Morgunblaðið - 06.10.2016, Page 28

Morgunblaðið - 06.10.2016, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2016 ✝ RagnheiðurGuðjónsdóttir fæddist í Reykjavík 22. júlí 1975. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu í Kópa- vogi 24. september 2016. Foreldrar hennar eru hjónin Sigríður Valdimarsdóttir, hjúkrunarfræðingur á hjartadeild Land- spítala við Hringbraut, fædd 13. maí 1946, og Guðjón Ólafs- son, fyrrverandi flugstjóri hjá Icelandair, fæddur 22. júní sínu í Verzló. Hún fékk fyrst réttindi sem einkaflugmaður og lauk svo atvinnuflugmanns- prófi árið 1996. Þann 9. febr- úar 1998 var hún ráðin sem flugmaður til Flugleiða, síðar Icelandair. Þann 20. maí 2007 varð hún flugstjóri hjá Ice- landair, þá einungis 31 árs gömul. Ragnheiður naut þess að afla sér menntunar og bæta við sig þekkingu. Samhliða störfum sínum í fluginu lærði hún förð- un og útskrifaðist sem förð- unarfræðingur árið 1997. Hún lauk námi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005. Þegar hún lést hafði hún lokið einu og hálfu ári í hjúkr- unarfræði við Háskóla Íslands. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 6. október 2016, klukkan 13. 1939. Ragnheiður lætur eftir sig soninn Alexander Berg Ragnheið- arson sem er fæddur 14. nóv- ember 2013. Ragnheiður hóf skólagöngu sína í Fossvogsskóla og svo í Réttar- holtsskóla. Hún lauk stúdents- prófi frá Verzlunarskóla Ís- lands árið 1995. Tæplega 18 ára gömul hóf hún flugnám og stundaði það samhliða námi Haustlitirnir skarta sínu feg- ursta þessa dagana í allri sinni litadýrð. En skyndilega grætur himininn, vindar blása harkalega og myrkur hellist yfir. Hún Raggý er dáin. Að horfa á eftir frænku minni í blóma lífsins kveðja svona snöggt er óbæri- legt. Ég var svo lánsöm að fá að vera viðstödd fæðingu Raggýjar einn fallegan sumarmorgun fyrir rúmu 41 ári síðan. Hún var einka- barn foreldra sinna og fékk nafn móðurömmu sinnar, Dóru Ragn- heiðar. Hún ólst upp við ástríki foreldra sinna, litli rauðhærði glókollurinn, og mynduðust sterk tengsl við afa Valda og ömmu Dóru. Hún var forvitin, áköf, dugleg, samviskusöm og um- hyggjusöm við alla. Það var mikið hlegið og leikið þegar öll systk- inabörnin hittust hjá afa og ömmu í Norðurbrún. Raggýju þótti afskaplega vænt um fjöl- skyldu sína og vildi allt fyrir hana gera. Raggý ólst upp í Fossvoginum. Hún gekk menntaveginn og reyndist nám auðvelt. Hún lauk stúdentsprófi frá Verslunarskól- anum. Á skólaárum sínum eign- aðist hún góða vini og sú vinátta hefur haldist öll þessi ár. Á menntaskólaárum sínum var ákvörðun tekin um að læra flug, feta í fótspor föður síns. Þar nýtt- ust hæfileikar hennar eins og þrautseigja, einbeitni, þolinmæði og dugnaður vel. Ég veit til þess að í starfi var hún afar farsæl en alltaf var hún hógværðin uppmál- uð. Hún hafði mikla ánægju af starfinu. Raggý var mjög fróð- leiksfús og bætti við námi í við- skiptafræði sem hún lauk með sóma. Henni fannst hún ekki geta gert upp á milli foreldra sinna og því byrjaði hún að læra hjúkrun- arfræði líkt og móðir hennar og hafði lokið tveimur árum í því námi. Ekki eignaðist Raggý lífs- förunaut, en stærsta og besta verkefni hennar var þegar hún eignaðist gullmolann sinn Alex- ander árið 2013. Hann var sólar- geislinn í lífinu og hún lifði fyrir hann. Missir okkar fjölskyldunnar er mikill. Hláturinn, fasið og enda- lausa góðmennsku í okkar garð munum við varðveita. Fyrir þig, elsku Raggý mín, munum við kveikja ljós og reyna að sjá ljósið í fjarska og minnast með þökkum allra samverustundanna og væntumþykju sem þú hefur veitt okkur í gegn um lífið. Þín móðursystir, Inga. Raggý frænka mín er dáinn og ég veit að fátækleg samúðarorð mín megna lítils gegn þeim harmi sem Sirrý systir mín og Guðjón bera þessa dagana. Ég get bara sagt að ég og dætur mínar Gyða, Sara og Hrafnhildur, erum harmi slegin yfir sviplegu fráfalli Rag- gýjar. Við erum bara að reyna styðja hvert annað í gegnum þetta. Við vorum að gráta saman og rifja upp allar þær fallegu minningar sem við höfum um Raggý, hvað hún var ótrúlega dugleg og ákveðin í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, hvað hún elskaði fjölskyldu sína og hvað hún gaf alltaf af sér ást og kærleik í hvert skipti sem við hittumst. Hún Raggý var ein yndislegasta manneskja sem ég hef borið gæfu til að kynnast á lífsleiðinni og við finnum svo innilega til með ykk- ur. Megi Guð blessa ykkur. Um undra-geim, í himinveldi háu, nú hverfur sól og kveður jarðarglaum; á fegra landi gróa blómin bláu í bjartri dögg við lífsins helgan straum. (Benedikt Gröndal) Guðjón Viðar Valdimarsson. Því morgni eftir orðinn dag, enginn gengur vísum að. Enn erum við minnt á þennan sannleik. Ung kona svæfir litla drenginn sinn að kveldi og kyssir mömmu sína góða nótt. En unga konan fær ekki að líta nýjan dag að morgni. Allt í einu, eins og hendi sé veifað, eru lífdagar hennar á enda taldir og eftir stöndum við hin og skiljum ekki orðinn hlut. Hún Raggý er horfin okkur. Hér eftir verður hún ekki þátttakandi í líf- inu okkar heldur aðeins minning. Það er erfitt að sætta sig við það. Elsku Raggý okkar, eins og við munum hana fyrst 1975, litla rauðhærða skottan, eina barnið foreldra sinna, augasteinninn þeirra. Fallega rauða hárið ein- kenndi hana alla tíð og var eitt af því sem tengdi hana við nöfnu sína, móðurömmuna Dóru Ragn- heiði. Það er ekki hallað á neinn þó sagt sé að þær nöfnurnar, Raggý og amma Dóra, voru mikl- ar vinkonur og áttu einstaklega fallegt og kærleiksríkt samband alla tíð. Litla skottan Raggý stækkaði og varð að ungri konu, það sýndi sig fljótt að hún var ákveðin, fylgin sér og hæfileikarík. Henni voru allir vegir færir, en hjartað var í fluginu og það varð hennar lífsstarf. Hún varð einn kvenkyns frum- kvöðla í stétt atvinnuflugmanna sem gerði okkur frænkur hennar mjög stoltar. Það sýndi líka kjark hennar og áræðni þegar hún ákvað að verða móðir upp á eigin spýtur og hún var svo lánsöm að fá í faðminn sinn yndislegan dreng, Alexander Berg, auga- stein og eftirlæti hennar, afans og ömmunnar. Já, Raggý var dugleg og klár en hennar stærsti kostur var stórt og hlýtt hjarta og það er það sem við fjölskyldan eigum eftir að sakna allra mest. Raggý hafði góð orð um alla, grínaðist, hló hjartanlegum hrossahlátri. Hún var fjölskyldukona sem fagnaði tímamótum hjá litla drengnum sínum með stórveislum fyrir fjöl- skyldu og vini. Þær mæðgur, Raggý og Sirrý, óaðskiljanlegar og nánar alla tíð, létu sig heldur ekki vanta í veislur og fjölskyldu- mót og það var tilhlökkunarefni að eiga von á þeim í heimsókn, það var ávísun á hlátur og sprell fram á rauða nótt. Nú yljar minn- ing um dýrmæta daga sumarið 2015 þegar þær mæðgur og litli Alexander komu hingað í sveitina saman. Annar áberandi þáttur í fari Raggýjar var gjafmildi, örlæti og greiðasemi. Gjafirnar voru engar smágjaf- ir þegar hún tók sig til. Stóri frændi og kona hans sem hún bauð sísona í afmælisferð til Am- eríku, litla frænkan sem fékk óvænt fullan poka af fötum úr akkúrat réttu búðunum – ilm- smyrsli og sápur fyrir móður- systurnar. Allt gladdi okkur og gleymist ekki, svona var Raggý, hugsunarsöm og mundi eftir öll- um. Og svo heldur lífið áfram. Við verðum án elskulegrar frænku og við verðum að læra að lifa með því. Minningarnar eru bara góðar og þær veita gleði og yl. Ég vildi gefa mikið til að finna einu sinni enn hlýja faðmlagið hennar og heyra glaðværan hláturinn en ég veit að það verður ekki. Við sökn- um hennar sárt en hún lifir áfram í litla drengnum sínum. Og þegar hann verður eldri munum við segja honum frá rauðhærða, hjartahlýja grallaranum og dugnaðarforkinum sem var mamma hans. Sara Regína Valdimarsdóttir. Það er svo erfitt að horfa á eft- ir svo ungri konu, í blóma lífsins. Lífið getur verið ósanngjarnt og sorglegt. Raggý, frænka mín, var svo ljúf og hjartahlý, blíð og góð, sú allra klárasta og duglegasta. Viðskiptafræðingur og flugstjóri, mamma og dóttir, vinkona og frænka, allt gerði hún vel og af sönnum áhuga. Raggý var einka- barn og mjög náin foreldrum sín- um. Hún eignaðist Alexander sinn fyrir tæpum þremur árum og hefur hann verið þeim öllum mikill gleðigjafi og hamingju- moli. Elsku Raggý frænku verður sárt saknað. Guðrún Ólafsdóttir. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku Raggý frænka okkar með stóra hjartað. Gjafmilda og góða, sem vildi allt fyrir alla gera. Við munum litlu, fallegu, rauð- hærðu stelpuna með krúttlegu bollukinnarnar og prakkarablik í augum. Flottu unglingsstúlkuna, ungu, fallegu og metnaðarfullu konuna sem virtist ekkert ómögulegt, vildi sífellt læra og mennta sig og var svo stolt af fjöl- skyldunni sinni og vinnunni. Við munum stelpuna sem elskaði ömmu sína svo heitt og huggum okkur við að nú vaki þær yfir okkur saman, þessar endalaust góðu konur. Hvíl í friði, elsku frænka. Við munum ávallt vera til staðar fyrir mömmu þína og pabba og litla Alexander. Við kveðjum þig með ólýsan- legri sorg í hjarta. María Valdimarsdóttir, Ólafur R. Jónsson, Dóra Ragnheiður Ólafsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Ólafur Már Ólafsson, Kolbrún Hrund Ólafsdóttir. Með harm í hjarta skrifa ég þessa hinstu kveðju til stóru frænku minnar, hennar Raggýj- ar. Á einu augnabliki var hún tek- in úr þessum heimi, frá öllum þeim mörgu sem elskuðu hana. Það verður eftir stórt gap, sem ekki verður aftur fyllt, nema með góðum minningum um allar þær stundir sem maður varði með henni. Raggý, með stóra hjartað, breiða brosið og hlátrasköllin. Alltaf var hún svo rausnarleg með fallegu orðin sín og gjafirnar og ávallt höfðingi heim að sækja. Hún vildi ætíð allt fyrir mann gera og var mér og minni fjöl- skyldu ómetanleg hjálp í veikind- um og erfiðleikum á síðasta ári. Við Raggý hittumst reglulega síðustu árin, þegar hún kom til Köben í flugherminn. Hér áttum við margar góðar stundir, sem mér þykir svo vænt um og eru nú ómetanlegar. Ég mun sakna hennar ótrúlega mikið og trúi ennþá ekki að þú hafir verið tekin frá okkur svona snemma. Elska þig, kæra Raggý. Ein- hvers staðar á góðum stað eruð þið amma og afi saman. Og ég veit að það er eitthvað sem hefði hlýjað þér um hjartarætur líka. Valdís Ólafsdóttir. Glaðvær. Gjafmild. Rauðhærð. Metnaðargjörn. Dugleg. Tilfinn- ingabúnt. Snjöll. Klár. Opin. Svo- lítið kaupóð. Hláturmild. Hlý. Aðdáunarverð. Blíð. Og elskaði heitt. Aldrei lognmolla í kringum hana hjartans Raggý okkar og hún var, og verður, svo stór og mikilvægur partur af móðurfjöl- skyldunni okkar. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að hún verði ekki viðstödd í næsta skipti sem við komum saman. Við eigum öll eftir að sakna hennar svo mikið. Það er viðeigandi að seinasta minningin mín um Raggýjju var við slíkt tilefni, við brúðkaup Ingu Dóru systur í sumar. Þar var hún fremst í flokki, svo inni- lega glöð fyrir brúðhjónanna hönd, bjóðandi Eduardo velkom- inn í fjölskylduna af öllu hjarta. Það var Raggý. Hjarta hennar var galopið og fjölskyldan var henni allt. Fyrir tilviljun hitti ég hana með mínum unnusta um borð í Icelandair vél í febrúar fyrr á þessu ári og án þess að hafa hugmynd um að hann væri flugvélanörd af hæstu gráðu, bauð hún honum að sitja frammí hjá sér á meðan hún flaug yfir Boston og lenti svo Boeing 757 vél á JFK flugvelli í New York. Þá hreinræktuðu hamingju sem ég sá skína úr andliti hans við þetta boð hef ég ekki séð fyrr né síðar, ekki einu sinni þegar ég játaðist honum tveimur mánuð- um síðar. Ef að við verðum svo lánsöm, ég og hann, að eignast börn í framtíðinni þá veit ég að hann á eftir að segja þeim þessa sögu oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Og við munum hugsa svo hlýtt til Raggýjar í hvert ein- asta skipti. Ég er þakklát fyrir allar stundirnar okkar saman. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þig að alla mína ævi. Og allra mest á ég eftir að sakna hlátursins þíns, smitandi og glaðværa. Dreymi þig ljósið, elsku hjart- ans Raggý mín, sofðu rótt. Guðný Ebba Þórarinsdóttir. Fréttin um lát Ragnheiðar, eða Raggýjar eins og við þekkt- um hana, kom eins og reiðarslag fyrir okkur samstarfsmenn henn- ar. Það er mjög erfitt að skilja það þegar ung kona með framtíðina fyrir sér er hrifin á brott svo snögglega og burt frá barnungum syni sínum. Raggý hóf störf hjá Icelandair sem flugmaður árið 1998, þá 23 ára gömul. Hún náði að kynnast innanlandsfluginu áður en hún færðist yfir í millilandaflug fé- lagsins og var því komin með mikla og góða reynslu sem flug- maður. Eftir 10 ára starf færðist hún í sæti flugstjóra á B757 og B767 flugvélum félagsins og sinnti því starfi þar til hún lést. Raggý sem hafði ekki langt að sækja flugáhugann var góður flugmaður sem sinnti starfi sínu af miklum faglegum metnaði. Hún var einstaklega vandvirk og skipulögð sem kom fram í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Við þökkum henni fyrir samstarfið gegnum árin og frábært starf í þágu Icelandair. Raggý var fróðleiksfús með eindæmum og kláraði auk flugs- ins viðskiptafræði, förðunarfræði og lagði stund á hjúkrunarfræði, svo eitthvað sé nefnt. Eitt hennar helsta einkenni var hve mikið hún elskaði fjölskyldu sína og hve vænt henni þótti um fólkið í kringum sig og gjafmildi hennar átti sér oftar en ekki fá takmörk. Umhyggja hennar fyrir þeim sem lentu undir eða sótt var á var einnig eitthvað sem ég varð oftar en einu sinni vitni að. Tilhugsunin um að Alexander fái ekki notið þeirrar ástar og um- hyggju sem Raggý hafði fram að bjóða nístir mann inn að hjarta en ég veit hann er umvafinn góðu fólki, sérstaklega ömmu sinni og afa sem nú hugsa um þennan litla dreng sem gefur þeim styrk og ást til að halda áfram og takast á við lífið og þau verkefni sem nú bíða þeirra. Elsku Alexander, Sirrý og Guðjón, hugur minn er hjá ykkur. Færi ég ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hilmar B. Baldursson, flugrekstrarstjóri Ice- landair. Með sorg í hjarta en jafnframt þakklæti fyrir yndisleg kynni kveðjum við Ragnheiði Guðjóns- dóttur, hana Raggý okkar. Það er með öllu óskiljanlegt að ung kona í blóma lífsins sé tekin á brott frá litla sólargeislanum sínum, hon- um Alexander, sem brátt verður þriggja ára, elskandi foreldrum, ættingjum og vinum. Orð mega sín lítils á stundu sem þessari og það eina sem við getum gert er að minnast þessarar fallegu konu sem gaf svo ríkulega. Raggý snerti hjarta okkar með glaðværð sinni, góðmennsku og útgeislun og við munum ætíð sakna hennar. Við biðjum góðan Guð að um- vefja, styðja og styrkja Alexand- er, Sirrý og Guðjón með kærleika sínum. Minningin um yndislega konu lifir. Þegar raunir þjaka mig, þróttur andans dvínar, þegar ég á aðeins þig, einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni, láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli frá Uppsölum) Fyrir hönd vina og samstarfs- fólks hjartadeildar Landspítal- ans, Bylgja Kærnested og Guð- björg Jóna Guðlaugsdóttir. Það mun reynast erfitt að fylla skarð Ragnheiðar Guðjónsdóttur – þessarar einstöku manneskju sem við fengum að kynnast sem nemanda í hjúkrunarfræði í Há- skóla Íslands. Ragnheiður var sérstakur nemandi. Hún var menntaður flugstjóri og vann sem slíkur. Samhliða starfi sínu hjá Ice- landair var hún í námi í hjúkr- unarfræði með hléum síðustu ár. Draumur hennar var að verða hjúkrunarfræðingur og áformaði hún að ljúka hjúkrun- arfræðináminu á lengri tíma meðfram starfi sínu. Hún var mjög glöð að vera komin aftur í námið nú í haust eftir barneign- arleyfi. Starfsfólk og nemendur minnast Ragnheiðar sem ein- staklega yndislegrar mann- eskju. Hún var hlý, einlæg og skörp og gaf mikið af sér til samnemenda og sjúklinga. Ný- verið sendi hún okkur ljósmynd af sér sem okkur þótti sérstök. Myndin var af áhöfn í einu flugi; hún var flugstjóri og aðstoðar- flugstjórinn og allir flugliðarnir voru menntaðir hjúkrunarfræð- ingar. Við hugsum til drengsins hennar Ragnheiðar og fjöl- skyldunnar allrar og vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd nemenda, kenn- ara og starfsfólks Hjúkrunar- fræðideildar Háskóla Íslands, Helga Jónsdóttir, deildarforseti. Lífið er ekki alltaf sann- gjarnt. Að missa nána vinkonu í blóma lífsins er nístandi sárt. Við vorum oft búnar að skipu- leggja lífið, gera plön og ætluð- um að vera saman í ellinni þar sem átti að ríkja gleði og ham- ingja. Svo kemur eitt símtal og tilveran breytist. Ég vildi ekki trúa þessu en ég þekkti röddina vel sem talaði. Heyrði hversu erfitt var að segja þessi tíðindi og vissi um leið að ég gat engu breytt. Þessi ótímabæra kveðja minnir okkur á að lífið er ekki sjálfsagt. Við þurfum að njóta þess á meðan við getum. Við Raggý kynntumst á ung- lingsárunum þegar ég flutti við hliðina á henni. Við horfðum fyrst hvor á aðra úr fjarlægð en smullum fljótt saman. Árin í Réttó og Verzló tóku við með öllum þeim ævintýrum sem fylgdu. Hún tveimur mánuðum eldri en ég og minnti mig reglu- lega á það. Þegar hún fékk bíl- prófið, flugprófin og allar gráð- urnar sem hún bætti á sig þá veit ég ekki hvor var stoltari ég eða hún. Ég fékk að vera hennar fyrsti farþegi sem hún mátti fljúga með. Okkur fannst frelsið og lífið vera okkar þegar við nutum fegurðar landsins úr há- loftunum. Við höfðum litlar áhyggjur af foreldrum okkar sem voru vægast sagt stressuð yfir vinkonunum sem flugu yfir landið sem þær rötuðu ekki um á bíl. Við sigruðum þennan hjalla og svo marga aðra. Þann- ig var það einmitt með alla sigr- ana. Við áttum þá saman og glöddumst yfir þeim saman. Raggý naut þess að deila áföngum lífsins með öðrum og var boðin og búin að hjálpa. Hún var gjafmild og ætíð búin að kaupa vel valdar gjafir með löngum fyrirvara. Börnin mín kölluðu hana stundum jóla- sveininn því þegar hún mætti var hún iðulega með poka á bak- inu fullan af spennandi varningi frá útlöndum. Hún var alltaf að gleðja aðra en vænti einskis í staðinn. Stundum gaf hún of mikið af sér og gleymdi að hugsa um sjálfa sig. Gekk of nærri sér í því að þjóna öðrum og gleðja aðra. Sól- in skein ekki alltaf jafn skært hjá vinkonu minni en alltaf birti til og gleðin, gæskan og góðvild- in sem einkenndi hana alla tíð geislaði af henni. Mikil var hamingjan þegar von var á litlum gullmola í heim- inn og ljóst að stærsta óskin hennar, um að verða móðir, var að rætast. Alexander Berg, litli gleðigjafinn og guðsonur minn, fæddist og gleðin varð okkar allra. Sirrý og Guðjón gengu inn í nýtt hlutverk og stóðu þétt við hlið þeirra beggja. Þessi litli sól- Ragnheiður Guðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.