Morgunblaðið - 14.10.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.10.2016, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Bleika slaufaner orðin aðtákni fyrir baráttuna gegn brjóstakrabba- meini. Undanfarin ár hefur Krabba- meinsfélagið blásið til söfnunar með sölu á bleiku slaufunni og nú er það gert undir yfirskrift- inni „fyrir mömmu“. Markmiðið er að nota féð, sem safnast með sölu barmnælunnar, til að kaupa þrjú tæki til leitar á brjósta- krabbameini. Mun þörfin á end- urnýjun vera orðin brýn. Um leið er tækifæri til að benda á mikilvægi reglulegrar leitar. Þótt framfarir hafi orðið í krabbameinslækningum er staðan þó enn sú að mestar lík- ur eru á bata ef meinið greinist á frumstigi. Að meðaltali grein- ast 210 konur á ári með brjósta- krabbamein á Íslandi. Með- alaldur við greiningu er 62 ár. Þrjú þúsund konur, sem greinst hafa með krabbamein, eru á lífi í dag. 40 konur látast úr brjóstakrabba á ári hverju. Talið er að kerfisbundin leit að brjóstakrabba geti lækkað dán- artíðni af völdum þess um allt að 40%. Lífslíkur hafa aukist verulega og lifa 90% þeirra sem greinast lengur en fimm ár eftir greiningu. Lögð hefur verið áhersla á að konur fari reglulega í brjósta- myndatöku eftir að þær ná 40 ára aldri og skoði brjóstin reglulega. Oft finnst mein vegna þess að konur verða sjálfar varar við hnút af tilviljun. Orsakir brjósta- krabbameins eru ýmsar. Á heimasíðu Krabba- meinsfélagsins kemur fram að eitt af hverjum tíu tilfellum megi rekja til erfða, nánar til- tekið stökkbreytinga í til- teknum genum. Hin arfgengu afbrigði koma fram fyrr á æv- inni en önnur. Einnig eru til- greindar sem ástæður horm- ónar, offita, áfengisneysla, röskun á lífklukku vegna vakta- vinnu og skortur á hreyfingu. Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir, kynningar- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands, segir í samtali við Morgun- blaðið í dag að það þurfi alltaf að minna konur á að koma í krabbameinsleit: „Fjöldi þeirra sem koma í skoðun eykst alltaf í tengslum við svona átak,“ segir hún. „Mætingin hefur verið góð í heild, eða um 68%, sem er með því besta sem gerist en við vilj- um gjarnan sjá þessa tölu fara upp í 80%.“ Mörg fyrirtæki eru reiðubúin að leggja hönd á plóg til að hjálpa Krabbameinsfélaginu. Hryggjarstykkið er þó velvilji almennings. Í dag er bleiki dag- urinn og þá er tækifæri til að láta gott af sér leiða í þágu mæðra okkar allra. Krabbameinsfélagið hefur unnið þrek- virki í baráttunni gegn brjóstakrabba} Bleika slaufan Ákvörðunsænsku nób- elsnefndarinnar hefði glatt gamla Nobel. Hvernig getum við vitað það? Vegna þess að hún kom eins og sprengja. Það vekur nokkra athygli að góðir rithöfundar og gagnrýn- endur halda því sumir fram að nefndin hafi farið út af sporinu. Þeir sem lengst ganga segja að nefndin sé með þessari ákvörð- un komin á plan með nefnd um friðarverðlaun Nóbels, sem upp á síðkastið hefur dottið í alla þá pytti sem hún gat með lúsarleit fundið. Bob Dylan er söngva- skáld og það flækist fyrir sum- um núna. Það eru til ótal ljóð og sum ómannblendin, sem engum hefur dottið í hug að gera lag við og syngja. Ljóð Dylans standa óstudd og liggur ekki í augum uppi hvort kemur á und- an lag eða ljóð. Hvernig getur nokkrum manni dottið í hug að snjallt lag felli gengi ljóðsins sem kallaði á það? Jónas var löngu farinn þegar að Inga T. bar að. Ella hefði hann örugglega beðið feginsamlega að heilsa honum. Það hefði reyndar verið stórslys ef lag og ljóð hefðu farist á mis. „Dylan er skemmtikraftur fremur en skáld,“ segja menn núna, af því að hann gaf ljóð sín út á plötum, eins og það breyti einhverju. Er Shakespeare verri en hin skáldin þar sem verk hans voru flutt en ekki les- in? Það er ábót á góða ákvörðun að henni fylgdi sprengja og fjarri því fyrsti hvellurinn frá Bob Dylan. Nóbelsnefndin veitti Win- ston Churchill bókmenntaverð- launin á sínum tíma. Sá átti svo sannarlega allt gott skilið. Og það var ekki af vanþakklæti sem hrökk upp úr honum við fréttirnar: Ég vildi frekar hafa fengið friðarverðlaunin en bók- menntaverðlaunin. Bob Dylan hefði raunar get- að risið betur en margur annar, sem fengið hefur, undir hvorum tveggja þessum verðlaunum. Sænska Nóbelsnefndin fór ekki öfug framúr í þetta sinn} Ég bið að heilsa Nóbelsnefndinni Þ að vakti mikla athygli þegar Unnur Brá Konráðsdóttir, þingkona Sjálf- stæðisflokksins, gaf sex vikna gam- alli dóttur sinni brjóst á meðan hún hélt ræðu á Alþingi í fyrradag. Brjóstmylkingar eru sjaldséðir í ræðustól Al- þingis, reyndar mun þetta vera í fyrsta skiptið sem einn slíkur kemur í pontu, a.m.k. meðan á þingfundi stendur. Glöggir bentu á að þar með hefði litla stúlkan mætt betur á þingfundi und- anfarna mánuði en Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, en það er önnur umræða. Ýmsar merkingar hafa verið lagðar í þetta sem virðist stefna í að verða frægasta brjóstagjöf Íslandssögunnar. Til dæmis að þarna hafi hægri flokkarnir sýnt og sannað í eitt skipti fyrir öll að jafnrétti kynjanna og femínismi sé síður en svo einkamál vinstri flokkanna. (Líklega var Unnur Brá ekki mikið að hugsa um það þegar dóttir hennar var svöng og þurfti að fá að drekka.) Og eins og við mátti búast hefur þetta atvik verið jól, áramót og páskar fyrir hneyksl- unarpúka sem hafa m.a. kallað þingkonuna athyglissjúka brjóstabínu. En þeir eru miklu fleiri sem hafa lýst yfir velþóknun sinni, Unnur Brá var t.d. kölluð valdeflandi og töffari á Twitter og þar sagði líka einhver að þetta hefði verið það fallegasta sem almenningur hefði fengið að sjá úr sölum Alþingis svo árum skipti. Það má svo sannarlega taka undir það. Svo hefur brjóstagjöf Unnar Bráar vakið athygli langt út fyrir landsteinana, fjallað hefur verið um hana í fjölmiðlum víða um heim og atvikið nefnt sem dæmi um hversu frjálslynt og femínískt land Ísland er. Sjálfri finnst þingkonunni lítið til koma og bendir á að hún sé einfaldlega nýbökuð móðir með barnið sitt í vinnunni og það hafi þurft að fá mjólk að drekka. Hún brást við því og þurfti á sama tíma að fara í ræðustól Alþingis til að svara atkvæðaskýringu annars þingmanns. „Er þetta ekki bara eðlilegasti hlutur í heimi, að gefa barninu sínu að borða?“ spurði Unnur Brá í við- tali við mbl.is. Sumar athugasemdirnar sem hafa birst á samfélagsmiðlum um brjóstagjöfina á Alþingi fá mann til að velta fyrir sér hvort það sé virkilega búið að kynlífsvæða brjóst kvenna svoleiðis í drasl að margir séu hreinlega búnir að stein- gleyma að það er líka hægt að nota þau til að gefa litlum börnum mjólk að drekka. Konubrjóst eru blygðunarlaust notuð í auglýsingum til að selja hamborgara, súkkulaðistykki, ilmvötn, bíla, skó, nær- buxur og eiginlega bara hvað sem er. Þeir sem gera at- hugasemdir við slíkar auglýsingar eru gagnrýndir fyrir að vera gamaldags teprur, stundum af þeim sömu sem finnst það vera dónalegt og óviðeigandi að gefa barni brjóst á al- mannafæri. Brjóstmylkingurinn litli í sal Alþingis fékk að drekka hjá mömmu sinni og hefur vonandi sofnað vært að því loknu. Hugsunin náði örugglega ekki lengra en að seðja hungrið, en alls óafvitandi kom litla krúttið með þarfa áminningu um að brjóst eru til margra hluta nytsamleg. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Brjóstmylkingur í pontu Alþingis STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Viðbrögð fólks við áföllumeru eins mismunandi ogfólk er margt. Æ fleirumverður þó ljóst að aðstoð við þá sem lent hafa í slysum, upp- lifað stríðátök eða að lífi sínu eða sér nákominna sé ógnað – svo eitthvað sé nefnt – verður alltaf að taka mið af andlegri líðan viðkomandi,“ segir Þóra Sigfríður Einarsdóttir sálfræð- ingur. „Hefðbundin skyndihjálp, sem til dæmis er kennd á nám- skeiðum, miðar að því að bjarga lífi. Sálræn skyndihjálp þarf þó líka að vera til staðar, það er að sýna sam- kennd og umhyggju og aðstoða þann sem er í tilfinningalegu uppnámi að átta sig á aðstæðum.“ Komið í veg fyrir erfiðleika Alþjóðlegi geðheilbrigðisdag- urinn var síðastliðinn þriðjudag, 10. október. Fólk með geðraskanir og fleiri voru með fjölbreytta og fræð- andi dagskrá af því tilefni, en þema dagsins nú var sálræn skyndihjálp. Af því tilefni lét fólk í Sálfræðinga- félagi Íslands í sér heyra en innan vébanda þess eru sálfræðingar sem aðstoða fólk sem þarf aðstoð eftir áföll. Þóra Sigfríður, sem er varafor- maður félagsins, hefur mikið starfað með fólki í slíkum aðstæðum. Hún telur að sálræn skyndihjálp, þegar vofveiflegir hlutir gerast eða vondar fréttir berast, hefði getað hjálpað mörgum skjólstæðinga sinna. Í sum- um tilvikum jafnvel komið í veg fyrir erfiðleika sem viðkomandi hafi gengið í gegnum. „Sálræn skyndihjálp er ekki flókið fyrirbæri. Málið snýst um að vera til staðar og sýna þeim sem er í vanda samkennd og umhyggju,“ segir Þóra. Hún leggur áherslu á að á vettvangi sé hlustað á fólk í áfalli en ekki pressað á það að tala. Meta þurfi og tryggja grunnþarfir, svo sem koma með hlýtt teppi eða vatn eða annað slíkt eftir aðstæðum ef þess þá þarf. Einnig að virkja tengsl með því að koma á sambandi við vin eða fjölskyldu. Þá sé upplýsingagjöf til dæmis eftir bíl- eða flugslys mikil- væg svo þeir sem eftir verða fái upp- lýsingar um líðan þess eða þeirra sem fóru á sjúkrahús. Þóra segir framangreind bjarg- ráð byggð á gagnreyndum aðferðum sem dugað hafi ágætlega við sálræn- um áföllum. Mikilvægt sé að gefa lögreglu, slökkviliði, heilbrigðis- starfsfólki og öðrum ákveðinn ramma sem hægt er að starfa sam- kvæmt í aðstæðum sem oft séu yfir- þyrmandi öngþveiti. Áfallastreita getur þróast „En það geta fleiri aðstoðað en fagfólk. Mörg okkar fara á námskeið hjá Rauða krossinum og læra þar fyrstu hjálp: að blása lífi í fólk í and- nauð, hnoða í hjartastoppi og stöðva hættulegar blæðingar. Það væri af hinu góða ef sálræni þátturinn væri tekinn inn í kennsluna á skyndi- hjálparnámskeiðum. Mér finnst slíkt góð hugmynd,“ segir Þóra. Ákveðnir hópar eru fremur en aðrir útsettir fyrir andlegum áföllum sem geta haft alvarleg eftirköst. Börn sem verða viðskila við foreldra sína í margmenni og fólk sem hefur lent í alvarlegri lífs- hættu eða séð aðra verða fyrir alvarlegum skaða er í áhættuhópi. Eftir því sem áföllin verða fleiri eykst – og það eðlilega – hætta á að fólk þrói með sér áfallastreitu. Einna helst gerist slíkt þó þegar skaða er valdið af ásetningi, svo sem í kynferðis- brotum. Aðstoðin miðist við andlega líðan fólksins Morgunblaðið/Freyja Líf Andleg líðan skiptir öllu og stuðningur þegar á bjátar er mikilvægur. „Sálræn skyndihjálp getur spar- að miklar þjáningar og samfélag- inu stórar fjárhæðir,“ segir Þóra, sem undirstrikar að flestir nái sér – hjálparlaust – á strik án þess að þróa með sér raskanir. „Hvert samfélag ætti þó að skoða hvernig það getur dregið verulega úr þjáningum samborg- ara sinna með skýrum línum varðandi sálræna fyrstu hjálp. Án slíkrar skyndihjálpar geta áhrif þessara atburða orðið al- varleg. Þekkt er að geðraskanir geta þróast í kjölfarið, til dæmis kvíði, áfallastreituröskun, þunglyndi, vímuefnaneysla og fleira.“ – Norræn rann- sókn frá 2010 sýndi að 13,8% karla og 27,5% kvenna þróuðu með sér áfallastreituröskun í kjölfar hörmunga eins og ofbeldis, náttúru- hamfara, slysa og fleira. Sparar mikl- ar þjáningar SAMFÉLAGIÐ BREGÐIST VIÐ Þóra Sigfríður Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.