Morgunblaðið - 06.10.2016, Side 6

Morgunblaðið - 06.10.2016, Side 6
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íbúðum í byggingu á höfuðborg- arsvæðinu hefur fjölgað nokkuð frá sama tíma í fyrra. Tæplega 3.000 íbúðir eru í byggingu, liðlega 500 fleiri en á sama tíma á síðasta hausti. Er þessi fjöldi talinn ná- lægt því að fullnægja þörf fyrir nýjar íbúðir næstu tvö árin. Hins vegar dugar þessi fjöldi ekki til að minnka þann húsnæðisvanda sem myndaðist þegar byggingafram- kvæmdir stöðvuðust að mestu eftir hrun. Gamli vandinn óleystur Samtök iðnaðarins telja reglu- lega íbúðir í byggingu á höfuðborg- arsvæðinu. Nú eru nærri 3.000 íbúðir í byggingu, eins og sést á meðfylgjandi töflu. Hafa ekki fleiri íbúðir verið í byggingu frá árinu 2010. Jón Bjarni Gunnarsson, að- stoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, bendir á að þörf sé á að bæta við 1.600 til 1.800 íbúðum á ári á þessu svæði. Tæp tvö ár taki að byggja hverja íbúð þannig að þær 3.000 íbúðir sem nú eru taldar í byggingu samsvari nokkurn veg- inn þörfum markaðarins. Hins veg- ar sé enn óleystur húsnæðisvand- inn sem varð til eftir hrun og ekkert saxist á hann á þessum tíma. Samkvæmt spá samtakanna um þróunina næstu árin er útlit fyrir að fleiri íbúðir verði tilbúnar á árinu 2018 og sérstaklega á árinu 2019. Á síðarnefnda árinu er reikn- að með að lokið verði smíði 2.800 íbúða og er það meira en 1.000 íbúðum yfir áætlaða þörf á ári. Jón Bjarni bendir á að íbúðir sem teknar eru til skammtímaleigu fyrir ferðafólk rugli myndina. Áætlað sé að 3.000 íbúðir hafi farið í skammtímaleigu og samsvari það tveggja ára þörf fyrir nýjar íbúðir. Auka þurfi byggingamagnið sem því nemur til að halda í við fjölgun íbúa. „Það virðist ganga vel að selja. Við sjáum nánast engar full- búnar íbúðir standa tómar,“ segir Jón Bjarni. Megnið í fjölbýlishúsum Talning SI sýnir að lítið er byggt af einbýlishúsum og rað- og parhúsum og eykst það lítið frá fyrra ári. Tæplega 100 einbýlishús eru í byggingu og 200 rað- og par- hús. Megnið af íbúðunum er í fjöl- býlishúsum og þar kemur aukn- ingin einnig fram. Jón Bjarni segir þó að þeir verktakar sem byggja raðhús láti vel af sér og telji að markaður sé fyrir fleiri hús, ef lóð- ir fást. „Það þarf að vera eðlilegt fram- boð af lóðum. Framboðið hefur minnkað mikið. Það er helst í miðbæ Reykjavíkur og þar í kring en það eru dýrar einingar. Fyrir þá sem eru að kaupa í fyrsta skipti þarf að vera hægt að byggja í út- hverfum. Ekki er mikið af lóðum í boði þar,“ segir Jón Bjarni. Þó má segja að það eigi við um nýtt hverfi á Völlunum í Hafnarfirði, Skarðs- hlíð, sem nýlega var úthlutað til eins verktaka, og Helgafellsland í Mosfellsbæ. Líf að kvikna á Selfossi Samtök iðnaðarins könnuðu markaðinn utan höfuðborgarsvæð- isins að þessu sinni. Niðurstaðan kemur ekki á óvart, lítið er byggt. Jón Bjarni segir að lítið sé að ger- ast á Akranesi og í Reykjanesbæ. Þó sé að verða búið að selja allar blokkirnar sem strönduðu í Reykjanesbæ í hruninu og byrjað á einhverjum nýjum. Þá sé líf að kvikna á Selfossi. Þar sé verið að hefja byggingu á tugum raðhúsa og parhúsa og nóg til af tilbúnum lóðum. Talningar Samtaka iðnaðarins á höfuðborgarsvæðinu Fjöldi íbúða í byggingu 2010-2016 Heimild: SI Allar húsgerðir maí ´10 mar.´11 nóv.´11 sep.´12 feb.´13 sep.´13 mar.´14 okt.´14 mar.´15 okt.´15 okt.´16 Fokhelt og lengra komið 1.641 1.300 1.175 809 831 927 891 1.183 1.202 1.419 1.437 Að fokheldu 375 348 244 473 736 749 1.130 1.253 1.076 980 1.521 Samtals 2.016 1.648 1.419 1.282 1.567 1.676 2.021 2.436 2.278 2.399 2.958 Breyting -368 -229 -137 285 109 345 415 -158 121 559 Fjölbýli maí ´10 mar.´11 nóv.´11 sep.´12 feb.´13 sep.´13 mar.´14 okt.´14 mar.´15 okt.´15 okt.´16 Fokhelt og lengra komið 1.185 916 837 569 598 696 661 1.018 1.040 1.233 1.258 Að fokheldu 237 243 213 392 639 656 1.054 1.171 993 888 1.407 Samtals 1.422 1.159 1.050 961 1.237 1.352 1.715 2.189 2.033 2.121 2.665 Breyting -263 -109 -89 276 115 363 474 -156 88 544 Sérbýli maí ´10 mar.´11 nóv.´11 sep.´12 feb.´13 sep.´13 mar.´14 okt.´14 mar.´15 okt.´15 okt.´16 Fokhelt og lengra komið 456 384 338 240 233 231 230 165 162 186 179 Að fokheldu 138 105 31 81 97 93 76 82 83 92 114 Samtals 594 489 369 321 330 324 306 247 245 278 293 Breyting -105 -120 -48 9 -6 -18 -59 -2 33 15 Áætlaðar framkvæmdir næstu ár Samtals á höfuðborgarsvæðinu 20172016 2018 2019 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 2016 2017 2018 2019 Byrjað Lokið Byrjað Lokið Byrjað Lokið Byrjað Lokið Reykjavík 520 544 1.439 512 1.650 678 900 1.571 Seltjarnarnes 10 35 30 29 85 10 85 30 Kópavogur 463 392 624 377 902 435 635 591 Garðabær 250 322 230 287 295 285 190 176 Hafnarfjörður 116 240 415 162 395 200 495 295 Mosfellsbær 370 150 110 150 110 370 70 120 Samtals 1.729 1.683 2.848 1.517 3.437 1.978 2.375 2.783 Breyting - byrjað 1.119 589 -1.062 Breyting - lokið -166 461 805 Byrjað Lokið Byggt í takti við þarfirnar  Um 3.000 íbúðir í byggingu  500 fleiri en fyrir ári  Tveggja ára framleiðsla notuð fyrir ferðafólk Morgunblaðið/Árni Sæberg Framkvæmdir Víða er byggt. Hér er hellulagt í sundi á bak við Laugaveg. Höfuðborgarsvæðið – spá SI 2015-2018 2016 2017 2018 2019 *Sá fjöldi sem þarf í venjulegu árferði til að mæta eftirspurn, eða 1.600-1.800 íbúðir, skv. áætlun SI. Fj öl di íb úð a Heimild: SI 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 LokiðByrjað Viðmið* 2.7831.729 2.848 3.437 2.3751.683 1.517 1.978 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2016 STÓRAR STELPUR tískuvöruverslun Hverfisgötu 105 Munið bílastæði á bak við hús Við erum á facebook Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Yfirskattanefnd hafnaði því í úrskurði sínum á dögunum að einkahlutafélag sem rekur einangrunarstöðvar fyrir gæludýr fengi að skilgreina starfsemi sína sem „aðra gistiþjónustu“ í skiln- ingi virðisaukaskattslaga. Taldi félagið að sala þess á þjónustu félli undir hið lægra skatthlutfall virðisaukaskatts en yfirskattanefnd dró þá ályktun að með orðalaginu „önnur gistiþjónusta“ væri vísað til sölu á gistiþjónustu sem væri hliðstæð útleigu hótel- og gisti- herbergja. Ekki þótti fara á milli mála að starf- semi félagsins, þ.e. vistun gæludýra í tilgreindan tíma eftir komu þeirra til landsins þar til heilbrigðisyfirvöld hafa samþykkt eða synjað innflutningi dýr- anna, yrði ekki felld undir orðalagið „önnur gistiþjónusta“ samkvæmt lög- unum. Yfirskattanefnd staðfesti þannig með úrskurði sínum ákvarðanir emb- ættis ríkisskattstjóra sem gerði félag- inu skylt að greiða 24% virð- isaukaskatt í stað 11%. Löggjafinn verði að vera skýr Þá hélt félagið því fram að þar sem ekki væri minnst á dýravistun eða aðra þjónustu við gæludýraeigendur í lögum um virðisaukaskatt yrði að telja umrædda þjónustu falla undir almenn ákvæði laganna. Hefði vilji löggjafans staðið til þess að gistiþjónusta gælu- dýra yrði í efra skattþrepi, ætti það að koma skýrt fram í lögum eða reglum. Ríkisskattstjóri hafnaði útskýr- ingum félagsins og tilkynnti því í kjöl- farið að virðisaukaskattskýrslunum hefði verið hafnað og virðisauka- skattur því ákvarðaður. Yfirskattanefnd tók fram að þrátt fyrir yfirlýsingar félagsins um að það veitti ekki þjónustu heldur aðeins vist- un bentu upplýsingar á heimasíðu þess til annars. Þá sé forsaga ákvæðis virðisaukaskattslaga skýr varðandi það hvað felist í orðalaginu „önnur gistiþjónusta“. Gæludýravistun í hærra þrep  Vistun gælu- dýra er ekki „önn- ur gistiþjónusta“ Morgunblaðið/G. Rúnar Vistun Einkahlutafélagið rekur ein- angrunarstöð fyrir gæludýr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.