýrarbolta sem
haldið er hverja verslunarmannahelgi og fer
núna fram í fjórtánda sinn.
Thelma Rut Jóhannsdóttir er umsjón-
armaður hátíðarinnar og ber því formlega
titilinn „drullusokkur“. Það er vel við hæfi að
Thelmu hafi verið fengið
umsjónarhlutverkið en það
var faðir hennar, Jóhann
Bæring Gunnarsson, sem
efndi til fyrsta mýr-
arboltamótsins í félagi við
vin sinn, Jón Pál Hreins-
son, sem nú er bæjarstjóri í
Bolungarvík. „Þeir voru
nokkrir félagarnir sem
vildu finna upp á einhverju
sniðugu til að gera á Ísa-
firði um verslunarmanna-
helgina. Höfðu þeir haft spurnir af mýr-
arboltamóti í Finnlandi og gerðu tveir þeirra
sér sérstaka ferð þangað til að sjá hvernig
heimsmeistaramótið færi fram. Reyndist
upplifunin svo skemmtileg að úr varð að
flytja mýrarboltann til Ísafjarðar,“ segir
Thelma.
Liðin koma víða að og eru mörg af litríkari
sortinni. „Partur af upplifuninni er að heim-
sækja „partítjöldin“ sem sum liðin setja upp.
Frægasta mýrarboltaliðið hefur vakið mikla
athygli bæði með nafninu Píkubanar og með
uppátækjum í keppninni, en þeir verða í leik-
banni í ár. Önnur lið ætla að taka við kefl-
inu af Píkubönum,“ segir Thelma en margir
keppendur klæðast skondnum búningum á
meðan þeir glíma við boltann og leðjuna.
Glímt og gusast
Mýrarbolti er á margan hátt frábrugðinn
venjulegri knattspyrnu. Keppt er í mold-
arsvaði og tekur það mikið á. „Reynslan
hefur sýnt að þeir sem þykja flinkir í fót-
bolta vinna ekki endilega mýrarboltamótið.
Lykillinn að sigri felst meðal annars í því
að hafa nógu marga skiptimenn og að hafa
nóg að drekka,“ útskýrir Thelma.
Tæklingar eru leyfðar og gott ef bolta-
leikurinn minnir ekki stundum á glímu. „En
ef brotið er of harkalega á öðrum leikmanni
má vænta þess að þurfa að leika með haus-
poka í eina mínútu. Ef síðan andstæðing-
urinn er meiddur, óvart eða viljandi, fær
leikmaður bleika spjaldið og þarf að kyssa á
bágtið. Þá getur það gerst, ef gríðarlegur
rígur er á milli liða, að dómarinn fyr-
irskipar skítkast, en þá kasta liðin drullu
hvort í annað í hálfa mínútu.“
Margt fleira verður í boði á Ísafirði og
nágrenni um helgina. Nefnir Thelma
skemmtilegar gönguferðir og sand-
kastalakeppni. Þá verða haldnir tónleikar
og böll á kvöldin og lýkur hátíðinni með
brennu, verðlaunaafhendingu og miklu loka-
hófi. Aðgangur að svæðinu er ókeypis en
mýrarboltaliðin greiða hóflegt mótsgjald.
ai@mbl.is
Litríkur mýrarbolti
Íþrótt sem reynir á leikmenn og kætir áhorfendur
Átök Leðjuvöllurinn er krefjandi og mikið um tilþrif hjá móðum leikmönnunum.
Morgunblaðið/Eva Björk
Thelma Rut
Jóhannsdóttir