Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Side 46
FERÐALÖG Það er nær alltaf ódýrara að kaupa lestarmiðana fyrir-fram á netinu. Ef fluginu seinkar er hægt að panta lest-
armiða sem gilda allan þann dag sem lent er.
Með fyrirvara
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016
Getty Images/iStockphoto
Stór hópur íslenskra
ferðalanga þarf eftir
langt flug að koma sér
einhvern veginn inn í
miðju þeirra stórborga
sem þeir heimsækja.
Það getur skipt máli
hvernig það er gert,
bæði hvað tíma og pen-
inga varðar.
Júlía Margrét Alexandersdóttir
julia@mbl.is
Eftir langt flug þrá
flestir að komast sem
fyrst á leiðarenda.
Frá flugvelli til miðborgar
5FRANKFURTFRANKFURT MAIN
Fljótlegast: Takið S-Bahn til að komast
inn í miðborg Frankfurt, frá palli S9 og
S9 á Terminal 1 og farið út úr henni á
Frankfurt Hauptwache. Ferðin tekur 16
mínútur og kostar 600 kr.
Aðrir valkostir: Bílferð tekur um 20-30
mínútur og leigubíll kostar um 3.000 kr.
Strætóferð er mun seinlegri á þessu
svæði þar sem mörg stopp eru á leiðinni.
Hægt er að spara tíma og peninga með
því að bóka leigubíl fyrirfram á netinu, til
dæmis í gegnum yattaxi.com.
6PARÍS CHARLES DE GAULLEFljótlegast: Takið RER B-lestina af
Terminal 1 eða 2. Ferðin að Chatelet-
Les-Halles tekur um 40-50 mínútur og
gengur lestin á 10-15 mínútna fresti.
Ferðin kostar um 1.300 kr ísl; kaupið
miða úr bláum miðasöluvélum, ekki þeim
gulu.
Aðrir valkostir: Það er ekki mikið ódýr-
ara að fara með strætisvagni eða rútu inn
í París og raunar er upphæðin nær sú
sama en ferðin getur verið 20 mínútum
lengri. Að fara í einkabifreið eða leigubíl
inn í borgin getur tekið rúma klukku-
stund og kostar leigubíll 8.000 kr.
7STOKKHÓLMUR/ARLANDAFLUGVÖLLUR
Fljótlegast: Ferð með Arlanda Express
lestinni tekur 20 mínútur og fer á 20 mín-
útna fresti. Sé ferðin keypt á flugvell-
inum kostar hún tæpar 4.000 kr en hægt
er að fá góðan afslátt með því að kaupa
miða fyrirfram á arlandaexpress.com.
Aðrir valkostir: Flugrútur Airport
Coaches fara á 10-15 mínútna fresti og
tekur ferðin 35-45 mínútur og er helm-
ingi ódýrari. Verð á leigubíl er afar
breytilegt eftir því hvaða leigubílafyr-
irtæki er um að ræða. Flestar ferðasíður
mæla með Taxi Stockholm, Taxi 020 og
Taxi Kurir og er ferðin þá um 6.000 kr.
8NEW YORK JOHN F. KENNEDYFljótlegasta leið til miðborgar:
Flugvöllurinn er í 22 kílómetra fjarlægð
frá Manhattan og ólíkt mörgum borgum
er fljótlegasta og þægilegasta leiðin
þangað í miðjuna með leigubíl en ekki sú
ódýrasta en ferðin kostar 70 dollara.
Takið aðeins gulan leigubíl og athugið að
yfirleitt tekur ferðalagið um klukku-
stund.
Aðrir valkostir: Hægt er að kaupa sér
far með smærri rútum en ferðalagið get-
ur tekið lengri tíma því þær stoppa á öll-
um þeim stöðum sem farþegar eru að
fara á og þú þarft að bíða á meðan. Mæla
má með NYC Airporter og Super
Shuttle og að panta far fyrirfram á net-
inu. Stærri rútur keyra líka á milli, á 20-
30 mínútna fresti og ferðin kostar um
2.000 kr. á netinu. Til að taka neðanjarð-
arlestina þarf fyrst að taka loftlest til
Howard Beach eða Jamaica-neðanjarð-
arlestarinnar og nota þá A- eða E-
neðanjarðarlestina. Ferðin kostar
nokkra dollara en ferðin í heild getur
tekið allt upp í 2 tíma svo að eftir langt
ferðalag með mikinn farangur er ekki
mælt með þessu.
Athugið að lendi fólk á Newark-
flugvelinum ætti það frekar að nota loft-
lestina, bæði er það fljótlegra og ódýr-
ara.
1LONDON HEATHROWFljótlegast: Heathrow-hraðlestin að
Paddinton-stöðinni tekur um 15 mínútur.
Lestin gengur á 15 mínútna fresti. Dýrast
er að borga farið um borð eða 3.700 kr.,
3.000 kr. á lestarstöðinni en langódýrast er
að nota Heathrow Express appið og bóka
það með fyrirvara.
Aðrir valkostir: Ferð með Heathrow Con-
nect lestinni tekur 31-49 mínútur og kostar
1.300 kr. að Paddington-lestarstöðinni.
Ódýrast er að taka strætó, um 2-300 kr. en
tekur rúma klukkustund. Leigubíll kostar
7-10.000 kr.
2LONDON GATWICKFljótlegast: Gatwick Express-
hraðlestin fer að Victoriu-lestarstöðinni á
15 mínútna fresti og tekur ferðin 30 mín-
útur. Farið kostar um 2.700 kr. en með því
að bóka fyrirfram á gatwickexpress.com
fæst 10% afsláttur.
Aðrir valkostir: Ferð í bifreið, strætó og
rútu og getur tekið allt upp í eina og hálfa
klukkustund. Leigubíll kostar tæplega
14.000 kr. Strætóferðin er sem fyrr ódýrust
en líka tímafrekust og kostar milli 200 og
300 kr. á mann.
3KAUPMANNAHÖFN KASTRUPFljótlegast: Neðanjarðarlestin kemur
á 4-6 mínútna fresti en 15-20 mínútna fresti
á nóttunni. Ferðin tekur um 13 mínútur til
Nörreport-lestarstöðvarinnar. Gott er að
nota frekar hefðbundnu lestina ef þú ætlar
að fara á aðaljárnbrautarstöðina eða í vest-
urhluta Kaupmannahafnar en hún fer á 10
mínútna fresti yfir daginn og 1-3 klst. fresti
á nóttunni. Stakar ferðir kosta um 1.000 kr.
Aðrir valkostir: Ferð með strætisvagni
tekur 35 mínútur og á daginn gengur hann
á um 10 mínútna fresti. Ferð með leigubíl
tekur um 20 mínútur og kostar 4-5.000 kr.
4AMSTERDAM SCHIPHOLFljótlegast: Lest fer á 10 mínútna
fresti frá komusvæði flugvallarins og tekur
ferðin um 10-15 mínútur. Ferðin kostar um
1.200 kr. en miklar annir eru á flugvellinum
svo kaupið miðana fyrirfram, til dæmis á
adaminfo.rgi.ticketbar.eu.
Aðrir valkostir: Smárútur Amsterdam
Airport Shuttles eru reknar af Connexxion
og þjónustar meira en 100 hótel í miðri
Amsterdam og keyra gesti þar beint upp að
hóteldyrum. Ferðin kostar um 2.000 kr. og
hægt er að kaupa miða á þjónustuborði
Connexxion á komusvæði 4 á flugvellinum.
Far með leigubíl kostar um 5.000 kr. og
tekur um 40 mínútur.