Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Page 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016 VETTVANGUR Ég held að ekki hafi verið fluttarmargar lélegar ræður á Al-þingi á nítjándu öld og að hið sama hafi átt við um fyrstu áratugi hinnar tuttugustu aldar. Skýringin er margþætt. Margir orðsnillingar voru á þingi á þessum tíma og síðan er það hitt hvort menn kunni að hafa vandað sig betur en síðar varð, því þeir hafi borið meiri virðingu fyrir „orðinu“, hinu talaða og þá ekki síður hinu skrifaða. Og það er náttúrlega mergurinn málsins. Hið talaða orð var skrifað. Ræður, grundvallarræðurnar, sem fluttar voru á Alþingi á fyrri tíð voru flestar skrifaðar frá orði til orðs, framtíðarsýn eða úthugsaðar vanga- veltur um þau mál sem brunnu á samtímanum. Síðan líður tíminn. Dagblöð taka við af mánaðar- og vikuritum, útvarp- ið opnar okkar leið inn í þingsalinn og síðan sjónvarpið. Nú er meira að segja hægt að fylgjast með því sem er að gerast í sálarkirnum einstakra þingmanna sem „snappa“ úr sætum sínum. Allt gerist nú í augnablikinu. Tæknin breytir innihaldi þess sem við tökum okkur fyrir hendur. Á ní- unda áratugnum var ég fréttamaður Sjónvarpsins og upplifði þá mikið breytingaskeið. Í upphafi þurftum við sem sinntum erlendum fréttum að reiða okkur á flugsamgöngur. Feng- um við fréttamyndir tvisvar til þrisv- ar sinnum í viku hverri og var mikill spenningur að sjá hvað væri í pakk- anum hverju sinni. Flestar voru frétt- irnar orðnar úreltar en nýttust engu að síður stundum í fréttaskýringum þar sem grafist var fyrir um orsakir og afleiðingar atburða. Svo kom gervihnötturinn sem gerði okkur fært að sýna lestarslys á Spáni stuttu eftir atburðinn og ör- lagaríkustu viðburði var hægt að senda út beint. Við þessar aðstæður urðu þeir ráðandi í heimi fjölmiðlunar sem höfðu hraðann á valdi sínu. Hinn innlendi fréttaskýrandi sem rýndi í blöð og tímarit og beið eftir pakk- anum sínum vék til hliðar. Gott eða slæmt? Hvorugt, allt eftir því hvernig við vinnum úr málum og nýtum okkur þá stórkostlegu mögu- leika sem ný tækni veitir okkur. Eitt þarf ekki að útiloka annað. Fyrir stuttu sótti ég athyglisverða ráðstefnu þar sem fjallað var um það með hvaða hætti stjórnmálin gætu búið sig undir tæknibreytingar fram- tíðarinnar. Menn yrðu að gera sér grein fyrir því að ekki dygði að rýna í eigin samtíð, telja sig sjá þar breyt- ingar, bregða síðan á þær stækkunar- gleri og magna upp, og ætla að þar með vissu þeir hvað framtíðin bæri skauti sér. Framtíðin væri ekki nútíð- in mögnuð upp, gera þyrfti ráð fyrir eðlisbreytingum sem færðu okkur viðfangsefni framtíðarinnar. Þessa dagana, sagði einn fyrirlesara, ættum við að ræða erfðahannaðar mann- eskjur daginn út og daginn inn og öll þau lagalegu og siðferðilegu álitamál sem fylgdu erfðatækninni. En þetta er útúrdúr. Ekki þó alveg. Ég er nefnilega að reyna að finna afsökun fyrir þingmenn sam- tímans, að þeir skuli ekki gera grein fyrir hugðarefnum sínum á eins fal- legan og vandaðan hátt og forverar okkar gerðu og að sú eðlisbreyting hafi orðið á störfum okkar að yfir- vegaðar yfirlýsingar hafi breyst í lif- andi umræðu augnabliksins. En við þurfum að læra að nýta okk- ur kosti tækninnar án þess að það verði á kostnað innihalds og gæða. Ég er með tillögu: Fjölmiðlar dragi úr málæðismælingum og skýring- arlausum tölfræðiupplýsingum og beini sjónum þess í stað að innihaldi. Alþingismenn fyrir sitt leyti minnist þess að þótt Alþingi eigi sér merka sögu og hlutverk verður sú stofnun náttúrlega aldrei betri en þeir sem þar sitja. Hvers vegna alþingisræðurnar voru betri á 19. öld ’Fjölmiðlar dragi úrmálæðismælingum ogskýringarlausum töl-fræðiupplýsingum og beini sjónum þess í stað að innihaldi. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Morgunblaðið/Kristinn Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan birti mynd af hvítum vaxlit á Face- book í vikunni og skrifaði: „Fátt ef nokkuð í þessari veröld er eins átakanlega til- gangslaust og hvít- ur vaxlitur. Mikið held ég að þeir óski þess að hafa frekar endað sem kerti – þó ekki væri nema spritt- kerti.“ Ekki voru allir sammála því að liturinn væri gagnslaus og Hjálmar Hjálm- arsson leikari greindi gagnsemi hans í þessum lín- um: „Endurkast ljóss frá vaxi litarins vekur engu að síður ólíka upplifun hjá áhorfand- anum í samanburði við ólífrænt endurkast hvíts ólitaðs mynd- flatar.“ Kvennafríið og kvennabaráttan var þá vinsælt viðfangsefni sam- félagsmiðlanna í vikunni en Lára Björg Björnsdóttir, fram- kvæmdastjóri Suðvestur, tísti: „Ég hef oftar en ekki unnið við hlið karlmanns í sambærilegu starfi, en hann með hærri laun. Þangað til ég stofnaði mitt eigið fyrirtæki.“ AF NETINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.