Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Síða 6
T ístvélar eru farnar að setja mik-inn svip á pólitíska umræðu.Ógerningur er að segja til um
hvaða áhrif notkun þeirra hefur, en
þær geta gefið skakka mynd af vin-
sældum eða óvinsældum tiltekinna
einstaklinga og hugmynda.
Tístvélar hafa verið áberandi í
kosningabaráttunni í Bandaríkj-
unum. Bæði Donald Trump, forseta-
frambjóðandi repúblikana, og Hillary
Clinton, forsetaframbjóðandi demó-
krata, styðjast við þessa tækni. Tíst-
vélar lítil, sjálfvirk forrit eða algórit-
mar, sem setja skilaboð inn á
félagsvefi.
Véltíst Trumps og Clinton
Vísindamenn undir forustu Philips
Howards, prófessors við Oxford-
háskóla, skoðuðu ummæli tengd við
myllumerki annars vegar til stuðn-
ings Trump og hins vegar Hillary eft-
ir fyrstu kappræður þeirra í sjón-
varpi. Alls voru níu milljónir tísta
skoðuð. Niðurstaðan var sú að tíst-
vélar bjuggu til 33% af ummælum til
stuðnings Trump og 22% af ummæl-
um til stuðnings Clinton. Talið er að
ganga megi út frá því að tístvélar séu
að baki reikningum þar sem sett eru
inn meira en 50 skilaboð á dag.
„Við vitum ekki hver býr til vél-
arnar, hvort það eru kosninga-
herbúðirnar, stuðningsmenn, fram-
bjóðendurnir,“ sagði Howard við
vefinn CNNMoney. Hann bætti því
við að þó að framlagi tístvélanna
væri sleppt væri meira tíst í þágu
Trumps heldur en Clinton.
Tístvélar taka sjálfkrafa til máls á
netinu. Þeim fylgja upplýsingar um
notendur og myndir þannig að um
raunverulegan einstakling virðist
vera að ræða. Hægt er að kaupa
mörg þúsund gervinotendur fyrir lít-
ið fé. Talað er um heilu herina, sem
sjá um að koma málstað eiganda síns
á framfæri. Eigendurnir geta verið
fyrirtæki, stjórnmálaflokkar, hags-
munasamtök, leyniþjónustur eða
glæpa- og hryðjuverkasamtök.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, hefur sagt að tístvélar séu
ögrun við lýðræði og samfélag. Mest
kveður að þeim á félagsvefnum
Twitter. Sérfræðingar telja að
fimmtungur tísta á Twitter komi frá
hugbúnaði á borð við tístvélar.
Merkel þekkir til tístvéla. Sum-
arið 2015 var opnaður fyrir hana
reikningur á myndavefnum In-
stagram. Viðbrögðin hrúguðust inn,
en snerust sjaldnast um myndirnar.
Oft voru ummælin með kirilísku letri
og snerust um átökin í Úkraínu.
Einnig var mikið um gagnrýni á
stefnu Merkel í málefnum flótta-
manna. Orðfærið var iðulega ekki
birtingarhæft.
Úkraína og Brexit
Rússar eru þekktir fyrir að vera með
her svokallaðra nettrölla á mála. Þau
dreifa áróðri á netinu og eru af holdi
og blóði. Einnig eru Rússar farnir að
nota tístvélar.
Tístvélar komu einnig mikið við
sögu á félagsvefjum á Bretlandi í að-
draganda atkvæðagreiðslunnar um
það hvort Bretar ættu að ganga úr
Evrópusambandinu. Sömu fræði-
menn og könnuðu hlut tístvéla eftir
kappræðurnar í Bandaríkjunum
skoðuðu þátt þeirra í umræðum á
netinu um Brexit. 30% allra ummæla
með myllumerkjum andstæðinga og
stuðningsmanna útgöngu komu frá
einu prósenti þeirra reikninga, sem
skoðaðir voru. Frá mörg-
um þeirra komu meira en
50 færslur á dag, sem
þykir sterk vísbending um
að tístvél hafi verið að verki.
Tístvéla hefur víðar orðið
vart í stjórnmálum. Greint
hefur frá því að Enrique Pena
Nieto, forseti Mexíkó, hafi
notið stuðnings tístvéla við að
koma málstað sínum á framfæri í
kosningasigri sínum 2012. Recep
Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands,
sem um tíma lét loka aðgangi að
Twitter í Tyrklandi hefur einnig not-
að þær við að kynna sjónarmið
stjórnvalda almenningi.
Yfirmaður suðurkóresku leyni-
þjónustunnar, NIS, þurfti að segja af
sér vegna afskipta af kosningabarátt-
unni í Suður-Kóreu 2012. Leyniþjón-
ustan notaði tístvélar til að búa til
milljónir færslna til að hrósa Park
Geun-hye, sem sigraði í kosning-
unum, og gagnrýna andstæðing
hennar.
Með notkun tístvéla er hægt að
láta líta svo út sem almenningi sé
mikið niðri fyrir þótt sú sé ekki raun-
in. Þannig er hægt að skapa þrýsting
á ráðamenn. Simon Hegelich, sér-
fræðingur við Tækniháskólann í
München, segir að tístvélar gætu haft
mikil áhrif. Samkvæmt könnunum í
Þýskalandi segjast 95% manna ekki
láta félagsvefi hafa áhrif á afstöðu
sína. Þegar mjótt er á munum geta
fimm prósent skipt sköpum.
Pólitík
á tímum
tístvélanna
Snar hluti af færslum á félagsvefjum verður
til í tístvélum. Þær ganga ýmissa erinda og
virðast vera venjulegir notendur.
AFP
Forsetaframbjóðendurnir Donald Trump og Hillary Clinton deila sviði í kappræðum. Bæði beita þau tístvélum, sem
nota sjálfvirkt algrími til setja færslur á netið og koma stefnu sinni og gagrnýni á andstæðinga til kjósenda.
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016
Tístvélar eru smáforrit, sem
setja færslur sjálfkrafa inn á
félagsvefi á netinu. Hægt er
að kaupa gervinotendur á fé-
lagsvefjum á borð við Twitt-
er, Facebook og Instagram
og má fá þúsund reikninga
fyrir minna en fjögur þúsund
krónur. Búa má þannig um
hnútana að þessar tístvélar
hengi ummæli á tiltekin
myllumerki til að hafa áhrif á
almenningsálitið og láta
líta svo út fyrir að fólki
sé heitt í hamsi út af
ákveðnum málefnum.
Sjálfvirkur
áróður
’
Netið hefur gert það mun skilvirkara og ódýrara að
breiða út áróður.
Evgeny Morozov, höfundur bókarinnar
The Net Delusion: The Dark Side of Internet Freedom.
ERLENT
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
BELGÍA
BRUSSEL Samkomulag
náðist í Belgíu um að styðja
viðskiptasamninginn milli
Evrópusambandsins og Kanada.
Stjórnvöld í frönskumælandi hluta
Belgíu lögðust gegn honum. Belgía er sambandsríki og getur
Charles Michel, forsætisráðherra landsins, ekki skrifað undir
samninginn nema öll sex sambandsþing landsins samþykki hann.
GAMBÍA
BANJULYahya Jammeh, forseti Gambíu, lýsti
yfir því að landið hygðist ganga úr Alþjóða
glæpadómstólnum í Haag. Fyrr í mánuðinum
tilkynntu Búrúndí og Suður-Afríka að þau
hygðust draga sig út úr dómstólnum. Þing
Búrúndí telur að dómstóllinn sé tæki erlendra
ríkja til að koma þeim, sem þeir vildu, frá völdum í álfunni. Fatou
Bensouda, yfirsaksóknari dómstólsins, er frá Gambíu.
VENESÚELA
CARACAS Mörg hundruð þúsund
manns mótmæltu á götum úti í
Venesúela um miðja vikuna og hrópuðu:
„Þessi stjórn mun falla.“ Kröfðust
mótmælendur þjóðaratkvæðis um
hvort Nicolas Maduro forseti ætti að
sitja áfram. Mikil ólga er í landinu og
efnahagurinn í
molum. Efnt var
til mótmælanna
þegar stjórnvöld
stöðvuðu
undirskriftasöfnun
til að krefjast
þjóðaratkvæðis.
JAPAN
TÓKÍÓ Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, sagði í
opinberri heimsókn í Japan að hann vildi að bandaríski
herinn hyrfi á brott frá Filippseyjum innan tveggja ára.
Bandaríkjamenn hafa gagnrýnt
Duterte fyrir að ganga á milli bols
og höfðus á glæpamönnum fyrir
fjamisferli án dóms og laga.eiturly
varað með því að ausaHann hefur s
ðingum yfir Bandaríkjaforseta.svívir