Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016
HÖNNUN
er helmingur húsgagnanna á heim-
ilinu erfðagripir. „Ég vil einungis
eiga hluti sem við virkilega notum,
og þá finnst mér líka skipta gríð-
arlegu máli að þeir séu fallegir, ekki
síður hversdagslegir hlutir eins sóp-
ur, fægiskúffa, klósettbursti og
ruslatunna. Það er miklu skemmti-
legra að nota slíka hluti þegar þeir
eru fallegir.“
Aðspurð hvar hún kaupi helst inn
á heimilið segir Ingibjörg verslunina
Epal í miklu eftirlæti. „Mér finnst
mikilvægt að það sem ég kaupi sé
klassískt, vandað og endist því ég lít
á kaupin sem framtíðar-
fjárfestingu.“
Munstur úti um allt
Ingibjörg Hanna sækir innblástur
alls staðar frá. „Ég er mikið að
vinna með mynstur þessa dagana og
það eru munstur úti um allt í borg-
inni og í náttúrunni. Það er ótrúlega
spennandi að opna augun fyrir þeim
og sjá heiminn á annan hátt og í
öðru samhengi en maður gerir
venjulega. Maður dettur stundum í
hálfgerða leiðslu þegar maður er á
þessum stað.“
Íbúð fjölskyldunnar er 90 fer-
metrar að stærð og þar búa fimm
manns. Ingibjörg segir hvern fer-
metra því nýttan til hins ýtrasta.
„Mér finnst heimilið mitt yndislegt í
heild en ef ég kem mér fyrir með
kaffibolla og kósýheit þá elska ég að
vera í stofunni því hún er svo björt
með stórum gluggum og fullt af bók-
um.“ Aðspurð hver sé griðastaður
fjölskyldunnar á heimilinu svarar
Ingibjörg: „Við sækjum öll í stofuna.
Við borðum þar, spjöllum saman,
lærum heima eða spilum. Það er
hægt að velja um fleiri staði til að
gera þetta allt saman, eldhúsið er al-
veg nógu stórt og fínt og bjart til að
borða þar en við leitum mjög mikið í
stofuna samt sem áður.“
Aðspurð hvort eitthvað sé á óska-
listanum inn á heimilið svarar Ingi-
björg: „Mig langar rosalega í nýjan
sófa en þar sem við borðum svo oft í
stofunni þá legg ég ekki alveg strax í
þá fjárfestingu.“
Þá segir hún að fullorðna fólkið á
heimilinu langi líka mjög mikið í bíl-
skúr. „Þá myndum við eyða frítíma
okkar í að smíða allskonar hluti
saman. Okkur finnst nefnilega
skemmtilegast að búa til hlutina
okkar sjálf. Vonandi að það rætist
sem fyrst.“
Stofan er einskonar griðarstaður fjölskyldunnar á heimilinu. Þar nýtur fjölskyldan samverustunda við að borða, spjalla,læra eða spilar saman.
1Á heimilinu fá fágaðir smáhlutir að njóta sín. Ingibjörg Hanna segist vera nýtin og tengist hlutum sterkum tilfinningaböndum og er helmingur húsgagnanna á heimilinu erfðagripir.
Kähler Fiducia vasarnir
eftir Louise Campbell
koma vel út í glugganum.
Fallegt borð eftir
Ingibjörgu sjálfa.
Þessi dásamlegi hengi-
stóll er eftir Ingibjörgu
Hönnu.
Eldhúsið er bjart og
rúmgott. PH ljósið frá
Louis Poulsen kemur vel
út yfir eldhúsborðinu.