Morgunblaðið - 06.10.2016, Page 38

Morgunblaðið - 06.10.2016, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2016 fenix 3 sameinar glæsilega hönnun og fjölnota GPS snjallúr Íþrótta- og útivistarfólk þarf ekki lengur að velja á milli – fenix 3 er bæði fullkomið íþróttaúr, útivistarúr, snjallúr og úr sem þú notar daglega í vinnu og leik. Þú getur einnig sérsniðið úrið að þínum þörfum með mismunandi upplýsingagluggum, forritum eða úraskífu með Connect IQ appinu frá Garmin. Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is toppaðu gærdaginn Messíana Tómasdóttir opnar sýn- inguna Hug- form – máluð og klippt í Galleríi Gróttu á Sel- tjarnarnesi í dag kl. 17. „Verkin, sem unnin eru á sl. tveimur árum, byggjast á klippimynda- tækni þar sem form og grunnar eru máluð með akríllitum á papp- ír. Form, liti og myndbyggingu sækir Messíana í innri veruleika og hugræna lifun. Myndir hennar eru ekki aðeins leikur með skæri og form heldur bera í sér and- legan boðskap og viðvist sem snerta áhorfandann á heilandi hátt,“ segir í tilkynningu. Sýning- arstjóri er dóttir Messíönu, list- fræðingurinn Ásdís Ólafsdóttir. Sýningin stendur til 4. nóvember og er opin mán.-fim. kl. 10-19, fös. kl. 10-17 og lau. kl. 14-17. Við opnun sýningarinnar og alla laug- ardaga kl. 14 sýnir Messíana leik- brúðuverk. Blátt Eitt verka Messíönu Tómasdóttur. Hugform – máluð og klippt „Prumpurass í andlitið“ nefnist verk eftir mynd- listarkonuna Freyju Eilíf sem til sýnis verður í Galleríi Gesti, á Stofunni að Vest- urgötu 3, í dag milli kl. 17 og 19.30, en eftir það fylgir það eiganda sínum út mánuðinn. Samkvæmt upplýsingum frá Freyju er verkið sjálfstætt fram- hald af myndasögunni „Erðanú andskotans drullupiss“ frá árinu 2013. „Prumpurassinn er sér- staklega tileinkaður íslenskum stjórnmálum, samfélagsmálum, menningarmálum og hinu almenna athugasemdakerfi á árinu 2016,“ segir í tilkynningu. Freyja Eilíf sýnir í Galleríi Gesti Freyju Eilíf Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is „Ég gjörþekki verkið og fannst því vera tilvalin hugmynd að setja það upp,“ segir leikarinn og leikstjórinn Björn Ingi Hilmarsson. Fyrir um það bil 20 árum fór hann með hlut- verk í í einleiknum Lofthræddi örninn Örvar sem var settur upp í Þjóðleikhúsinu. Nú snýr Björn Ingi aftur í Þjóðleikhúsið og leikstýrir Oddi Júlíussyni í uppfærslunni. Lofthræddi örninn Övar naut mikilla vinsælda á sínum tíma þeg- ar verkið var sett upp í leikstjórn Peters Engkvists. Björn Ingi hefur um árabil starfað með Engkvist í leikhúsi hans í Svíþjóð, Teater Pero. Björn Ingi segir það bæði hafa áhrif og ekki á tengsl hans við verkið að hann hafi leikið það áður og starfað náið með Engkvist í gegnum tíðina. Aðalástæðan fyrir uppsetningu verksins nú sé hins vegar að það er einfalt í uppsetn- ingu. „Okkur langaði að fara með verk um landið og þetta verk er mjög auðvelt að ferðast með, lítil leikmynd og einn leikari. Sagan er falleg og á erindi til barna og þetta hentaði í alla staði.“ Ævintýri arnarins Örvars og músarrindilsins Eðvarðs Í sýningunni er fylgst með loft- hrædda erninum Örvari sem þráir ekkert heitara en að fljúga um loft- in blá. „Verkið er unnið upp úr barnabók eftir Lars Klinting. Sýn- ingin var spunnin með sænska leik- aranum Stalle Ahrreman sem var að vinna hjá Peter Engkvist í leik- húsinu hjá honum í kringum 1991. Verkið fjallar um það hvernig vinir geta hjálpast að við að yfirvinna hluti hvor í fari annars og hvernig maður öðlast hugrekki til að yf- irvinna hluti sem maður hræðist með hjálp vina sinna,“ segir Björn Ingi. Leikritið er fyrst og fremst ætlað börnum. „En gott leikhús er fyrir alla, ekki bara börn.“ Oddur bregður sér í þrjú hlut- verk í sýningunni. „Hann er sögu- maður sem segir okkur söguna af erninum Örvari og músarrindlinum Eðvarði. Oddur er svo fjölhæfur að hann leysir þetta af stakri prýði, auk þess semur hann tónlist fyrir verkið sem hefur verið mjög gaman og það er líka gaman að sjá nýjan mann koma að þessari sýningu,“ segir Björn Ingi. Hann segir jafn- framt að hann hafi lítið hugsað um þá yfirfærslu að fara úr því að vera leikari í að vera leikstjóri í sama verkinu. „En af því að ég þekki þetta svo vel þá er það kannski minna mál en ég hélt að það yrði, það hefur ekkert verið að trufla mig eitt eða neitt, þetta kom bara af sjálfu sér.“ Sýningin verður sýnd í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu frá seinni hluta nóv- ember en verður á faraldsfæti um landið þangað til. Frumsýningin fer fram í Bíóhöllinni í Vestmanna- eyjum í dag og að henni lokinni tekur við hringferð um landið. „Við getum sýnt þetta fyrir öll börn á öllum aldri. Það er verið að leika sér með orð í textanum, til dæmis með rími, en ég myndi giska á að sýningin henti börnum á aldrinum 4-10 ára,“ segir Björn Ingi. Eitt af meginhlutverkum Þjóð- leikhússins er að kynna list leik- hússins fyrir börnum landsins. Því verður börnum í elstu bekkjum leikskóla og yngstu bekkjum grunnskóla boðið á sýn- inguna. Aðspurður hvort verkið eigi jafn vel við í dag og fyrir tuttugu árum segir Björn Ingi að um klassískt verk sé að ræða. „Sagan er klassísk, vinir hjálpast að og maður þarf alltaf að yfirvinna ein- hverja hindranir í sínu lífi.“ „Gott leikhús er fyrir alla“  Hrífandi ein- leikur um hug- rekki og vináttu Morgunblaðið/RAX Einleikur Björn Ingi Hilmarsson steig á svið í Lofthrædda erninum Örvari fyrir 20 árum. Nú tekur hann aftur þátt í uppsetningunni, sem leikstjóri. Leikritið Lofthræddi örninn Örvar verður sett upp víða um land í október og nóv- ember.  10. október: Selfoss, Hella og Hvolsvöllur.  12. október. Þorlákshöfn og Hveragerði.  13. október: Rif.  14. október: Borgarnes.  18. október: Hólmavík.  19. október: Patreksfjörður, Tálknafjörður og Bíldudal- ur.  20. október: Ísafjörður, Bolungarvík og Súðavík.  26. október: Egilsstaðir og Seyðisfjörður.  27. október: Eskifjörður.  1. nóvember: Blönduós, Skagaströnd og Húna- vatnshreppur.  2. nóvember: Sauð- árkrókur.  3. nóvember: Siglufjörður.  4. nóvember: Dalvík.  7.-8. nóvember: Akureyri.  9. nóvember: Húsavík.  14.-18. nóv- ember: Reykja- nesbær. ÖRNINN ÖRVAR Á FERÐ OG FLUGI UM LANDIÐ Oddur Júlíusson Þjóðleikhúsið fer hringinn Barnabókmenntahátíðin Úti í mýri hefst í Norræna húsinu í dag og stend- ur til sunnudags. Þar verður ýmislegt áhugavert í boði fyrir barna- og ung- mennabókaaðdá- endur á öllum aldri, s.s. vinnu- stofur, málþing og upplestrar. „Kynnt verður og prófuð æsispenn- andi appskáldsaga í smíðum sem tengir norræna goðafræði og lofts- lagsbreytingar en gagnvirkar bók- menntir geysast nú fram á sjón- arsviðið,“ segir í tilkynningu. Þekktir gestir koma til landsins til að taka þátt í hátíðinni, þ.e. danski rit- höfundurinn Kenneth Bøgh Andersen sem þekktastur er fyrir bækur sínar um Antboy og Martin Widmark frá Svíþjóð sem þekktastur er fyrir sögur sínar um Spæjarastofu Lalla og Mæju. Af íslensku höfundunum sem þátt taka í hátíðinni má nefna þau Ragnhildi Hólmgeirsdóttur og Arnar Má Arngrímsson, sem bæði eru til- nefnd til Barna- og unglinga- bókmenntaverðlauna Norð- urlandaráðs í ár fyrir Koparborgina og Sölvasögu unglings. Arnar Már mun síðan halda sérstaka rapp- og rímnasmiðju fyrir unglinga. Heiðursgestur hátíðarinnar er Guð- rún Helgadóttir og verður lokadagur hátíðarinnar helgaður henni. Þá spjalla Silja Aðalsteinsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Gunnar Helgason við Guðrúnu um verk hennar og feril og leikin verður tónlist úr leiksýningunni Sitji guðs englar. „Á sama tíma býðst börnum að aðstoða Ævar vísinda- mann við áhugaverðar og bráð- skemmtilegar tilraunir við Norræna húsið.“ Á morgun fer fram málþing með yf- irskriftinni „Sjálfsmynd – heims- mynd“ þar sem íslenskir og erlendir höfundar og fræðimenn ræða málefni á borð við notkun á norrænum goð- sagnaarfi í fantasíubókmenntum, hinn brjálaða heim unglingabókmennta í dag, gagnvirkar bókmenntir og jað- arsetta einstaklinga í barnabókum. Daginn eftir verða síðan málstofur um myndlýsingar í íslenskum og erlend- um barnabókum og stöðu teiknara og útgefenda myndlýstra bóka á Íslandi. Dagskrána í heild má nálgast á vefn- um myrin.is ásamt ítarlegri upplýs- ingum um þátttakendur hátíðarinnar. App, rapp og unglingaveiki  Barnabókmenntahátíðin Úti í mýri Guðrún Helgadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.