Morgunblaðið - 14.10.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.10.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég hef samanlagt búið íNoregi í næstum í tutt-ugu ár, en ég tók mérsmá frí og kom til Íslands í tæp þrjú ár. Ég fékk mér ekki kindur fyrr en við keyptum sveitabæinn okkar fyrir sex árum. Mig hafði lengi langað til að vera með kindur, enda er ég alinn upp á Ströndum, á Drangsnesi, þar sem ég var í sveit hjá Ingólfi Andréssyni frænda mínum í fjöldamörg sumur. Ég vann lengi skrifstofuvinnu hér í Noregi og fann vel fyrir því að þar var ég á röngum stað, ég var ekki að vinna við það sem tengist mínu eðli. Ég var með íslenska hesta í mörg ár af mínum Noregsárum og það full- nægði þörf minni fyrir að umgang- ast lifandi skepnur, en núna er ég einvörðungu með kindur. Jú, og líka einn fjárhund, sem sinnir starfi sínu mjög vel,“ segir Vignir Arnarson sem býr á sveitabæ í Noregi ásamt konu sinni Katrínu Markúsdóttur og sex af börnum þeirra. Bærinn er í More og Romsdal, en það er í tveggja tíma fjarlægð frá Þránd- heimi. Yfir hundrað heimalningar Féð hans Vignis er af tveimur ólíkum stofnum, um áttatíu prósent þess eru af norsku kyni sem kallað er norsk hvít. „Hin tuttugu prósentin eru af ensku fjárkyni, Suffolk, og kostur þessa enska kyns er að þær kindur eru nánast alltaf tvílembdar. Þær norsku hvítu eru aftur á móti of frjó- samar, það er ekki óalgengt að þær séu fjór- og fimmlembdar og geta líka verið sexlembdar. Við látum enga kind fara með fleiri en tvö lömb á fjall, en fyrir vikið vorum við með hundrað og fjörutíu heimalninga í sumar,“ segir Vignir og hlær, en bætir við að þau séu með góða að- stöðu fyrir heimalninga. „Við erum með mjólkurvél og lömbin geta drukkið heita mjólk hvenær sem þau vilja. Við ölum þau á mjólk þar til þau hafa náð því að verða um sextán kíló. Eftir það fara þau á beit í haganum.“ Fer í frí þegar hinir heyja Vignir hefur gert fjárbúskapinn að sínu aðalstarfi, en Katrín vinnur frá búinu, hún er í fullu starfi sem hjúkrunarfræðingur. Alsæll íslenskur fjárbóndi í Noregi Það átti ekki við hann að vinna skrifstofuvinnu svo hann keypti bóndabæ og fékk sér kindur. Vignir og Katrín búa í Noregi og þau verða með þrjúhundruð og fjöru- tíu fullorðnar kindur á vetrarfóðrum á komandi vetri. Fjárkynið, norsk hvít, er heldur frjósamt, þær verða stundum sexlembdar og heimalningar því margir. Góðir vinir Viggó Freyr og fjárhundurinn Lad saman í fjárhúsinu. Sagnfræðingurinn Eggert Þór Bern- harðsson lést fyrir aldur fram þegar hann varð bráðkvaddur á gamlársdag árið 2014. Hann var kennari í sagn- fræði við Háskóla Íslands frá 1987 og haustið 2006 varð hann dósent og síðar prófessor í hagnýtri menningar- miðlun. Á sviði sagnfræði var starf Eggerts einkum tengt Reykjavík, sögu og þróun borgar og sendi hann meðal annars frá sér bækurnar Saga Reykjavíkur 1-2 Borgin 1940-1990, Undir bárujárnsboga, Braggalíf í Reykjavík 1940-1970, og Sveitin í sál- inni – Búskapur í Reykjavík og mynd- un borgar. Á morgun laugardag kl. 15 - 17 verður í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands minningarþing um Eggert. Að því standa Sagnfræðistofnun Há- skóla Íslands, Sagnfræðingafélag Ís- lands og Sögufélag í samstarfi við Háskóla Íslands, Þjóðminjasafn Ís- lands og Landsbankann. Yfirskrift minningarþingsins er: Færði almenningi söguna, og þar ætla ýmsir að halda erindi, m.a mun Guðmundur Hálfdanarson, forseti Hugvísindasviðs, flytja erindi um fræðimanninn Eggert. Ármann H. Gunnarsson menn- ingarmiðlari og Halla Kristín Einars- dóttir kvikmyndagerðarmaður munu sýna stuttmynd um sögu deildar- innar Hagnýt menningar miðlun, deild sem er í sagnfræðiskor á MA stigi við Háskóla Íslands, en Eggert stóð fyrir því að stofna hana með hjálp Landsbankans. Í dag er þessi deild afar vinsæl. Sumarliði R. Ísleifsson, lektor í hagnýtri menningarmiðlun, flytur er- indið „Við urðum sjálfir að setja blað- ið“ um Eggert Þór og miðlun sög- unnar. Gunnar Theodór bókmenntafræð- ingur og sonur Eggerts flytur erindið Tölvuleikir og menningarmiðlun – Hugleiðingar unglingsins á heim- ilinu. Að loknum þessum erindum verður tónlistarflutningur þar sem verkið Sakna verður frumflutt af þessu til- efni, en textann gerði Þórunn Jarla Valdimarsdóttir og lagið er eftir Lilju Valdimarsdóttur í útsetningu Völu Gestsdóttur. Lilja spilar á horn, Vala spilar á lágfiðlu, Andrea Gylfadóttir spilar á selló, Þórarinn Heiðar Harð- arson á gítar og Þórunn syngur eigin texta. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann- esson, opnar að þessu öllu loknu ljós- myndasýningu Eggerts Þórs Bern- harðssonar: Myndir tala. Þar verða til sýnis fimmtán tvennur. Umsjónarmenn sýningarinnar eru synir Eggerts, þeir Gunnar Theodór og Valdimar Ágúst. Sýningarstjóri er Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafns Reykjavíkur, og fundarstjóri verður Anna Agnars- dóttir prófessor. Allir velkomnir og léttar veitingar í boði. Minningarþing um Eggert og ljósmyndasýning Morgunblaðið/Ómar Sagnfræðingur Eggert með bókina sína, Horfinn heimur höfuðborgarinnar. Hann færði almenningi söguna Ég tek strætó í vinnunanánast alla morgna. Þaðer ekki í frásögur fær-andi nema fyrir þær sak- ir að ég bý í Hlíðunum og tek strætó upp í Árbæ. Þetta eru þrír vagnar sem ég þarf að taka og er það eiginlega bara heppni séu þeir allir á réttum tíma, enda hef ég oft lent í því að þurfa að bíða í Ártúni vegna þess að tengi- vagninn er farinn áður en sexan kemur. Ég veit vel að ég er að tuða og trúið mér, þetta er ekki í fyrsta skipti. Það sem fer þó sennilega meira í taugarnar á mér en hið óáreiðanlega strætókerfi Reykja- víkur, er fólk á bíl sem segir mér að það sé nú bara fínt að taka strætó. Fólk sem notar ekki strætó á ekki að tjá sig um ágæti þess að taka strætó! „Ég væri alveg til í að skilja bílinn eftir einhvern tímann og taka strætó í vinn- una.“ Jú, jú, það er alveg notaleg tilhugsun á góð- viðrisdögum þegar maður er í stuði en... Á vindasömum mánudagsmorgni er bíllinn þó líklega besti vinur þinn. Þeir sem taka strætó langa vegalengd daglega hafa ekki þolin- mæði í rómantískar hugmyndir bíl- eigandans. Við nennum heldur ekki að hlusta á hvað þér finnist gaman að fara með krakkana í strætó um helgar í rólegheitunum, þegar við komum pirruð og köld inn eftir labbið úr strætóskýlinu. Síðan eru aðrir sem benda mér á það að vinnustað- urinn minn sé svo langt í burtu að auðvitað sé þetta svona. Já, takk fyrir þetta innlegg. Ég hvet því alla for- réttindapésa (bílaeig- endur) um að þegja þegar strætónotandinn tuðar yfir reynslu sinni. Við nennum ekki að hlusta á hvað þetta sé gam- an. »Fólk sem not-ar ekki strætó á ekki að tjá sig um ágæti þess að taka strætó! Heimur Sigurborgar Selmu Sigurborg Selma sigurborg@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.