Morgunblaðið - 14.10.2016, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.10.2016, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016 maður, hagyrtur og stutt var í húmorinn og brosið. Eitt skipti við sauðburð tapaðist hringur og vor- um við vinkonurnar heldur skúff- aðar yfir því. Hann sagði okkur að örvænta ekki, það myndi líklega fæðast lamb að ári með hring í nefinu. Sigþór var góður söng- maður og hafði gaman af því að taka lagið. Jákvæður var hann og gerði gott úr hlutunum, samanber hrós hans á sönghæfileikum mín- um þrátt fyrir óumdeilt lagleysi. Sigþór var mikill reiðmaður og ógleymanlegar eru margar skemmtilegar minningar sem tengjast smalamennsku. Hann hafði einstakt jafnaðargeð og það var sama hvaða óskunda við Ósk gerðum, aldrei skipti hann skapi. Mér er minnisstætt að í eitt skipt- ið þegar við höfðum verið að snúa, mættum við í hlaðið með nánast teinalausa snúningsvél eftir að flestir teinarnir höfðu þeyst um túnin, þá brosti bara Sigþór og spurði hvort við hefðum ekki farið heldur geyst í þetta skiptið. Ég þakka forsjóninni fyrir að hafa fengið að kynnast þessum höfðingja og fjölskyldu hans. Elsku Gerður, ég votta þér, dætrum þínum og fjölskyldum mína dýpstu samúð. Megi guð styrkja ykkur í sorginni. Guð geymi Sigþór. Góðar minningar um hann munu lifa. Kamma. Minningarnar byrja að streyma fram þegar ég minnist vinar og í raun eins úr kjarnafjöl- skyldunni, Sigþórs Jónssonar frá Norðurhjáleigu. Við Sigþór áttum sama afmælisdag og þegar ég fór að muna aðeins eftir mér eru Sig- þór og Gerður hluti af þeirri minn- ingu, þau bjuggu niðri hjá mömmu og pabba á Tryggvagötunni, allt þar til ég var átta, níu ára gamall. Gerður og mamma unnu á sama stað vaktavinnu, Sigþór og pabbi keyrðu á tímabili flutningabíl milli Reykjavíkur og Selfoss, annar sá um að fylla stórvörurnar á bílinn og hinn fór á milli heildsalanna í Reykjavík og smalaði saman vörum sem þurfti að koma á Sel- foss. Síðar fór Sigþór að keyra ol- íubíl og pabbi rútur. Samgangur- inn á milli efri og neðri hæðar var eðlilega mikill, ég fæddur 58 og dóttirin Guðbjörg Svava fædd 62 og hélt þessi samgangur áfram eftir að þau fluttu á Engjaveginn. Til eru margar flottar myndir af ferðalögum þessara tveggja fjöl- skyldna á þessum árum. Við Sig- þór áttum eitt sinn sem oftar skemmtilegt samtal niðri í eldhúsi á Tryggvó, samtal sem fer aldrei úr minni mínu og hefur á margan hátt verið mér ákveðin hvatning gegnum lífið, þar sem við veltum fyrir okkur árangri mínum í einu af mínum fyrstu prófum í barna- skóla, árangri sem ekki var hægt að hrópa húrra fyrir, ég tók af honum loforð sem ég held að ég hafi staðið nokkurn veginn við, lof- orð sem hefur oft minnt mig á lífið og lífsbaráttuna í hinum margvís- legu markmiðum sem við erum stöðugt að fást við í lífinu. Sigþór og Gerður voru með hesta hér á Selfossi, ég var mjög ungur þegar ég fékk skjótt folald að gjöf frá foreldrum mínum. Fyrstu árin var ég með hestinn hjá þeim hjónum á húsi hér á Selfossi, eða þar til þau fluttu í sveitina. Kunnátta mín í hestamennsku byggist að miklu leyti á því sem Sigþór og Gerður hafa kennt mér, ég veit, Sigþór, ég þarf að fara að bæta við þá þekk- ingu. Nokkur skipti reið ég einn frá Selfossi austur að Varmadal og í tvígang kom ég við í Ási og var þá riðið á móti og mér fylgt áfram. Fleiri hestaferðir fórum við saman svo ekki sé talað um fjallferðirnar inn á Rangárvallaafrétt, ógleym- anlegt. Gagnkvæm vinátta og virðing hefur verið á milli okkar Sigþórs í gegnum árin, vinátta sem ég og mín fjölskylda þökkum fyrir. Elsku Gerður og fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur frá okkur Rúnu og fjölskyldu. Óskar Guðbjörn Jónsson. ✝ Jóhanna Dag-fríður Arn- mundsdóttir Back- man fæddist 7. janúar 1923 á Akranesi. Hún lést á dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund 10. október 2016. Foreldrar henn- ar voru Arnmund- ur Gíslason kaup- maður, f. 3. mars 1890, d. 10. apríl 1978, og Ingiríður Sig- urðardóttir húsfreyja, f. 28. apríl 1893, d. 28. júlí 1978. Systkini hennar voru Jófríður María, f. 17. nóvember 1917, d. 11. nóvember 2003, Sig- urður Bjartmar, f. 27. desem- ber 1925, d. 17. apríl 1986, Sveinbjörg Heiðrún, f. 15. febrúar 1927, d. 16. febrúar 2010, og Arnfríður Inga, f. 3. apríl 1928, d. 14. maí 1999. Jóhanna giftist Halldóri Sig- urði Backman húsasmíðameist- ara, f. 30. janúar 1922, d. 20. janúar 1984. Börn þeirra eru: 1) Arnmundur S. Backman, f. 15. janúar 1943, d. 11. sept- ember 1998, maki Valgerður Bergsdóttir, f. 13. nóvember 1943. Börn þeirra eru Val- að á Akranesi fyrstu áratugi hjúskapar síns þar sem þau, í samvinnu við vinafólk, byggðu sér reisulegt hús að Skagabraut 5. Þau fluttu til Reykjavíkur árið 1962 og áttu falleg heimili í Fossvoginum og síðar við Sóleyjargötu. Jó- hanna ræktaði húsmóð- urhlutverkið í anda kærleika, natni og með söngívafi því hún var listasöngvari og söng í kirkjukór alla tíð. Hún vann einnig utan heimilis, annaðist m.a. rekstur Heilsulind- arinnar á Hverfisgötu í upp- hafi áttunda áratugarins. Jó- hanna var mikil hannyrðakona og var ein af stofnendum Handprjóna- sambandsins árið 1977, en markmið þess var að stuðla að bættum kjörum kvenna í handiðnaði. Hún gerðist þar verslunarkona með prjónavör- ur um árabil. Síðustu árin dvaldi hún á dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund þar sem hún fékk góða aðhlynningu. Á Grund hafði hún einmitt unnið við umönnun eldra fólks sem ung stúlka, þá 17 ára gömul. Útför Jóhönnu fer fram frá Háteigskirkju í dag, 14. októ- ber 2016, klukkan 15. gerður Margrét, f. 1967, Halldór Helgi, f. 1972, og Margrét, f. 1974. 2) Inga Jónína Backman, f. 21. júní 1947, unnusti Friðrik Páll Jóns- son, f. 22. nóv- ember 1946. Börn Ingu eru Jóhanna Björk, f. 1967, Friðrik Karl, f. 1969, og Ingi Örn, f. 1974, faðir þeirra er Friðrik Örn Weisshappel, f. 1945. 3) Ernst Jóhannes Backman, f. 16. sept- ember 1951, maki Ágústa Hreinsdóttir, f. 11. september 1956. Börn Hafrún Rut, f. 1973, móðir Kristjana Gests- dóttir, f. 1950, Elma Jóhanna, f. 1978, Ágústa Ósk, f. 1983, og Inga María, f. 1987. 4) Edda Heiðrún Backman, f. 27. nóv- ember 1957, d. 1. október 2016. Börn Eddu eru Arn- mundur Ernst B. Björnsson, f. 1989, faðir Björn Ingi Hilm- arsson, f. 1962, og Unnur Birna J. Backman, f. 1998, fað- ir Jón Axel Björnsson, f. 1956. Langömmubörn hennar eru 22 talsins. Jóhanna og Halldór settust Elsku besta amma Hanna. Ég er mjög stolt af því að vera skírð í höfuðið á þér. Það var alltaf svo huggulegt að heim- sækja þig, þú gafst þér ávallt tíma til að taka vel á móti mér og mínum með mikilli vænt- umþykju og faðmlagi. Þú dekr- aðir við okkur, ýmist með besta lambalæri í heimi, sem þú sagð- ir þó að væri „örugglega óætt“, eða með tertum og öðru góð- gæti sem sló öllu við þrátt fyrir að þú segðir að þú „ættir eig- inlega ekkert með kaffinu“. Enginn gat bakað eins fallegar pönnukökur og þú. Við bakstur fer ég alltaf eftir ráðleggingum þínum um að setja alltaf eitt auka egg. Ég hef margoft reynt að baka Bessastaðakökurnar eins lýtalausar og þú gerðir en það hefur mér aldrei tekist. Einnig kenndir þú mér að út- búa rifsberjahlaup, það tærasta og fallegasta. Ég man vel eftir veiðiferðunum með þér, afa og fleirum í fjölskyldunni. Þú gast staðið tímunum saman með veiðistöngina enda varstu þú mikil veiðikló. Þú varst líka svo mikil dama, þekkt fyrir glæsi- leika, alltaf vel tilhöfð og smekkleg í klæðaburði. Man hvað það var mikið ævintýri þegar við frænkurnar á barns- aldri fengum að klæðast tjull- náttkjólum og hælaskóm á Sól- eyjargötunni og halda tískusýningu fyrir fullorðna fólkið. Þá hlóst þú manna mest. Einnig var ég svo heppin að eignast hvíta perlukjólinn þinn, silfurskóna og silfurveskið, sem þú notaðir þegar þú varst á mínum aldrei. Nýlega, um fjór- um áratugum seinna, mætti ég í þessum fínheitum á árshátíð, sló í gegn enda ennþá hámóðins klæðnaður. Í sláturgerð varst þú þó engin pjattrófa. Þú sást um að hræra öllu saman, salta og smakka til, en það hef ég aldrei getað hugsað mér að prófa. Þú kenndir okkur frænk- unum að sauma vambir og ég man vel eftir því hve okkur fannst lyktin af vömbunum ógeðsleg en þú sagðir að þér þætti lyktin „eins og af besta ilmvatni“. Þú elskaðir söng og tónlist. Mér eru minnisstæð ár- in sem við sungum saman ásamt mömmu í Neskirkju- kórnum, þrjár kynslóðir saman. Ég er þakklát fyrir allar góðu samverustundirnar, amma mín, í ferðalögum, heima hjá þér og seinni ár þegar þú varst hjá okkur í heimsóknum, af- mælum og stundum á hátíðum. Þú varst alltaf tilbúin að hjálpa til, veita góð ráð og hafðir alltaf áhuga á því sem við höfðum fyrir stafni. Ég veit að þú ert á góðum stað núna, hjá Halla afa og börnunum þínum, Arnmundi og Eddu Heiðrúnu, sem og fjöl- mörgum öðrum látnum ástvin- um. Þín dótturdóttir, Jóhanna Björk W. Það er ekki hægt að hugsa um ömmu Hönnu án þess að hugsa um perlufestar, Chanel nr. 5 og naglalakk. Því hún amma Hanna var án efa ein glæsilegasta amman á Íslandi. Hún var heillandi í framkomu og hafði líka svo fallegan og smitandi hlátur. Við systur minnumst góðra stunda með henni bæði á Sól- eyjargötu og svo síðar meir á Aflagranda þangað sem hún flutti eftir að afi Halli lést. „Sæl, amma mín,“ átti maður að segja, því að segja „hæ“ þótti henni alls ekki góð ís- lenska. Hún amma vildi nefni- lega að við töluðum vandað ís- lenskt mál. Hún var líka ekkert að skafa utan af hlut- unum. Hún var hreinskilin og sagði hlutina beint út, eins og þeir voru. Hnyttin gat hún líka verið og húmorinn var aldrei fjarri og henni fannst ekkert verra ef grínið var á hennar kostnað. En umfram allt var hún hlý og brosmild og sparaði ekki fal- legu orðin til barnabarnanna sinna. Það var líka mikilvægt að eiga nóg með kaffinu enda erum við systur sammála um að hjá ömmu Hönnu fékk mað- ur bestu pönnukökur í heimi. Okkur langar að enda á ljóði sem mun alltaf minna okkur á ömmu Hönnu og er okkur í fjölskyldunni mjög kært: Búddi fór í bæinn og Búddi fór í búð. Búddi sat á torginu og var að borða snúð. Þá kom löggumann og hirti hann og stakk honum ofan í rassvasann. (Höf. ók.) Hafrún Backman, Elma Jóhanna Backman, Ágústa Ósk Backman, Inga María Backman og fjölskyldur. Hún var falleg hún Hanna Backman og einhvern veginn var allt í kringum hana fallegt. Hún var fallega klædd, átti fal- legt heimili, börnin hennar voru falleg og ekki síst var söngröddin hennar fögur. Það var gott að vera í návist við hana og fjölskylduna alla. Við fjölskyldurnar á Skagabraut 5 á Akranesi deildum gleði og sorgum í fleiri áratugi. Sam- býlið var einstakt, þarna ól- umst við upp krakkarnir við leik og störf. Aldrei man ég eft- ir árekstrum, hvorki foreldra okkar, þó ólík væru, né okkar krakkanna. Já, ólík voru þau foreldrarnir á Skagabrautinni. Pabbi, stór, sterkur, rólegur hugvitsmaður. Mamma, snör, kraftmikil og virk í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Halli, eldfjörugur, fljóthuga, hug- myndaríkur og með ómælda frásagnargáfu og Hanna, spaugsöm, ljúf, hæglát, fögur og kvenleg svo af bar. Allt þetta fólk, sem nú hefur kvatt, gerði æskuna svo trygga og örugga. Já, það var margt brallað og hvað þau voru virk með okkur krökkunum. Þau voru með okk- ur á skautum og drógu okkur í halarófu á treflunum. Þau byggðu með okkur snjóhús úti í garði og við fengum kertaljós og nesti. Þau ræktuðu með okkur jarðarber, radísur og rabarbara og ekki má gleyma allri kartöfluuppskerunni á haustin. Þau voru umboðsmenn Þjóðviljans og við krakkarnir dreifðum þeim í hús til þeirra er keyptu slíkt blað – en stund- um fengum við tóninn yfir ill- viljanum og kommúnistaskríl og fleira í þeim dúr. En út var blaðið sent frá „Kreml“ við rauða torgið, en það nafn fékk húsið okkar af hugsjónafólkinu sem þar bjó. Já, fallegt var heimilið henn- ar Hönnu á Skagabrautinni – ég man sem stelpa hversu fal- lega var alltaf búið um rúmið hjá henni. Það var gulbrúnt glansandi satínteppi með blómamunstri á miðjunni og það var svo rennislétt að ég var eiginlega viss um að Halli hefði skorið krossviðarplötu til að leggja ofan á sængurnar – en svo var auðvitað ekki. Ég hef reynt að leika þetta eftir en sjaldnast tekist. Ekki má gleyma aríunum sem hljómuðu „fyrir handan“. Það var ótrú- legt hvað hún náði háa tón- inum, hún Hanna. Ég sé hana fyrir mér með mikið hár, þunna slæðu bundna létt yfir hárið, í hælaháum skóm tiplandi á milli drullupollanna á leið niður í kirkju að syngja við messu á sunnudögum. Hanna var nefni- lega alltaf fín, hún var meira að segja fín þegar hún fór út á snúru að hengja upp þvott. Hún var með einhverjum óskiljanlegum hætti líka fín og falleg í kartöflugarðinum. Feg- urðin sem fylgt hefur henni alla tíð birtist okkur ljóslifandi í barnabörnunum hennar – öllum fallegu stúlkunum hennar sem báru kransa við útför Eddu Heiðrúnar nú í vikunni. Hver annarri fallegri. Við systurnar „fyrir handan“ viljum senda Ingu, Ernst og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur og þökkum fyrir einlæga og djúpa vináttu. Hrafnhildur Sigurðardóttir. „Ég á ekkert með kaffinu,“ segir amma og bætir áttundu kökunni á borðið ásamt fullri skál af þeyttum rjóma. „Ætlið þið ekki að fá ykkur meiri rjóma með þessu?“ spyr hún svo, lagar aðeins hárið og bros- ir. Það var yndislegt að heim- sækja ömmu. Hún hafði áhuga á að heyra hvernig gengi, hvað væri að frétta af langömmu- börnunum, hverjum strákarnir líktust, vildi sjá myndir og segja sjálf frá hvað væri í frétt- um af hinum og þessum. Hún fylgdist vel með öllu sínu fólki, allt fram á síðustu daga. „Er hann ekki búinn að fá súkkulaði,“ spurði hún mig eitt sinn þegar ég kom með Arn- mund minn á fyrsta ári til hennar. „Nei, amma mín, við viljum bíða aðeins með það.“ „Já en hann verður að fá að smakka súkkulaði, drengur- inn,“ segir hún og laumar litlum mola í munn hans. Svona var amma. Börn áttu ekki að fara á mis við unaðssemdir súkkulaðisins. Amma var nefni- lega besti bakari og sælkeri í heimi. Enginn í fjölskyldunni hefur náð slíkri list við pönnu- kökurnar, terturnar og jólasmákökurnar, þó fínt sé það. Minningar frá Sóleyjargöt- unni eru sterkar. Við frænd- systkinin á jólunum, fallega skreytt jólatré með dáleiðandi litríkum kúlum, veisluborð hlaðið kræsingum, hlátur, söng- ur, leikur, gleði og glens. „Er hann farinn að syngja?“ Amma spurði mig reglulega að þessu þegar ég eignaðist syni mína þrjá. Það var henni mik- ilvægt að það væri sungið fyrir börn og að börn hefðu lag, fengju tónlistarlegt uppeldi. Hún varð svo gleðin uppmáluð þegar ég sýndi síðar myndbönd af sonum mínum syngjandi. Ég kveð yndislega ömmu með þakklæti fyrir tímann sem ég fékk með henni. Margrét. Jóhanna Dagfríður Arnmundsdóttir Backman Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR JÓSEFSSONAR frá Torfufelli. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunar- heimilisins Lögmannshlíðar fyrir frábæra umönnun. . Börn hins látna og fjölskyldur. Konan mín og besti vinur, KOLBRÚN DEXTER, Andrésbrunni 4, er látin. Útför hefur farið fram. Þeir sem vilja minnast hennar láti félag aðstandenda alzheimersjúklinga njóta. Fyrir hönd fjölskyldunnar, . Björn Másson. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug í kjölfar andláts og útfarar DÓRU PÁLSDÓTTUR, Tjarnargötu 44, Reykjavík. . Jens Tollefsen Páll Ásgeir Davíðsson Þórdís Filipsdóttir Tryggvi Björn Davíðsson Fabienne Soulé Davíð Tómas Davíðsson Elísabet Hafsteinsd. og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN ÓLAFÍA FINNBOGADÓTTIR, andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund 12. október. Fyrir hönd aðstandenda, . Helgi Valdimarsson Sigríður G. Valdimarsdóttir Aðalheiður Valdimarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.