Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016
VETTVANGUR
Ég held að ekki hafi verið fluttarmargar lélegar ræður á Al-þingi á nítjándu öld og að hið
sama hafi átt við um fyrstu áratugi
hinnar tuttugustu aldar. Skýringin er
margþætt. Margir orðsnillingar voru
á þingi á þessum tíma og síðan er það
hitt hvort menn kunni að hafa vandað
sig betur en síðar varð, því þeir hafi
borið meiri virðingu fyrir „orðinu“,
hinu talaða og þá ekki síður hinu
skrifaða.
Og það er náttúrlega mergurinn
málsins. Hið talaða orð var skrifað.
Ræður, grundvallarræðurnar, sem
fluttar voru á Alþingi á fyrri tíð voru
flestar skrifaðar frá orði til orðs,
framtíðarsýn eða úthugsaðar vanga-
veltur um þau mál sem brunnu á
samtímanum.
Síðan líður tíminn. Dagblöð taka
við af mánaðar- og vikuritum, útvarp-
ið opnar okkar leið inn í þingsalinn og
síðan sjónvarpið. Nú er meira að
segja hægt að fylgjast með því sem er
að gerast í sálarkirnum einstakra
þingmanna sem „snappa“ úr sætum
sínum. Allt gerist nú í augnablikinu.
Tæknin breytir innihaldi þess sem
við tökum okkur fyrir hendur. Á ní-
unda áratugnum var ég fréttamaður
Sjónvarpsins og upplifði þá mikið
breytingaskeið. Í upphafi þurftum við
sem sinntum erlendum fréttum að
reiða okkur á flugsamgöngur. Feng-
um við fréttamyndir tvisvar til þrisv-
ar sinnum í viku hverri og var mikill
spenningur að sjá hvað væri í pakk-
anum hverju sinni. Flestar voru frétt-
irnar orðnar úreltar en nýttust engu
að síður stundum í fréttaskýringum
þar sem grafist var fyrir um orsakir
og afleiðingar atburða.
Svo kom gervihnötturinn sem
gerði okkur fært að sýna lestarslys á
Spáni stuttu eftir atburðinn og ör-
lagaríkustu viðburði var hægt að
senda út beint. Við þessar aðstæður
urðu þeir ráðandi í heimi fjölmiðlunar
sem höfðu hraðann á valdi sínu. Hinn
innlendi fréttaskýrandi sem rýndi í
blöð og tímarit og beið eftir pakk-
anum sínum vék til hliðar.
Gott eða slæmt? Hvorugt, allt eftir
því hvernig við vinnum úr málum og
nýtum okkur þá stórkostlegu mögu-
leika sem ný tækni veitir okkur. Eitt
þarf ekki að útiloka annað.
Fyrir stuttu sótti ég athyglisverða
ráðstefnu þar sem fjallað var um það
með hvaða hætti stjórnmálin gætu
búið sig undir tæknibreytingar fram-
tíðarinnar. Menn yrðu að gera sér
grein fyrir því að ekki dygði að rýna í
eigin samtíð, telja sig sjá þar breyt-
ingar, bregða síðan á þær stækkunar-
gleri og magna upp, og ætla að þar
með vissu þeir hvað framtíðin bæri
skauti sér. Framtíðin væri ekki nútíð-
in mögnuð upp, gera þyrfti ráð fyrir
eðlisbreytingum sem færðu okkur
viðfangsefni framtíðarinnar. Þessa
dagana, sagði einn fyrirlesara, ættum
við að ræða erfðahannaðar mann-
eskjur daginn út og daginn inn og öll
þau lagalegu og siðferðilegu álitamál
sem fylgdu erfðatækninni.
En þetta er útúrdúr. Ekki þó
alveg. Ég er nefnilega að reyna að
finna afsökun fyrir þingmenn sam-
tímans, að þeir skuli ekki gera grein
fyrir hugðarefnum sínum á eins fal-
legan og vandaðan hátt og forverar
okkar gerðu og að sú eðlisbreyting
hafi orðið á störfum okkar að yfir-
vegaðar yfirlýsingar hafi breyst í lif-
andi umræðu augnabliksins.
En við þurfum að læra að nýta okk-
ur kosti tækninnar án þess að það
verði á kostnað innihalds og gæða.
Ég er með tillögu: Fjölmiðlar dragi
úr málæðismælingum og skýring-
arlausum tölfræðiupplýsingum og
beini sjónum þess í stað að innihaldi.
Alþingismenn fyrir sitt leyti minnist
þess að þótt Alþingi eigi sér merka
sögu og hlutverk verður sú stofnun
náttúrlega aldrei betri en þeir sem
þar sitja.
Hvers vegna alþingisræðurnar
voru betri á 19. öld
’Fjölmiðlar dragi úrmálæðismælingum ogskýringarlausum töl-fræðiupplýsingum og
beini sjónum þess í stað
að innihaldi.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Morgunblaðið/Kristinn
Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan
birti mynd af hvítum vaxlit á Face-
book í vikunni og skrifaði: „Fátt ef
nokkuð í þessari veröld er eins
átakanlega til-
gangslaust og hvít-
ur vaxlitur. Mikið
held ég að þeir
óski þess að hafa
frekar endað sem
kerti – þó ekki væri nema spritt-
kerti.“ Ekki voru allir sammála því
að liturinn væri
gagnslaus og
Hjálmar Hjálm-
arsson leikari
greindi gagnsemi
hans í þessum lín-
um: „Endurkast
ljóss frá vaxi litarins vekur engu að
síður ólíka upplifun hjá áhorfand-
anum í samanburði við ólífrænt
endurkast hvíts ólitaðs mynd-
flatar.“
Kvennafríið og kvennabaráttan
var þá vinsælt viðfangsefni sam-
félagsmiðlanna í vikunni en Lára
Björg Björnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Suðvestur, tísti: „Ég
hef oftar en ekki unnið við hlið
karlmanns í sambærilegu starfi, en
hann með hærri laun. Þangað til ég
stofnaði mitt eigið fyrirtæki.“
AF NETINU