Morgunblaðið - 06.10.2016, Síða 4

Morgunblaðið - 06.10.2016, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2016 BARNAGÆSLA VERÐ1.250,-fyrir barniðSystkynaafsláttur25% Barnapö fyrir k krakk *3 ára og el Börn geta dvalið í allt a ssun áta a* dri. ð 2 klst. í sen www.smarativoli.is / Sími 534 1900 / Smáralind SKEMMTUN FYRIR ALLA! Í fyrradag höfðu 428 einstaklingar kosið utan kjörfundar vegna al- þingiskosninganna hjá sýslumann- inum á höfuðborgarsvæðinu. Bergþóra Sigmundsdóttir, sviðs- stjóri hjá embættinu, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að á milli 40 og 50 manns hefðu kosið ut- an kjörfundar dag hvern. Framboðsfrestur rennur ekki út fyrr en föstudaginn 14. október, eða hálfum mánuði fyrir kjördag. Atkvæðagreiðsla utan kjör- fundar hófst þann 21. september sl., eða fimm og hálfri viku fyrir kjördag, en alla jafna stendur utan- kjörfundaratkvæðagreiðsla í átta vikur. 266 höfðu kosið utan kjörfundar hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík á sambærilegum tíma fyrir kosningar árið 2013, en emb- ætti sýslumannsins á höfuðborg- arsvæðinu var ekki stofnað fyrr en 1. janúar 2015 með samruna sýslu- mannsembættanna í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, þannig að tölurnar í ár eru ekki sambærilegar við tölurnar frá 2013. Bergþóra segir að kosið sé utan kjörfundar hjá embættinu við Skógarhlíð, en 16. október flytjist atkvæðagreiðslan í Perluna, þar sem hægt verður að kjósa dag hvern frá kl. 10-22 til 28. október. Á kjördag, 29. október, verður hægt að kjósa í Perlunni frá kl. 10-17, en einungis þeir sem búa úti á landi geta kosið þar þann dag. agnes@mbl.is 428 hafa kosið utan kjör- fundar vegna þingkosninga Morgunblaðið/Ómar Flytur Embætti sýslumannsins verð- ur bráðlega flutt í Kópavog.  Einungis er kosið á einum stað Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokks, skoraði á þingfundi í gær á Ólöfu Nordal inn- anríkisráðherra og barnaverndaryf- irvöld á Íslandi að beita sér í máli fimm ára drengs sem norskur dóm- stóll fól í umsjá barnaverndaryf- irvalda í Noregi. Forsjá var dæmd af móðurinni af norskum dómstól og Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurð- aði í gærmorgun að barnavernd- arnefnd í Kristianstad í Noregi hefði heimild til að fjarlægja drenginn úr umsjá móður sinnar hér á landi og flytja hann til Noregs í fóstur þar sem móðirin bjó. Oddgeir Einarsson, lögmaður móður drengsins, segir að úrskurð- urinn verði kærður til Hæstaréttar. Úrskurðurinn er á grundvelli Haag-samningsins frá 1980 og ís- lenskra laga m.a. um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna og afhendingu brott- numinna barna. Ekki náðist í Ólöfu Nordal við vinnslu fréttarinnar en frá innanrík- isráðuneytinu fengust þau svör að ráðuneytið „fari ekki í málið“ með vísan í Haag-samkomulagið. Heiða Björg Pálmadóttir, lög- fræðingur hjá Barnaverndarstofu, segir að þegar flutt sé búferlum taki barnaverndaryfirvöld í viðkomandi landi alfarið við málinu. Barna- verndaryfirvöld hérlendis hafi því ekki tök á inngripi í tilfelli sem þessu. „Alveg eins og þegar við ger- um kröfur á að fólk fari eftir íslensk- um lögum og reglum þegar það flyt- ur til Íslands, þá gerist slíkt hið sama í útlöndum,“ segir Heiða. Ekkert útilokað Fram kom í viðtali Vísis við ömmu drengsins að móðursystir hans hefði boðist til þess að taka við forsjá hans en norsk barnaverndaryfirvöld hafi hafnað því. Að óbreyttu mun móðir drengsins fá að hitta hann tvisvar á ári þar til hann verður 18 ára. Spurð hvort útilokað sé að barnið fari í umsjá einhvers fjölskyldumeðlims að því gefnu að viðkomandi standist kröfur norskra yfirvalda telur Heiða svo ekki vera. „Það er ekkert of seint. Dómurinn varðar fyrst og fremst það að barnið eigi að fara í umsjá barnaverndaryfirvalda sem fara með forsjá þess, en ekkert um það hvar drengurinn á að dvelja, “ segir Heiða. Mannréttindabrot Á Alþingi í gær sagði Ragnheiður að verið væri að fremja mannrétt- indabrot á íslenskri fjölskyldu. „Við tölum um mannréttindabrot á pólsk- um konum og tölum um mannrétt- indabrot á fólki í Sýrlandi. Fyrir mig sem þingmann, fyrir mig sem móður og ömmu þá er þetta mannréttinda- brot sem ég get ekki sætt mig við,“ sagði Ragnheiður í ræðu sinni. Í samtali við Morgunblaðið segist Ragnheiður ekki hafa sett sig inn í málið umfram það sem fram hefur komið í fjölmiðlum. „Ég nota ekki orðið mannréttindabrot í flimtingum en mér finnst mannréttindi brotin á þessum litla dreng, alveg óháð því hvort mamma hans er virkur alkó- hólisti eða ekki. Mér finnst mann- réttindabrotin felast í því að norsk yfirvöld séu ekki reiðubúin að veita fimm ára gömlum íslenskum rík- isborgara tækifæri á því að vera í nálægð við fjölskyldu sína á Íslandi. Heldur vilja þau að hann verði í höndum vandalausra. Mér finnst ekki vera kannað til fulls hvort hans réttur sem einstaklings, um að fá að vera í nánum samskiptum við sína fjölskyldu, hafi verið virtur,“ segir Ragnheiður. Ráðuneyti mun ekkert aðhafast í forræðismáli  Fimm ára drengur verður að óbreyttu sendur í fóstur til Noregs Morgunblaðið/Ómar Áskorun Ragnheiður skoraði á Ólöfu Nordal að aðhafast í málinu. „Þessi ákvörðun kom okkur alger- lega í opna skjöldu og í raun veldur hún okkur verulegum vonbrigðum,“ segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, í samtali við Morgunblaðið. Vísar hann í máli sínu til þeirrar ákvörðunar innanríkisráðherra að hýsa stóran hóp hælisleitenda í hús- næði lögreglu að Krókhálsi 5b í Reykjavík, en þar var áður Lög- regluskóli ríkisins til húsa. Eftir að lögreglunám færðist upp á háskólastig fer bóklegt nám fram í Háskólanum á Akureyri, en verklegi hluti námsins og endurmenntun lög- reglumanna er í höndum Mennta- og starfsþróunarseturs ríkislögreglu- stjóra, en til stóð að sú starfsemi færi fram í húsnæði lögregluskólans að Krókhálsi. Að sögn Snorra er nú alls óljóst hvar hægt verður að hýsa þessa starfsemi. Húsnæðið var rýmt í flýti „Inni í þessu húsnæði var fullbúin íþrótta- og æfingaaðstaða sem lög- reglan var að nýta, bæði fyrir nem- endur skólans og undir þrekpróf lög- reglumanna,“ segir Snorri og bætir við að lögreglan hafi einnig nýtt að- stöðuna til að æfa m.a. húsleitir og tæknirannsóknir. „Við fréttum svo bara af því í síðustu viku að rýma ætti hús- næðið í flýti og ég veit ekki hvar lög- reglan á að fá inni með þá aðstöðu sem þarna var,“ segir hann. Spurður hvort þessi ákvörðun muni hafa einhver áhrif á þjálfun lögreglumanna kveður Snorri já við. „Þetta mun augljóslega hafa áhrif á starfsþjálfun. Bóknám er þegar hafið á Akureyri og okkur vitanlega hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um hvernig starfsþjálfun verður háttað. Við höfðum í hyggju að nýta þetta húsnæði undir það sem og end- urmenntun þeirra lögreglumanna sem nú þegar eru við störf.“ Tímabundið, segir ráðherra Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur sagt að um sé að ræða tíma- bundna ráðstöfun vegna mikillar þarfar fyrir húsnæði undir hælisleit- endur hér á landi. Að sögn ráðherra mun Útlendingastofnun hafa hús- næðið að Krókhálsi til afnota í að há- marki tvo mánuði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tómt Búið var að rýma æfingaaðstöðu lögreglu þegar ljósmyndara bar að og er húsið nú nýtt undir hælisleitendur. Ákvörðun ráðherra kom lögreglu á óvart  Fjölbreytt þjálfun stunduð í húsnæði lögreglu að Krókhálsi Snorri Magnússon Yfir 100 hælisleitendur komu hingað til lands í september sl. og hafa umsóknir um vernd verið hátt í 600 á árinu. Hægt verður að hýsa allt að 75 karlmenn í húsnæði lögregluskólans að Krókhálsi í Reykjavík, en að sögn Út- lendingastofnunar er ekki vænlegt að hafa þar bland- aðan hóp fólks. „Það er erfiðara að vera með blandaða hópa í opnum rýmum,“ segir Kristín Völund- ardóttir, forstjóri Útlend- ingastofnunar, í samtali við mbl.is, en sólarhrings örygg- isgæsla verður á staðnum þann tíma sem Útlend- ingastofnun hefur húsnæðið til afnota. Fjöldi hælisleit- enda hér á landi er nú vel yf- ir 500. Mikill fjöldi umsókna ALLT AÐ 75 Í SKÓLANUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.