Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Page 32
MATUR Það er vitað mál að engifer er afskaplega hollt og gott fyrir kroppinn.En líkt og með svo margt þá getur of mikið magn af engiferrót valdiðbrjóstsviða, niðurgangi og ertingu í munni, jafnvel magaóþægindum.
Sannar regluna um að allt sé gott í hófi.
Engifer hollt í hófi
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016
Þetta er okkar þriðja bók semvið gerum bara tvö. Við höfumhins vegar áður komið aðeins
að öðrum matreiðslubókum. Þetta er
töluverð vinna en skemmtileg,“ segir
Berglind. „Mér finnst rosalega gam-
an að búa til svona verk, stílisera
myndirnar og passa að allt hafi
heildarsvip, fylgi hugmyndafræðinni
okkar og sé smart. Ljósmyndarinn
Kristbjörg Sigurjónsdóttir er góð
vinkona mín og okkur finnst þetta
ótrúlega skemmtileg vinna. Siggi
nær að elda alla þessa rétti á færi-
bandi svo að tíminn nýtist vel. Ef ég
ætti að elda þá tæki þetta marga,
marga daga,“ segir hún og hlær.
Hugmyndir að nýjum réttum koma
meðal annars á ferðalögum þeirra
hjóna en þau hafa unun af því að
ferðast. Þau eiga það til að fara á
kaf í menningu og matargerð þess
lands sem þau heimsækja. „Okkur
finnst gaman að fara út að borða og
við eigum heilan vegg af mat-
reiðslubókum. Svo þegar við dettum
niður á eitthvað sem við erum
spennt fyrir þá hefst leiðin að því að
gera það á hollari máta án þess þó
að fórna bragðinu“.
Hollt og gott fer vel saman
Berglind segir það ánægjulegt hve
mjög Íslendingar séu orðnir meðvit-
aðir um holla fæðu. Hún segir það
skipta gríðarlega miklu máli hvað við
setjum ofan í okkur enda þurfi
líkaminn okkar á næringarefnunum
að halda. „Við þurfum að borða
meira af „lifandi“ mat fremur en
næringarsnauðum pakkamat. Við lif-
um ekki vel á næringarsnauðum
gervimat með bragðefnum. Ég held
að Íslendingar séu að átta sig mjög
vel á þessu.“
Berglind og Siggi leggja ríka
áherslu á að elda sem mest frá
grunni en þannig byrjaði einmitt
matarævintýri þeirra sem varð að
þremur matreiðslubókum, sér-
útbúnum réttum í matvöruverslunum
og veitingastað. „Heilsuréttarbæk-
urnar urðu til eftir að við höfðum
tekið þá ákvörðun að breyta matar-
æði fjölskyldunnar aðallega til þess
að hjálpa syni okkar sem er með
Tourette-sjúkdóminn. Við sáum það
strax að breytt mataræði hafði mjög
mikið að segja fyrir hann. Ég var
eitthvað að vesenast við að gera holl-
an mat með því að sleppa hinu og
Ljósmyndir/Lind Hrafnsdóttir
„Maturinn á að vera djúsí!“
Berglind skreytir nammikökuna sem er afar einfalt að útbúa
en hún er afskaplega góð og einnig næringarrík.
Vinkonurnar Þórey og Berglind
fá sér kaffisopa eftir matinn
með hundinum Ísold. Berglind
og Siggi eiga fallegt heimili.
„Í matarboðinu buðum við upp á frábær-
an ferskan fisk sem við fáum af höfninni
daglega til okkar á GOTT. Við ákváðum
því að vera með tvo sjávarrétti. Salatið
með rauðrófunum og geitaostinum er
alltaf gott og þægilegur milliréttur.
Nammikakan er einfaldasta kaka sem þú
gerir, þarft ekkert að baka, er mjög góð
og vinsæl meðal allra. Hún skilur líka eftir
sig fín næringarefni fyrir kroppinn. Það
getur ekki verið betra,“ segir Berglind.
Gestir þeirra voru vinahjón þeirra Þórey
Friðbjarnardóttir og Benóný Benónýsson
og eru þau æskuvinir þeirra hjóna. „Siggi
og Binni struku saman heim af leikskól-
anum sem krakkar og við Þórey reyndum
að grafa saman holu til Kína. Við höfum
brallað margt í gegnum tíðina og gaman
að fá þau í mat.“
LÉTT OG GOTT
Vildu
tengja við
heimahaga
Hjónin Berglind Sigmarsdóttir og Sigurður Gíslason gefa út sína þriðju bók GOTT, en áður komu út bæk-
urnar Heilsuréttir og Nýir heilsuréttir. Þau eru dugleg að færa hina ýmsu rétti í hollustugírinn og leggja ríka
áherslu á að maturinn sé eldaður frá grunni, hollur og að sjálfsögðu einstaklega bragðgóður.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is