Morgunblaðið - 06.10.2016, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 06.10.2016, Qupperneq 35
þegar ég var frá vegna námsveru á spítölum. Með hennar hjálp tókst mér að ljúka læknaprófi í byrjun árs 1955. Þá var Páll búinn að vera í sér- fræðinámi í Gautaborg í rúmlega tvö ár. Ég og tvíburarnir fórum út til hans og ég tók hluta kandidatsársins á Sahlgrenska sjúkrahúsinu.“ Guðrún fékk almennt lækninga- leyfi 1958. Hún kenndi líffæra- og líf- eðlisfræði við Hjúkrunarskóla Ís- lands 1958-59 og 1965-69. Haustið 1969 fóru þau hjónin ásamt yngri börnum sínum þremur til Bristol í Englandi. Páll stundaði námi í embættislækningum en Guð- rún hóf sérfræðinám í geðlækn- ingum. Því námi hélt hún áfram hér heima frá sumri 1970 og öðlaðist sér- fræðileyfi í geðlækningum í árs- byrjun 1976, fyrst kvenna hér á landi. Hún skrifaði sérfræðiritgerð um sjálfsmorð á Íslandi 1962-73 en þá hafði nánast ekkert verið ritað um sjálfsmorð hér á landi. Guðrún var sérfræðingur í geð- lækningum á geðdeild Borgarspít- alans frá 1976 og til starfsloka sum- arið 1996. Guðrún hélt fjölmarga fyrirlestra um sjálfsvíg hér á landi og víða á er- lendum ráðstefnum. Hún var gjald- keri Geðlæknafélags Íslands 1976- 78, sat í Barnaverndarráði Íslands 1974-82 og hefur ritað og rætt í fjöl- miðlum um geðheilsu og kristna trú: „Biblíulestur og trúmál hafa ætíð verið mér hugleikin. Ég hef ávallt sett allt mitt traust á Skaparann. Mamma kynntist ung söfnuði sjö- unda dags aðventista gegnum bróður sinn, Jóhann Jónsson, og gekk í þann söfnuð. Ég skírðist til safnaðarins um miðjan aldur og var virk í safn- aðarstarfi meðan heilsan leyfði.“ Fjölskylda Guðrún giftist 19.8. 1949 Páli Sig- urðssyni, f. 9.11. 1925, bæklunar- lækni og fyrrv. ráðuneytisstjóra. Hann er sonur Sigurðar Jónssonar, sjómanns í Reykjavík, og k.h., Ingi- bjargar Pálsdóttur húsfreyju. Börn Páls og Guðrúnar eru: 1) Jónína, f. 14.12. 1949, tannlæknir, gift dr. Magnúsi Guðmundssyni, lyf- og gigtarlækni, en börn þeirra eru Guðrún Lilja, f. 1974, og Atli Páll, f. 1981; 2) Ingibjörg, f. 14.12. 1949, lyfjafræðingur, gift Helga Þórhalls- syni efnaverkfræðingi en synir þeirra eru Páll, f. 1970, og Þórhallur, f. 1977; 3) Dögg, f. 2.8. 1956, lögfræð- ingur, var gift dr. Ólafi Ísleifssyni hagfræðingi og er sonur þeirra Páll Ágúst, f. 1983; 4) dr. Sigurður Páll, f. 15.11. 1960, kvæntur Ásthildi Sól- borgu Þorsteinsdóttur grunnskóla- kennara og eru börn þeirra Guðrún Ágústa, f. 1986, Sólrún Dögg, f. 1991, Páll Steinar, f. 1994, og Sigrún Björk, f. 1997; 5) Jón Rúnar, f. 15.11. 1960, hrl. Langömmubörnin verða brátt 16. Bróðir Guðrúnar er Jón Atli, f. 1924, d. 1975, vélstjóri, var kvæntur Súsönnu Halldórsdóttur, f. 1929, d. 2009. Foreldrar Guðrúnar eru Jón Júní- usson, f. 1895, d. 1967, stýrimaður í Reykjavík, og k.h., Jónína Jóns- dóttir, f. 1900, d. 1983, húsfreyja. Úr frændgarði Guðrúnar Jónsdóttur Guðrún Jónsdóttir Elín Símonardóttir húsfr. í Mundakoti Guðrún Jóhannsdóttir húsfr. í Mundakoti Jón Einarsson hreppstj. í Mundakoti á Eyrarbakka Jónína Jónsdóttir húsfr. í Rvík Ragnhildur Jónsdóttir húsfr. á Heiði Einar Bjarnason b. á Heiði á Síðu Ísólfur Pálsson tónskáld og organisti í Ísólfsskála á Stokkseyri Ragnar í Smára útgefandi og menningar- frömuður í Rvík Jón Óttar Ragnarsson fyrsti sjónvarpsstj. Stöðvar 2 Jón Guðmundss. form. á Gamla- Hrauni Guðríður Guðmundsdóttir húsfr. á Litlu-Háeyri Sesselja Helgad. húsfr. á Gamla-Hrauni Sigríður Vigfúsdóttir húsfr. í Rvík Guðjón Friðrikss. sagnfr. og rith. í Rvík Lúðvík Jónsson bakaram. á Selfossi Guðni Jónsson prófessor við HÍ Ásta Lúðvíksd. húsfr. í Hafnarf. Lúðvík Geirsson fyrrv. alþm. Bjarni Guðnason prófessor emeritus og fyrrv. alþm. Jón Guðnason prófessor við HÍ Bergur Guðnason lögfr. Guðni Bergsson lögfr. og fyrrv. knattsyrnu- kempa Páll Ísólfsson tónskáld, skólastj., kórstj. og dómorganisti Sigurður Ísólfsson organisti við Fríkirkjuna í Rvík Þuríður Pálsdóttir óperu- söngkona Ingimar Sigurðsson fyrrv. skrifstofustj. í umhverfis- ráðuneytinu Einar Pálsson skólastj. og fræðim. Guðmundur Páll Arnarson skólastjóri Bridge- skólans og heims- meistari í bridge Sigríður Grímsdóttir húsfr. í Grímsfjósum Jón Adolfsson b. og form. í Gríms- fjósum við Stokkseyri Sigríður Jónsdóttir húsfr. í Syðra-Seli Júníus Pálsson b. í Syðra-Seli í Stokkseyrarhreppi Jón Júníusson stýrim. og vélstj. í Rvík Margrét Gísladóttir ljósm. í Syðra-Seli Páll Jónsson hreppstj. og form. í Syðra-Seli, af Bergsætt Jóhann Þorkelsson b., form. og verslunarm. í Mundakoti á Eyrarbakka, af Kaldaðarnesætt Guðmundur Þorkelsson form. á Gamla- Hrauni ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2016 ERU ÞAÐ HEITU LAUGARNAR? „ “ HVERNIG KEMST 330.000 MANNA ÞJÓÐ Á EM? LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR LEYNIVOPN.IS Doktor 90 ára Guðrún Jónsdóttir 85 ára Jóna Berta Jónsdóttir Lára Karen Pétursdóttir Oddný Jóna Bárðardóttir Ragna Esther Guðmundsdóttir Tryggvi Sigurðsson 80 ára Kristín Bjarnadóttir Skúli Helgason 75 ára Ágústa Sigurjónsdóttir Guðlaug Ástmundsdóttir Hólmfríður Hjartardóttir 70 ára Bergljót Rafnsdóttir Guðlaug Björgvinsdóttir Helga Karlsdóttir Ingibjörg Olsen Lilja Þorvarðardóttir Ósk Ásgeirsdóttir Soffía Pétursdóttir Tryggvi Ólafsson 60 ára Aðalbjörg Stefánsdóttir Arndís Sjöfn Eggertsdóttir Fanney Magnússon Guðbjörg Ólafsdóttir Hafdís Ólafsdóttir Hafsteinn Karlsson Joan Evelyn Baker Jóhann Rúnar Sigurðsson Kristín Sveinbjörnsdóttir 50 ára Anna María Guðmann Arngrímur Guðmundsson Ásthildur Jónsdóttir Daníel O. Sveinbjörnsson Geir Karlsson Giampaola Casu Guðný Atladóttir Guðrún Pálmey Harðardóttir Gústav Geir Bollason Gylfi Sigurðsson Halldóra Þorgilsdóttir Hildur Björg Hafstein Hjördís Ingvarsdóttir Jóhann Kristján Ásmundsson Praiwan Ketsee Rúnar Júlíusson Steinar Ríkarður Jónasson 40 ára Aðalheiður Runólfsdóttir Ásmundur Þórhallsson Erla Kaja Emilsdóttir Friðrik Erlendur Stefánsson Kolbrún Elsa Smáradóttir Kristín Rúnarsdóttir Linda Guðmundsdóttir Sólrún Engilbertsdóttir 30 ára Chantal K. Uto Haraldur Þór Sveinbjörnsson Heimir Skúli Guðmundsson Jón Eyberg Helgason Páll Árni Guðmundsson Sandra Dís Sigurðardóttir Sólrún Gunnarsdóttir Sæmundur Þór Helgason Telma Ýr Sigurðardóttir Tryggvi Þór Aðalsteinsson Þorgils Magnússon Til hamingju með daginn 30 ára Tryggvi ólst upp á Álftanesi, hefur verið bú- settur þar alla tíð og starfar hjá Jarðborunum. Bræður: Ólafur Símon Aðalsteinsson, f. 1984, d. 2008, vélamaður, og Pét- ur Ingi Aðalsteinsson, f. 1994, nemi í Vélskólanum. Foreldrar: Guðný Ólafs- dóttir, f. 1957, förð- unarfræðingur, og Að- alsteinn Símonarson, f. 1955, bifvélavirki. Þau búa á Álftanesi. Tryggvi Þór Aðalsteinsson 30 ára Telma ólst upp í Reykjavík, býr á Akureyri, er sjúkraliði með stúd- entsprófi og stundar nám í hjúkrunarfræði við HA. Maki: Sveinn Þór Stein- grímsson, f. 1984, íþrótta- fræðingur. Dætur: Kara Mjöll, f. 2008, og Bríet Rut, f. 2012. Foreldrar: Hildur Kristín Hilmarsdóttir, f. 1959, og Sigurður Geir Ólafsson, f. 1945, d. 2006.. Telma Ýr Sigurðardóttir 30 ára Sæmundur ólst upp í Reykjavík, lauk MA- prófi í myndlist við Gold- smiths University of London, var með einksýn- ingu á Listasafni Íslands nú í ársbyrjun og er nú að sýna erlendis. Maki: Fredrique Pisuisse, 1986, myndlistarkona. Foreldrar: Sólveig Sigur- geirsdóttir, f. 1954, starf- ar við ferðaþjónustu, og Helgi Jónsson, f. 1943, vélsmiður. Sæmundur Þór Helgason Helgi Rafn Hróðmarsson hefur varið doktorsritgerð sína í efnafræði við Raunvísindadeild Háskóla Íslands. Heiti verkefnisins er: Víxlverkanir ástanda, kvikfræði örvana, hulin ástönd og ljósrofsferli í vetnishalíðum (e. State Interactions, excitation dyna- mics, hidden states and photo- fragmentation pathways in hydrogen halides). Andmælendur eru dr. Michael N. R. Ashfold, prófessor við Háskólann í Bri- stol, Englandi, og dr. Theofanis Kitso- poulos, prófessor við Krítarháskóla, Grikklandi. Leiðbeinandi var dr. Ágúst Kvaran, prófessor við Raunvísindadeild Há- skóla Íslands. Einnig sátu í dokt- orsnefnd dr. Gísli Hólmar Jóhann- esson, sérfræðingur hjá MentisCura, dr. Ragnar Jóhannsson, fagstjóri hjá Matís og dr. Kristján S. Kristjánsson, stundakennari við Háskóla Íslands. Þungamiðja doktorsverkefnisins snerist um tvö aðskilin en náskyld við- fangsefni. Hið fyrra snýst um mæl- ingar á samhrifsstyrktum fjölljós- eindajónunar (REMPI) rófum vetnishalíðanna HBr og HI. Skráð róf beggja sameinda leiddu í ljós um- talsverð trufl- unaráhrif; línu- hliðranir, breytingar á línustyrkjum og línuvíkkanir. Þessi áhrif eru til styttingar kölluð LS-, LI- og LW- áhrif. Að mæla þessi áhrif hlutbundið og eigindlega gerir gagnasöfnun varð- andi víxlverkanir á milli Rydberg- og jónparaástanda mögulega. Þessar víxl- verkanir fela m.a. í sér ljóssundrun í gegnum fráhrindandi ástönd og jónun atómbrotanna sem úr þeim myndast. Dulin ástönd eru sömuleiðis fundin í gegnum truflanaáhrif. Hraðavigur- skortlagningar (VMI) eru framkvæmdar á HBr. Slíkar tilraunir mæla stefnu og hreyfiorku jónaðra atómbrota. Með niðurstöðum þessara tilrauna má finna hvaða ljósbrotsferlar koma við sögu í ljósrofnunar- og jónunarferlum sameindarinnar þar sem Rydberg- og jónparaástönd taka þátt sem mið- biksástönd. Helgi Rafn Hróðmarsson Helgi Rafn Hróðmarsson er fæddur 1987. Hann lauk B.Sc. gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands í júní 2011. Í kjölfarið starfaði hann í hálft ár hjá rannsóknar- og þróunardeild Carbon Recycling International (CRI). Helgi var í stjórn Efnafræði- félags Íslands frá 2012-2016 og gegndi formennsku félagsins 2014-2016. Helgi starfar nú sem aðjúnkt við Raunvísindadeild Háskóla Íslands og er kvæntur Ingi- björgu Kristjánsdóttur. Þá spilar Helgi einnig á trommur í svartmálmshljómsveit- unum Carpe Noctem, Misþyrmingu og Nöðru.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.