Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Side 20
VIÐTAL
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016
B
jörk Guðmundsdóttir hefur ekki
haldið tónleika hér á landi alllengi,
hélt síðast níu tónleika í Hörpu fyr-
ir fimm árum; átta Biophilia-
tónleika í Silfurbergi og síðan
stærri tónleika í Eldborg.
Síðasta breiðskífa Bjarkar, Vulnicura, kom út
á síðasta ári og fékk geysigóðar viðtökur (Vul-
nicura kom reyndar út í þremur útgáfum, ef svo
má segja, upprunaleg plata, strengjaútgáfa
hennar og svo tónleikaútgáfa, allt sama árið, og
tvær tónleikaútgáfur til eru í bígerð), en tón-
leikaferð til að kynna hana varð stutt í annan
endann. Björk hélt aðeins ellefu tónleika til að
fylgja þeirri plötu eftir, en sat þó ekki auðum
höndum heldur setti hún upp sýningu víða um
heim þar sem hún blandaði saman fram-
úrstefnulegri tækni og tónlist.
Í lok september sl. bárust svo þær óvæntu
fréttir að Björk myndi koma fram á tónleikum á
Airwaves, sem hefst í næstu viku, og ekki bara
einum tónleikum heldur tvennum, aukinheldur
sem áðurnefnd sýning hennar, Stafrænn heim-
ur Bjarkar, verður sett upp í Hörpu og opnuð í
vikunni.
Stafrænn heimur Bjarkar
Sýningin Stafrænn heimur Bjarkar er sýnd-
arveruleikaverkefni þar sem áheyrendum gefst
færi á að upplifa tónlist Bjarkar á nýjan hátt
með aðstoð þrívíddartækninnar meðal annars -
hægt verður að stíga inn í sýndarveruleikaheim
sem smíðaður var í samvinnu Bjarkar og forrit-
ara og hönnuða, en einnig gefst færi á að skoða
gagnvirkt margmiðlunarverki sem byggt er á
Biophilia og hefur verið notað til tónlistar- og
tæknikennslu barna víða um heim.
Ég hitti Björk að máli í Norræna húsinu fyrir
stuttu og talið barst snemma að því hve algengt
er að rætt sé um stafræna tækni sem eitthvað
framandlegt, laust við tilfinningar og nánd.
Björk tekur ekki undir það, segir að sér finnist
lítill munur á því að horfa á sýndarveruleika-
myndband og að lesa bók: „Maður fer alveg jafn
langt í burtu, þó að það fari vitanlega eftir því
hve bókin er góð,“ segir hún og hlær við. „Mað-
ur er hér en samt ekki hér og það er verið að
kynna mann fyrir innra lífi einhvers annars eða
þá líf sem einhver annar er að búa til en það hef-
ur alltaf verið svo, hvort maður situr við eldinn
inni í helli og semur sögur eða fer á tónleika,
mér finnst þetta allt mjög líkt.“
Eins og leynilöggusaga
– Þegar maður les bók er maður að skapa heim-
inn sjálfur, stígur inn í bókina og skapar heim-
inn í kollinum á sér, en sýndarveruleiki er heim-
ur sem annar hefur smíðað og þú stígur inn í.
„Bókin er náttúrlega stafir sem maður þarf
að túlka og þarf að búa til hið myndræna. Að því
leyti er sýndarveruleikinn líkari bíómyndum
þar sem hið myndræna er gefið, en hvað sýnd-
arveruleikann varðar þá erum við á svipuðum
stað og þegar sú fræga sena var sýnd fyrir
hundrað árum þegar fólk sem var í bíó í fyrsta
skipti sá lest koma í áttina að sér og allir hlupu
öskrandi út úr bíóinu. Svo er náttúrlega hægt að
gera slæmar myndir og góðar myndir.
Mér finnst mest spennandi við þessa nýju
tækni að þetta er eins og leynilöggusaga, maður
er að leysa vandamál jafnóðum og maður er að
vinna í því. Þannig var það skemmtilegt þegar
við gerðum Biophiliu og ég var að vinna í fyrsta
skipti með snertiskjái, áður en iPadarnir komu,
og hugsaði: vá, þetta er tæki sem ég get notað
til að kortleggja hvernig mér finnst tónfræði
eiga að vera. Ég er mjög sérvitur hvað varðar
mína eigin tónfræði og finnst hún eiga að vera í
þrívídd, það eigi að kenna bassalínur með pend-
úl svo maður sjái það og finni að þetta er eitt-
hvað í rými. Krakkar sjá það líka og það tekur
þau bara þrjár sekúndur: já, ég sé það, ég veit
hvað kontrapunktur er.“
Spennandi tími
„Þetta er því mjög spennandi tími fyrir sýnd-
arveruleika, áður en allt storknar í einhverju
formi. Núna getur maður reynt að hugsa um
þetta sem einhverja hlið á okkur öllum: í stað
þess að þetta sé einhver viðbót, annar gervi-
handleggur, og annar gervihandleggur og önn-
ur viðbót og önnur viðbót þá er þetta akkúrat
öfugt.
Fyrir mér var þetta svona: ókei, ég er búin að
vera í hljómsveit í tíu ár og svo kom fartölvan og
þá gat ég bara verið sjálf mín eigin hljómsveit.
Tæknin er ekki bara viðbót, það er eitthvað inni
í mér sem ég næ ekki að tjá, en ég get það með
þessari nýju tækni. Þegar ég fékk fartölvuna
þurfti ég ekki hljómsveit lengur, ég gat gert
90% heima sjálf og þá var það minn heimur.
Þegar tölva með snertiskjá kom var það fyrsta
sem mér datt í hug: ó, loksins er tæknin búin að
ná okkur og hvernig ég hugsa tónfræði, ég er
komin með format fyrir það. Núna kemur sýnd-
arveruleikinn sem er tilvalinn fyrir tónlistar-
myndbandið og passar reyndar betur við það en
heila bíómynd, eins og er.
Sýndarveruleikinn hefur það fram yfir You-
Tube-myndbandið að maður fer á staðinn og er
inni í 360 gráða heimi þar sem enginn einn stað-
ur er betri en annar. Það má einna helst líkja því
við leikhús, róttækt tilraunaleikhús þar sem það
er ekkert svið og allt í einu kemur einhver leik-
ari fyrir aftan og eitthvað gerist til hliðar við þig
eða fyrir framan þig. Tungumálið sem við erum
að nota í sýndarveruleikanum er það sem notað
er í mesta pönkleikhúsi í heimi.“
Frumspeki 103
Björk hefur verið að vinna að þrívíddarmynd-
efni með listamanninum James Merry og þann-
ig luku þau nýverið við sýndarveruleikaútgáfu
af laginu Family af Vulnicura sem hún segir það
besta sem þau hafi gert hingað til. „Lagið fjallar
um það að ég er með sár hér,“ segir hún og
bendir á bringuna á sér, „og ég vil sauma það
saman og svo lagast ég í miðju laginu og geri
hálfgerða jógaæfingu þar sem ég fer stökk í
loftinu og í gegnum hlustandann og lendi hinu-
megin. Þetta er næstum frumspeki 103 og það
sem maður upplifir með þrívíddargleraugun á
sér er ekki eitthvað sem hefði verið hægt með
YouTube.“
– Þú lýsir þessi sem gríðarlegu frelsi.
„Já, meira en YouTube og MTV og allt það,
þó að það sé frábært á sinn hátt. Þetta er eitt-
hvað nýtt og ég held það sé líka tækifæri til
meiri nálægðar við hlustandann. Ég er búin að
segja þetta þúsund sinnum og skal segja það
Frumspekileg
heilun
Undanfarið hefur Björk Guðmundsdóttir verið venju frem-
ur önnum kafin – hún er að færa síðustu breiðskífu sína,
Vulnicura, í sýndarveruleikabúning, á fullu við að semja
lög á nýja plötu og stýra uppsetningu á sýningu sem helg-
uð er stafrænum hliðum listsköpunar hennar. Já, og svo er
hún að fara að halda tvenna tónleika í Eldborg.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Mynd/Andrew Thomas Huang
Björk eins og hún
birtist í sýndarveru-
leikagerð Family.