Morgunblaðið - 06.10.2016, Page 10

Morgunblaðið - 06.10.2016, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2016 Gréta Boða kynnir nýja Rouge Allure Ink frá Chanel og veitir faglega ráðgjöf í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ miðvikudag, fimmtudag og föstudag. finningar, en stjórnmálamennirnir sýndu aðeins hlutleysi, gleði og andstyggð og í raun og veru fyrst og fremst gleði, að sögn Egle. Örlítið salt bætir Inga segir að gott sé að sýna ákafa gleði og þeir sem skori hæst í ákveðinni tegund tilfinn- ingar séu líklegastir til að „smita“ kjósendur af sömu tilfinningu. Hins vegar sé ekki nóg að vera bara glaður, því viðkomandi þurfi líka vera trúverðugur. Athygl- isvert sé að enginn sýni reiði á myndunum heldur reyni stjórn- málamennirnir að vera glaðir og jákvæðir. Lítil reiðitilfinning með gleðinni geti verið eins og örlítið salt út á súpuna, gert gott betra, því rannsóknir sýni að reiði sé sú tilfinning sem tengist aðgerðum. Með myndunum séu stjórn- málamenn að reyna að „selja“ eitt- hvað og þá sé ekki gott að sýna aðeins eina tegund af tilfinningu. „Það er gott að vera glaður en það er betra að sýna líka marg- breytileika tilfinninga, sem hjálp- ar til við að mynda ákveðinn kar- akter eða persónuleika,“ segir hún. Stöllurnar skoðuðu einnig myndir af fimm stjórnmálaleið- togum í Litháen. Eftir að nið- urstöðurnar voru birtar þar í landi lagaði einn þeirra mynd af sér. Þar sýndu stjórnmálamenn- irnir líka fleiri tegundir af tilfinn- ingum, en það er sannfærandi og nauðsynlegt fyrir leiðtoga, að sögn Egle. Sinn er siður í hverju landi og þó ákveðin tilfinning virki á ein- um stað er ekki víst að hún gangi í kjósendur á öðrum stað. Hlut- leysi í andlitinu tákni fyrst og fremst að viðkomandi hafi ekki nýtt sér alla möguleika og hafi misst af tækifærinu til þess að fá kjósendur til liðs við sig. „Hlut- leysistilfinning getur verið vísvit- uð ákvörðun,“ segir Inga. Geta ráðið úrslitum Inga áréttar að miklu skipti að koma til dyranna eins og hver er klæddur og reyna ekki að sýnast vera eitthvað annað en viðkom- andi er. Stefnumál og reynsla skipti mestu í stjórnmálum en hafa beri í huga að myndir af frambjóðendum geta haft áhrif á kjósendur og tilfinningarnar, sem koma fram á myndunum, skipti máli. „Tilfinningar geta jafnvel ráðið úrslitum,“ segir hún og vís- ar til þess að ekki beri mikið á því að fólk lesi stefnumál forseta- frambjóðendanna í Bandaríkj- unum heldur fylgist með svip- brigðum þeirra. Rannsóknir hafi staðfest það. Ólöf og Sturla eru jákvæðustu „smitberar“ stjórmálanna  Við „sölu“ tilfinninga er gott að vera glaður en betra að sýna líka margbreytileika tilfinninga Sturla Jónsson Einar Aðalsteinn Brynjólfsson Oddný Harðardóttir Ólöf Nordal Morgunblaðið/Eggert Bjarni Benediktsson Rannsakendur segja að lítil reiðitilfinning með gleðinni geti verið sem örlítið salt út á súpuna. SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ólöf Nordal, Sturla Jónsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Þor- steinn Víglundsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sýna mestan gleðisvip í úrtaki íslenskra stjórn- málamanna, en Einar Aðalsteinn Brynjólfsson, Oddný Harð- ardóttir, Björt Ólafsdóttir, Kristján Þór Júlíusson og Þorgerður Katr- ín Gunnarsdóttir eru með hlut- lausasta svipinn. Þetta eru nið- urstöður úr könnun, sem Inga Minelgaite Snæbjörnsson, nýdoktor við við- skiptafræðideild Háskóla íslands, og Egle Vaiciu- kynaite, dokt- orsnemi við KTU-háskólann í Litháen, gerðu á myndum af andlitum 18 stjórn- málamanna. Tilgangur rannsókn- arinnar var að kanna hvaða til- finningar stjórnmálamennirnir „seldu“ kjósendum með mest not- uðu myndunum af sér. Sjá má átta mismunandi tilfinn- ingar á andliti fólks: hlutleysi, gleði, undrun, sorg, reiði, ótta, fyrirlitningu og andstyggð. Þegar svipbrigði íslenskra landsliðs- manna í knattspyrnu voru könnuð á myndum með sama hætti fyrr í sumar komu í ljós margskonar til- Inga Minelgaite Egle Vaiciukynaite Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis hefur lagt fram frumvarp til fjár- aukalaga fyrir árið 2016 og er það með fremur óhefðbundnu sniði miðað við undanfarin ár þar sem frumvarpið tekur aðeins til tiltölu- lega fárra ófyrirséðra útgjalda- mála. Er þar m.a. gerð tillaga um 100 milljóna króna framlag til lögreglu- stjórans á Suðurnesjum til þess að fjármagna aukna landamæravörslu á Keflavíkurflugvelli vegna fjölg- unar ferðamanna hingað til lands. „Áætlað er að farþegum um ytri landamæri á Keflavíkurflugvelli fjölgi um 30% frá síðasta ári. Sam- kvæmt mati Isavia lengist biðtími farþega sem millilenda í Leifsstöð í allt að 3 klst. á álagstíma ef árs- verkum landamæravarða verður ekki fjölgað um 8–9,“ segir í frum- varpi fjárlaganefndar, en Isavia hefur til bráðabirgða undanfarin ár fjármagnað að hluta aukna gæslu. Nefndarmenn gera einnig tillögu um 38 milljóna króna framlag til Stjórnstöðvar ferðamála í því skyni að efla menntunarstig starfsfólks innan ferðaþjónustunnar. „Fram- laginu er ætlað að nýtast til stofn- unar Þekkingarseturs ferðaþjón- ustunnar og til að undirbúa starfsnám í ferðaþjónustu,“ segir í frumvarpi. Framlag vegna nýs kerfis Þá gerir fjárlaganefnd m.a. einn- ig tillögu um 350 milljóna króna framlag í tengslum við innleiðingu á nýju greiðsluþátttökukerfi fyrir heilsugæsluna. „Gert er ráð fyrir að í tengslum við nýtt kerfi þurfi að fjölga stöð- um í heilsugæslunni, einkum heim- ilislækna og hjúkrunarfræðinga,“ segir í frumvarpi nefndar. Frumvarp til fjár- aukalaga lagt fram  100 milljónir vegna landamæra- vörslu í Keflavík Morgunblaðið/Ómar Alþingi Frumvarp til fjáraukalaga er nokkuð óhefðbundið í ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.