Morgunblaðið - 06.10.2016, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 06.10.2016, Qupperneq 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2016 leið austur í Hamrahól. Á leiðinni var ég vælandi en Tommi náði nú að hugga snáðann og keypti ís í Litlu kaffistofunni. Tommi hafði þessa góðu nærveru sem ekki er hægt að útskýra nema hafa upp- lifað það, hlýja og traust lýsa því best. Það var einstaklega gott að vera hjá Tomma og Birnu í Hamrahól þó ég hafi verið sí- hlaupandi undir rúm undan fjár- ans skruggunum, öllu heimilis- fólkinu til skemmtunar, enda fékk ég viðurnefnið „Óli skrug- guskalli“. Tommi var mjög eftirsóttur í vinnu alla tíð enda einstakur verkmaður, duglegur, ábyggileg- ur og traustur. Hann hafði líka mikið yndi af hestamennsku og hrossum. Hann var því ávallt vel ríðandi og bar sig einstaklega vel á hesti. Tommi undi sér best í Hamrahól og vildi hvergi annars staðar vera. Tommi og Birna hýstu lífs- gleðina á sínu heimili alla tíð og því var tilhlökkunarefni að hitta þau og mikið hlegið hvort sem var við eldhúsborðið í Hamrahól eða í Eyjum. Umhyggja þeirra og vinátta við foreldra mína hefur verið þeim ómetanleg í gegnum tíðina og veitt þeim gleði og styrk. Fyrir þá vináttu og tryggð þökkum við í dag. Ég veit að hún móðir mín grætur frænda sinn og náinn vin um leið og hún biður honum Guðs blessunar í sinni hinstu för. Tommi frændi var í fasi eins og konungur, ríkidæmi hans hæfir konungum, börnin hans og barnabörn bera ættföð- urnum gott vitni. Í Hamrahól var hann líka konungur í ríki sínu og ég veit nema hann muni nú taka einhvern gæðinginn til kostanna á sléttum himnaríkis eða ríða út á snasir. Við fjölskyldan á Eyjum II, Kjósarhreppi, sendum fjölskyld- unni að Hamrahól okkar dýpstu samúðarkveðjur um leið og við þökkum Tomma fyrir vináttu, tryggð og gleði. Elsku Birna og fjölskylda, megi birta og blessun umvefja minninguna um góðan dreng og gefa ykkur styrk í sorg- inni. Ég sendi hér jafnframt sér- staka vinar- og kærleikskveðjur frá móður minni sem er nú horfin í heim alzheimers. Minningin lifir. Ólafur M. Magnússon frá Eyjum II, Kjósarhreppi. Við andlát Tomma, vinar míns í Hamrahóli, hrannast minningar um góðan dreng upp í hugann. Við hittumst fyrst við dálítið pínlegar aðstæður vordaginn 1950, þegar ég kom fyrst til sum- ardvalar í Hamrahól. Hafði þá komið ríðandi ofan af vegi í fylgd með Tómasi bónda Þórðarsyni ásamt þeim Jórunni Ólafsdóttur, konu hans, og Rúnu, dóttur þeirra hjóna, en með þeim mæðg- um kom ég frá Reykjavík. Þetta var í fyrsta sinn sem ég hafði komið á hestbak og reynsluleysið í þeim efnum kom m.a. fram í því að þegar hrossunum var sleppt í hagann eftir heimferðina varð mér það á, áður en ég losaði hnakkinn, að taka beislið fram af reiðskjótanum, Flosa gamla. Hann lét ekki segja sér tvisvar að þjóta með hinum hrossunum í hagann með hnakkinn á bakinu. Tómas gamli stoppaði mig þegar ég bjóst til að elta hestinn til að ná hnakknum, með þeim orðum að Tommi sem var að koma ríð- andi og syngjandi fram Snasirnar mundi örugglega sjá um það. Það gekk eftir og stuttu síðar heils- uðumst við á hlaðinu um leið og hann rétti mér hnakkinn með smá stríðnisblik í augum. Þrátt fyrir aldursmun okkur Tomma, ég þá 10 ára en hann 17, tókst strax með okkur ein besta vinátta sem ég hefi átt um ævina. Tommi var ætíð afar söngvinn, nokkuð sem ég hafði hreint ekki vanist á heimaslóð í Skerjafirði; þótti þar aðeins samboðið stelp- um. Hann var ekki lengi að þurrka þá bábilju úr huga mér. Eitt af mörgu sem ég á Tomma að þakka. Hann innprentaði mér einnig heiðarleika eftir bestu getu. Ein aðferðin var að spyrja óvænt hvað ég væri að hugsa, „og dragðu ekkert undan“, bætti hann gjarna við. Þetta varð síðan gagnkvæmt og leyndarmál komu fram, sem við treystum hvor öðrum fyrir. Með þessu og öðrum samskiptum þróuðum við með okkur trúnaðartraust og vináttu sem enst hefur æ síðan, þó svo að samverustundum hafi fækkað mjög um og upp úr tví- tugsaldrinum af ýmsum ástæð- um. Tommi var afar duglegur, hjálpsamur og einstaklega ósér- hlífinn við alla vinnu. Gat að vísu stundum verið nokkuð seinn til verks, í „gamla daga“, en jafnan hamhleypa þegar verkið var haf- ið, en þó aldrei á kostnað vand- virkninnar. Sem dæmi var hann afar góður sláttumaður, ekki síst þar sem hann hafði lag á að láta ljáinn bíta. Þá var hann mikill dýravinur og hestamaður góður. Tommi var gæfumaður í einkalífinu með Birnu sína sér við hlið, ásamt mannvænlegum börnum og öðrum afkomendum. Hef ætíð saknað nánari kynna við afkomendur þeirra og þess, hve heimsóknir í Hamrahól urðu fáar á okkar fullorðinsárum. Gleðst þó yfir því þegar við hjón- in áttum ágæta heimsókn til þeirra á meðan heilsa Tomma var allgóð fyrir rúmu ári. Alls varð dvölin fjögur sumur í Hamrahóli, ásamt mislöngum heimsóknum þar fyrir utan, allt fram á óþurrkasumarið 1955. Með þessum vanmáttugu orð- um kveð ég kæran vin minn, Tómas Steindórsson í Hamra- hóli – bænum sem ég hefi ætíð litið nánast á sem annað bernskuheimili mitt og sendi innilegar samúðarkveðjur til Birnu og ástvina þeirra hjóna. Þórarinn Lárusson. Ekki man ég hvað ég var gam- all þegar leiðir okkar Tómasar Steindórssonar frá Hamrahól lágu fyrst saman en örugglega hef ég verið ómálga barn og hann á besta aldri. Fyrstu end- urminningar mínar um hann eru frá þeim tíma er Hamrahólsfjöl- skyldan bjó í gamla bænum sem var að sönnu ekki stór en öðru máli gegndi um hjartarýmið hjá þeim hjónum Tomma og Birnu. Þangað voru allir alltaf velkomn- ir og gestrisni framúrskarandi. Foreldrar mínir og Hamrahóls- hjónin voru vinafólk og ekki minnkaði samgangurinn þegar Lóa systir og Tómas, sonur Hamrahólshjóna, tóku saman. Tommi var, eins og allir vita sem hann þekktu, annálaður dugnað- arforkur og því kynntist ég af eigin raun í sláturhúsi SS á Hellu fyrir u.þ.b. 40 árum en þar var hann fláningsmaður en ég aðstoðar- og aukamaður í hau- saklippingum og gæruskúr. Þeg- ar árin liðu lágu leiðir okkar aft- ur saman á ýmsum vinnustöðum og má kannski segja að á árun- um 1980-90 höfum við unnið meira og minna saman. Tommi var í alla staði góður samstarfs- maður, samviskusamur og dug- legur og með sérlega skemmti- legan húmor. Það var einkar eftirsóknarvert að vinna með honum. Eins var hann hrókur alls fagnaðar og gleðimaður mik- ill. Hann kunni vel að meta gott vín og fór vel með það, mikill söngmaður, lagviss og hafði ágæta rödd. Nýlega heimsótti ég Tomma og Birnu, þá var hann nýkominn af sjúkrahúsi og greinilega af honum dregið. Húmorinn var samt á sínum stað og hann bar sig vel þrátt fyrir erfið veikindi, hann heilsaði og kvaddi með sínu þétta handtaki. Tomma er sárt saknað og votta ég hans nánustu mína dýpstu samúð. Minning um góðan mann lifir. Haraldur Eiríksson. ✝ JöklafarinnOddur Har- aldsson fæddist á Akranesi 18. sept- ember 1978. Hann lést af slysförum 18. september 2016. Foreldrar hans eru Sigurlaug Kon- ráðsdóttir, f. 3. febrúar 1959 í Ólafsvík, og Har- aldur Yngvason, f. 2. ágúst 1959 í Reykjavík. Oddur var elstur af fimm systkinum, hin eru: 2) Víðir Haraldsson, f. 1. mars 1981, maki hans er Kolbrún Þóra Ólafsdóttir, eiga þau tvö börn, þau eru Marela Arín, f. 30. maí 2003, og Óskar Koggi, f. 14. nóvember 2011. Fyrir átti Víðir Brynjar Jökul, f. 22. febrúar 2000, og Kolbrún á fyrir Öldu Karen Antonsdóttur, f. 3. októ- ber 1999. 3) Kolfinna Snæbjörg þórsson, f. 3. mars 1956, og Baldvina Sigrún Sverrisdóttir, f. 13. febrúar 1957. Oddur kynnt- ist Þórkötlu þegar hann fór nokkrar vinnuferðir á Hótel Stykkishólm. Oddur bjó sín fyrstu 13 ár í Ólafsvík, flutti svo með fjöl- skyldunni til Fáskrúðsfjarðar, þar kynntist hann barnsmóður sinni. Eftir tvö ár á Fáskrúðs- firði flutti fjölskyldan suður á Álftanes en Oddur varð eftir fyrir austan og starfaði á sjó. Síðan flutti hann til Reykjavíkur með barnsmóður sinni og starf- aði hann hjá Árna Kópssyni í nokkur ár. Eftir skilnaðinn kom hann á Arnarstapa og starfaði hjá Snjófelli þar til hann fór í sinn rekstur, Snæfellsjökull Gla- cier Tours. Fyrir stuttu voru fest kaup á Litla Kambi í Snæ- fellsbæ utan um reksturinn og sá hann þar spennandi framtíð fyrir Snæfellsjökull Glacier To- urs. Jarðarförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 6. októ- ber 2016, klukkan 14. Haraldsdóttir, f. 28. apríl 1987, maki hennar er Vignir Hauksson, f. 18. febrúar 1982, eiga þau saman Rakel, f. 27. október 2012. 4) Konráð Haralds- son, f. 14. mars 1989, dætur hans eru Talía Björk, f. 6. febrúar 2011, og Kría Logn, f. 19. apríl 2013. 5) Eydís Salbjörg Haraldsdóttir, f. 24. október 1990. Barnsmóðir Odds er Laufey Guðrún Baldursdóttir, f. 22. júní 1978, frá Vattarnesi. Börn þeirra eru Aþena Ösp, f. 8. maí 2002, og Baldur Bent, f. 27. febr- úar 2005. Bæði eru þau fædd í Reykjavík. Unnusta Odds er Þórkatla Kristín Valþórsdóttir, f. 16. janúar 1983, foreldrar hennar eru Sveinn Valþór Sig- Það er ekki auðvelt að skrifa nokkur kveðjuorð um fyrsta barnabarnið sitt. Enginn veit sína ævi fyrr en öll er og sannast það best þegar maður í blóma lífsins er hrifinn burt. Það er mikill missir að slíkum dugnað- arforki sem Oddi, bæði fyrir fjöl- skylduna og samfélagið allt. Elsku Oddur, þegar þú varst unglingur byrjaðir þú að vinna hjá okkur við ferðaþjónustuna Snjófell á Arnarstapa. Þegar Tryggvi hóf ferðir á Snæfells- jökul áttum við góð ár saman þar. Síðan fórst þú að búa í Reykjavík. Þar varðst þú fyrir bíl og stórslasaðist en lést það ekki stoppa þig og fórst furðu fljótt að vinna aftur ýmsa erf- iðisvinnu. Fyrir nokkru síðan festir þú kaup á Jöklaferðum sem gengið hefur mjög vel. Nýlega hafði fyr- irtækið einnig fest kaup á jörð- inni Litla-Kambi í Breiðuvík á Snæfellsnesi. Lífið verður aldrei eins og við vonumst eftir. Það verður bæði með skin og skúrir. Og vorið æsku og yndi andaði um víðan heim, en dagsins ljóð voru liðin á leið inn í þagnar geim. En ennþá í aftanblænum ómaði minninga-fjöld. Hún hryggðist ei við það en vissi: Hún var með þeim síðast í kvöld. Gráttu ekki, góða mamma, Gráttu ekki, pabbi minn, Því englarnir ætla að vernda augasteininn þinn. Jesús sagði það sjálfur, ég sá hann í draumi í nótt, að liðinni lítilli stundu Líklega verð ég sótt. (Jóhann Jónsson) Lauga, Halli, Aþena Ösp, Baldur Bent og Þórkatla, Guð styrki ykkur í sorginni. Guðrún amma. Elskulegi fallegi bróðir minn. Ég á ekki til orð sem lýsa þess- um dögum síðan þú kvaddir okk- ur. Maður á besta aldri, á sjálfan 38 ára afmælisdaginn þinn 18. september gat enginn óskað þér til hamingju því þið lentuð í hryllilegu bílslysi á heimleið. En á þinni stuttu ævi varstu búinn að ganga í gegnum svo margt, framtíðin var björt fyrir Litla Kamb og Jöklaferðirnar ykkar. Oddur minn var elstur af okkur systkinum sem vorum fimm, en þótt einn hlekkur fari þá verðum við hin að standa þétt saman. Oddur var mjög þrjóskur og ekki var mikið hægt að hagga því sem hann var búinn að ákveða. En allar okkar stundir síðustu ár eru manni ógleyman- legar. Allar þessar vinnuhelgar þegar unnið var; ekki var oft komið í slökun á Arnarstapa. Vignir lét alveg eftir þér að koma nokkrar helgar. Ég stend í þakkarskuld fyrir allar okkar góðu stundir. Rakel frænka þín spyr nú mikið um þig og þá kem- ur upp setningin þín: „Oddur besti frændi.“ En hvar er hann? Getur hann hætt að vera dáinn og komið til mín? En ég tækla hana með tímanum og verð dug- leg að tala um þig við hana. Svo var nú best að vera í kringum þig því það voru aldrei nein vandamál, bara lausnir. Við náðum vel saman og þið Vignir voruð mjög góðir félagar og ég þakka fyrir að við höfum náð að kynnast þér, en hefði mátt vera 40 ár í viðbót alla vega. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Söknuðurinn er næstum óbærilegur en minningin lifir um góðan mann sem alltaf var til staðar og mikil eftirsjá er að. Hvíldu í friði, elsku besti bróðir minn og besti frændi og besti mágur. Saknaðarkveðja, Kolfinna Haraldsdóttir, Vignir Hauksson, Rakel Vignisdóttir. Minningarnar ylja okkur og munu gera alla tíð. Minningarn- ar um stóra frænda og fyrir okk- ur varstu sko stór. Þú hafðir mikinn og sterkan karakter. Lést mótlætið ekki stoppa þig og leitaðir nýrra leiða. Að kveðja ungt fólk í blóma lífsins er ekki eitthvað sem við eigum að þurfa að gera. En lífið spyr okkur ekki álits. Jökullinn þinn mun alla tíð vekja upp góðar minningar um þig. Þetta er allt þyngra en tár- um taki. Það er svo margt sem við áttum eftir að upplifa saman. Sveitin þagnar, sverðin liggja ber. Svefninn langi bíður eftir þér. Klakabönd og kynjamyndir, kaldur vindur hvín. Myrkrið dansar, máninn á þig skín. Vættir gráta, vetur færist nær. Vindur kólnar meðan syrgja þær. Frystir allt og fjallið litast fannhvítt eins og lín. Myndast skuggar, máninn á þig skín. (Snæbjörn Ragnarsson) Góða ferð, elsku Oddur frændi. Elín og Ari Leifur. Ósjálfrátt velti ég því fyrir mér þegar ég frétti af dauðaslysi rétt austan við Arnarstapa, hvort þar hefði verið á ferð ein- hver sem ég þekkti eftir fimm- tán ára búsetu á Hellnum. Hugsunin truflaði mig, en ég var ekki komin svo langt að hringja í einhvern á svæðinu til að kanna málið, þegar ég frétti að það hefði verið vinur minn Oddur, sem þarna kvaddi heim- inn á sama mánaðardegi og hann kom í hann, þrjátíu og átta árum áður. Ég varð harmi slegin, því mér þótti mjög vænt um þennan vin minn. Meðan ég rak Hótel Hellna og hann sá um snjósleðaferðirnar á Jökulinn, höfðum við mikil sam- skipti á hverju sumri. Sjálf fór ég ótal ferðir með honum á jök- ulinn, bæði með vinum og fjöl- skyldu. Hvort sem farið var á sleðum eða troðara sá hann um að aðstoða og hjálpa öllum af mikilli þjónustulund. Ég kallaði hann stundum í gamni Odd töff- ara, þegar ég hringdi í hann til að bóka ferðir á jökulinn, en bak við töffarann var góðhjartaður, hjálplegur og greiðvikinn maður, sem alltaf tók jákvætt í allar beiðnir um aðstoð. Og það þurfti ekki alltaf að biðja um þá aðstoð. Hann bauð hana gjarnan fram sjálfur, meðal annars þegar fólk festi bíla eða lenti í einhverju ógöngum á jökulhálsinum. Mér var hann afar hjálplegur þegar ég var að pakka saman lífi mínu á Hellnum og flytja til Reykja- víkur fyrir tæpum sjö árum síð- an. Ég kom reglulega vestur eftir það og í kringum ferðir á jökul- inn ræddum við framtíðar- drauma hans um uppbyggingu á Jöklaferðum, eftir að hann fór að reka þær sjálfur. Hann átti stóra drauma og var að vinna að því að gera þá að raunveruleika með unnustu sinni, þegar hann skyndilega hvarf úr þessu lífi. Oddur elskaði hraða og þær víddir sem jökullinn bauð upp á, og að geta brunað um hvítar breiður hans dag eftir dag. Stundum var hann einn, stund- um með hópa af fólki á sleðum eða troðaranum og fór þá hægar yfir. Nú brunar hann væntan- lega um breiður hans í fé- lagsskap Bárðar Snæfellsáss, en við hin förum ekki fleiri ferðir með honum. Ég votta foreldrum hans, unn- ustu, systkinum, börnum og öðr- um úr fjölskyldunni samúð mína. Það er sjónarsviptir að manni eins og Oddi, en minningin um hann mun lifa áfram, bara við það eitt að horfa á jökulinn. Guðrún Bergmann. Oddur Haraldsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLL HALLDÓRSSON, Sléttuvegi 17, 103 Reykjavík, lést á Vífilsstöðum laugardaginn 1. október. Hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 10. október klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Vífilsstaða fyrir góða umönnun og stuðning við fjölskylduna. . Ragnheiður S. Jónsdóttir, Gunnar Pálsson, Elín Snorradóttir, Sigrún H. Pálsdóttir, Eggert Bjarni Ólafsson, Halldór Pálsson, Ragnar K. Pálsson, Latifa El Bassam, Kristín I. Pálsdóttir, Ib Göttler, Sturla Pálsson, Helga Jónsdóttir, Ragnheiður K. Pálsdóttir og barnabörn. Ástkær systir okkar og mágkona, HUGRÚN JÓNSDÓTTIR, Reykjavíkurvegi 24, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 30. september. Útförin fer fram frá Garðakirkju í Garðabæ föstudaginn 7. október klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið. . Jóna J. Wheeler, Sigrún Sveinsdóttir, Haraldur H. Jónsson, Guðrún Ingólfsdóttir, Gestur Jónsson, Hulda Kristjánsdóttir, Sigríður Björg Jóndóttir, Guðmundur B. Guðmundss., Guðmundur Jónsson, Lilja Ólafsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.