Morgunblaðið - 14.10.2016, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.10.2016, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Heiði lóð 164502, 8614, Rangárþing ytra, ehl. gþ., fnr. 221-7796 , þingl. eig. Hjördís Rún Oddsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., miðvikudaginn 19. október nk. kl. 10:30. Bergalda 8, Rangárþing ytra, fnr. 227-0569, þingl. eig. José Enrique Olguin Bustamante og Lorgia L d C Sepúlveda Benner, gerðarbeið- andi Landsbankinn hf, Hvolsvelli, miðvikud. 19. október nk. kl. 10:55. Austurbrúnir 24, Grímsnes- og Grafnhr, fnr. 228-8960, þingl. eig. Fasteignafélagið A24 ehf., gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 19. október nk. kl. 15:00. Reykjahlíð spilda 4, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 234-5769, þingl. eig. Ólafur Björn Blöndal, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn 19. október nk. kl. 12:50. Skollagróf 166828, Hrunamannahreppur, ehl. gþ., fnr. 221-9276, þingl. eig. Fjóla Helgadóttir, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi, miðvikudaginn 19. október nk. kl. 13:50. Árhraun lóð 4, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 234-5739, þingl. eig. Jónas Egilsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf,útibú, miðvikudaginn 19. október nk. kl. 12:25. Hagi lóð 165215, Rangárþing ytra, fnr. 219-7703, þingl. eig. Guðmund- ur Ágúst Ingvarsson og Guðríður Stefánsdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn 19. október nk. kl. 11:35. Lyngholt 193474, Ásahreppur, fnr. 226-1785, þingl. eig. Brynja Jóna Jónasdóttir og Skarphéðinn Jóhannesson, gerðarbeiðandi Ásahrepp- ur, miðvikudaginn 19. október nk. kl. 12:05. Lækjartún I 1, Ásahreppur, fnr. 229-4553 , þingl. eig. Heflun ehf, gerðarbeiðendur Ásahreppur og Vörður tryggingar hf., miðvikudag- inn 19. október nk. kl. 12:10. Tjaldhólar 164199, Rangárþing eystra, fnr. 164199 , þingl. eig. Guðjón Steinarsson og Særún Steinunn Bragadóttir, gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 19. október nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Suðurlandi 13. október 2016 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Útgarður 4, (231-7241, Húsavík, Norðurþing, þingl. eig. Leigufélag Hvamms ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 18. október nk. kl. 10:00. Útgarður 4, (231-7242) Húsavík, Norðurþing, þingl. eig. Leigufélag Hvamms ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 18. október nk. kl. 10:10. Útgarður 4, (231-7243) Húsavík, Norðurþing, þingl. eig. Leigufélag Hvamms ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 18. október nk. kl. 10:20. Útgarður 4, (231-7244) Húsavík, Norðurþing, þingl. eig. Leigufélag Hvamms ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 18. október nk. kl. 10:30. Útgarður 4, (231-7245) Húsavík, Norðurþing, þingl. eig. Leigufélag Hvamms ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 18. október nk. kl. 10:40. Útgarður 4, (231-7246) Húsavík, Norðurþing, þingl. eig. Leigufélag Hvamms ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 18. október nk. kl. 10:50. Útgarður 4, (231-7247) Húsavík, Norðurþing, þingl. eig. Leigufélag Hvamms ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 18. október nk. kl. 11:00. Útgarður 4, (231-7248) Húsavík, Norðurþing, þingl. eig. Leigufélag Hvamms ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 18. október nk. kl. 11:10. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 13. október 2016 Halla Einarsdóttir, ftr. Uppboð Eftirtalin ökutæki og annað lausafé verður boðið upp að lögreglustöðinni v/Þórunnarstræti, Akureyri, mánudaginn 24. október 2016, kl. 14:00 eða á öðrum stað eftir ákvörðun uppboðshaldara, sem verður kynnt á staðnum: 1 Bifreiðar, dráttarvélar og önnur ökutæki: NUA89 GE190 RA266 OU179 AZ916 VT165 RE107 PH568 GS549 US683 PF481 UD127 BB680 NJ566 SE497 MI392 UM149 YT372 AMD88 JG325 OT830 KRS73 2 Óskilamunir úr vörslu lögreglu: Reiðhjól Krafist verður greiðslu við hamarshögg og verða ávísanir ekki teknar gildar nema með samþykki gjaldkera. Ekki er tekið við greiðslu- kortum. Uppboðsskilmálar eru til sýnis á skrifstofu embættisins og þar verða einnig veittar frekari upplýsingar ef óskað er. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 13. október 2016 Halla Einarsdóttir, ftr. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Smiðjustígur 11A, Reykjavík, fnr. 200-3015, þingl. eig. Rosemary Ngeti Sellu og Gunnar Bjarki Gunnarsson, gerðarbeiðendur Vörður trygg- ingar hf., Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf. og Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 18. október nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 13. október 2016. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og bingó kl. 13.30. Árskógar 4 Smíðar og útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Sigríði kl. 9.30-10.30. Opið innipútt kl. 11-12. Opið hús kl. 13-16. Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9, hugvekja presta kl. 14 og línudans kl. 15. Bólstaðarhlíð 43 Tónleikar, kór eldri borgara kl. 13.30. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15. Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, lestur úr blöðum vikunnar kl.10, slökun og hugleiðsla kl.14. Félagsmiðstöðin Vitatorg/Lindargata 59 Handverksstofa opin og spjall, leiðbeinandi kl. 10-12. Bingó kl. 13.30-14.30. Allir hjartanlega velkomnir! Garðabær Opið og heitt á könnuni í Jónshúsi frá kl. 9.30-16. Meðlæti selt með síðdegiskaffinu frá 14-15.45. Vatnsleikfimi kl. 8, 8.50 og 13. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20 ef óskað er, frá Hleinum kl. 12.30, frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokn- um spilum. Gerðuberg Kl. 9-16 opin handavinnustofa, kl. 10-12 pjónakaffi, kl. 10- 10.20 leikfimi gönguhóps, kl. 10.30 gönguhópur um hverfið, kl. 13-16 bókband með leiðbeinanda, kl. 13-15 kóræfing, áhugasamir velkomn- ir á æfingu. Gjábakki Handavinna kl. 9, botsía kl. 9.10, gler- og postulínsmálun kl. 9.30, eftirmiðdagsdans kl. 14 og félagsvist kl. 20. Gullsmári Tiffanýgler kl. 9, leikfimi k. 10, ganga kl. 10, ljósmynda- klúbbur kl. 13, bingó kl. 13.30. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum. Allir velkomnir! Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9. Opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9-12. Útskurður kl. 9. Morgunleikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, jóga kl. 9, 10 og 11, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Spilað brids kl. 13, bingó kl. 13.15, kaffisala í hléi. Fótaaðgerðir 588-2320, hársnyrting 517-3005. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50. Listasmiðjan er opin frá kl. 9.Thai chi kl. 9, botsía kl. 10.15. Hæðargarðsbíó kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790. Korpúlfar Hugleiðsla kl. 9 í Borgum, fimleikahópur Korpúlfa kl. 10 í Egilshöll, BRIDS kl. 12.30 í Borgum, hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum og bleiki dagurinn, allir í bleiku og síðan verður bleikt vöfflukaffi.Tréskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl.11, bingó kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl. í s. 4112760. Selið, Sléttuvegi Húsið er opið kl. 10-14 en starfsemi verður þó möguleg fram til kl. 16. Ganga frá Selinu er kl. 10. Upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi, gott að koma í spjall og kíkja í blöðin. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Molasopinn er frammi eftir hádegi og vestursalurinn opinn kl. 14-16. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga / hláturjóga kl. 11. Spilað í króknum kl. 13.30. Syngjum saman með Friðriki og Ingu Björgu í salnum á Skólabraut kl. 14.30. Vesturgata 7 Enska kl. 10-12, Peter R.K. Vosicky. Sungið við flygilinn kl. 13-14, Gylfi Gunnarsson. Kaffiveitingar kl. 14-14.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Uppsteypa Get bætt við mig verkefnum í uppsteypu . Dynkur ehf. s. 894-2454 Óska eftir Staðgreiðum og lánum út á: gull, demanta, vönduð úr og málverk! Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kost- naðarlausu! www.kaupumgull.is Opið mán.– fös. 11–16. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 782 8800 Ýmislegt mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Randi Træenfæddist 15. jan- úar 1937. Hún lést 4. október 2016. Randi fæddist í Sauda í Vestur- Noregi. Foreldrar hennar voru Olav Træen, ættaður frá Voss, og kona hans, Signe Træen, ættuð frá Lófóten í Norð- ur-Noregi. Randi ólst upp ásamt Turid, yngri syst- ur sinni, og gekk í skóla í heima- byggð sinni. Randi kynntist sem barn starfi KFUK og sótti þang- að fræðslu. Veturinn 1956-57 stundaði hún nám við Heimilis- iðnaðarskólann í Voss. Á skóla- árunum kynntist Randi íslenskri stúlku, Margréti Jónsdóttur frá Akranesi, og leiddi sá kunn- ingsskapur til þess að hún kom til Íslands. Fyrsta árið hér vann Randi á heimili Margrétar Ásgeirsdóttur og Björns Árnasonar, endurskoðanda, og síðar fór hún að vinna í hann- yrðaversluninni Nálinni, en 1962 hóf hún kennslu við Gagnfræðaskóla Keflavíkur, þar sem hún starfaði til starfsloka árið 2005. Randi var virk í starfi Keflavíkurkirkju og var ein af stofnfélögum systrafélags kirkj- unnar. Þá var hún einnig virk í félagi Soroptimista. Randi tók líka virkan þátt í starfi Neskirkju og Hallgrímskirkju. Útför hennar fer fram frá Nes- kirkju í dag, 14. október 2016, klukkan 13. Vinkona okkar Randi Træen er látin. Við höfðum fylgst með veik- indum hennar um nokkurn tíma en héldum að nú væri hún komin á græna grein og því kom snöggt andlát hennar okkur öllum að óvörum. Randi var fædd í Noregi en hafði búið hér á Íslandi í tæp- lega hálfa öld. Hún bjó lengst af í Reykjavík en vann alla tíð sem textílkennari í Holtaskóla í Reykjanesbæ, áður Gagnfræða- skóla Keflavíkur, og það var þar sem við stöllurnar kynntumst henni, en við vorum samkennarar hennar í mislangan tíma og sumar meira að segja nemendur hennar áður. Við stofnuðum félagsskap- inn Ráðhildur Fróðadóttir fyrir alllöngu og í nafni Ráðhildar átt- um við saman fjölda gleðistunda og var Randi virkur þátttakandi í þeim flestum. Skemmst er að minnast sum- arbústaðaferða þar sem Randi dró upp koníaksflöskuna til að bjóða okkur hinum og lýsti það vel höfð- ingsskap þessarar einstöku konu sem aldrei smakkaði vín sjálf. Randi var afskaplega sérstök kona og alls ekki allra. Hún var einfari að eðlisfari sem vildi helst fara eigin leiðir en var þó yfirleitt tilbúin að deila með okkur sam- ferðafólkinu vitneskju sinni og reynslu, en hún var fjölgáfuð kona ef hægt er að nefna eina slíka. Oft kom hún okkur á óvart með fjöl- breyttri vitneskju sinni og gaman var að sitja með henni að spjalli. Randi var líka tilbúin að gefa okk- ur hinum með sér af þeirri gnótt sem hún átti meira af en flestir aðrir og það var einstakt listfengi og mikil sköpunargleði og hefði hún örugglega notið sín sem lista- kona ef lífsins vegur hefði legið aðra leið. Við í félagsskapnum Ráðhildi Fróðadóttur kveðjum nú gamla vinkonu með virðingu og væntum- þykju og þökkum henni samfylgd- ina í áratugi. Fyrir hönd Ráðhildar Fróða- dóttur, Valgerður Guðmundsdóttir. Randi Træen Elsku afi. Ég á svo erfitt með að skilja og fatta að þú sért farinn yfir móðuna miklu. Tilhugsunin um að þú hafir sofnað í hinsta skipti er svo óraunveruleg. Að ekki einu sinni hljóðið í druslunni hans pabba er við keyrum inn á planið veki þig, eða hljóðið í okk- ur barnabörnunum sem læðast inn ganginn og gægjast inn um herbergisdyrnar til að athuga hvort þú sért vakandi, nægi til að þú opnir augun og brosir til okk- ar. Það sem ég gæfi til að sjá þig sitja við skrifborðið þitt í síðasta skipti, með Rás 1 í útvarpinu og annaðhvort lesandi eða skrifandi í einhverja af bókunum þínum. Ég spurði þig einu sinni hvað það væri sem þú skrifaðir en fékk ekkert skýrt svar. Það var allt og ekkert, ýmist gamlir tímar, ætt- fræði, já eða veðrið sem þú skrif- aðir um, allt eftir aðstæðum. Ég mun aldrei gleyma öllum þeim stundum sem við horfðum á sjónvarpið saman og gerðum grín að þýsku sjónvarpsstöðvunum sem þú vildir hafa. Hvort það var bara af þrjósku eða af virkilegum áhuga munum við ábyggilega aldrei fá að vita. Já, eða öllum þeim skiptum sem við óhlýðnuð- umst ömmu og stálumst í marm- Guðni Sigurður Sigurðsson ✝ Guðni Sig-urður Sigurðs- son fæddist 6. októ- ber 1936. Hann lést 19. september 2016. Guðni var jarð- sunginn 1. október 2016. arakökuna inni í búri. Hvort við virkilega óhlýðnuð- umst veit eg ekki, en þú gerðir leik og spenning úr því sem ég sem lítil stelpa hafði gaman af. Þó að við værum ekki líffræðilega skyld tókst þú alltaf pabba og okkur systkinum sem þín- um eigin. Þú varst og verður allt- af afi. Afi Guðni sem hafði svo góða nærveru, sem við gátum rætt við um allt milli himins og jarðar og sem eldaði alvöru sveitamat. Afi sem stakk á okkur nokkrum krónum þegar við kvöddum sem við, eins og þú orð- aðir það, áttum að eyða í eitthvað gott á leiðinni suður. Afi sem hafði óteljandi sögur að segja, afi sem þótti vænt um og passaði upp á okkur, og afi sem alltaf hafði knús reiðubúið við brottför. Ég átti bókaða ferð til Íslands frá Noregi núna í lok september til þess eins að fá að minnsta kosti að knúsa þig einu sinni í viðbót og jafnvel smella einum kossi á kinn- ina þína. Því miður var ég of sein, en ég vona virkilega að þú hafir vitað að ég hugsaði mikið til þín þótt fjarlægðin hafi verið mikil. Það er huggun í tilhugsuninni um að þú sért kominn á betri stað, stað án sjúkdóma og verkja, en enn meiri huggun í að vita að við frændsystkinin, öll 13, höfum eignast verndarengil sem mun vaka yfir okkur. Sofðu rótt, elsku afi. Sjáumst síðar. Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.