Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Side 56
Sléttunga, safn til sögu Melrakka-
sléttu, heitir þriggja binda verk í
ritstjórn Níelsar Árna Lund sem
segir sögu ábúðar á Sléttunni og
kom út fyrir stuttu.
Í fyrsta bindinu, Náttúra og
mannlíf, er sögusviðinu lýst, leitað í
sögur og sagnir og annan fróðleik
og þar rita ýmsir sérfræðingar á
sviði jarðfræði, náttúrufræði, gróð-
urfræði, fuglafræði og vatna-
líffræði um náttúru og sérkenni
svæðisins. Einnig er þar að finna ít-
arlega leiðarlýsingu um Melrakka-
sléttu, þjóðsögur og gamlar sagnir.
Í öðru bindi, Fólk og býli, er rakin
saga allra býla á Sléttu um tvö
hundruð ára skeið, annars vegar
frá 1800 til 1900 og svo hinsvegar
frá því um 1900 og fram á okkar
daga, sagt frá ábúendum og dag-
legu lífi.
Í þriðja bindinu, Raufarhöfn, sem
er að stærstum hluta eftir Níels, er
saga Raufarhafnar rakin, bújarð-
arinnar, verslunarstaðarins og sjáv-
arþorpsins aftan úr öldum til ársins
2006 er Raufarhafnarhreppur varð
hluti af Norðurþingi.
Ríflega þúsund myndir eru í bók-
inni og í henni eru líka landakort
með um þúsund örnefnum sem eru í
fyrsta skipti staðsett af þeim sem
best þekkja til og best þekktu til,
eins og Níels rekur söguna.
Höfundar efnis er ýmsir að sögn
Níelsar Árna, enda segist hann hafa
sankað að sér því sem hann komst
yfir af lýsingum og frásögnum.
Hann segir að vinna að verkinu
hafi tekið hann sex ár, „en eitt skal
tekið fram strax, ég er ekki höf-
undur að nema hluta af þessu“. Að
því sögðu þá skrifar Níels ýmislegt í
bókinni, fjallar til að mynda um
sauðfjárrækt og fiskveiðar og fékk
síðan ýmsa vísinda- og fræðimenn
til að skrifa fyrir sig um afmarkaða
þætti sem getið er.
Einnig nýtti Níels ýmis handrit,
þar á meðal handrit Kristjáns Krist-
jánssonar (1885-1971) afa síns vél-
smiðs í Nýhöfn á Melrakkasléttu
sem skrifaði á sínum tíma frásögn
af búendum á Melrakkasléttu frá
1800 til 1900. „Ég leitaði líka til
fólks sem hafði búið á Melrakka-
sléttu sem allt tók mér vel og skrif-
aði um sína bæi og ég rétt náði í
skottið á sumu af þessu fólki,“ segir
Menningarverðmætum
bjargað á Melrakkasléttu
SLÉTTUNGA I-III
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016
LESBÓK
Spurð hvað hafi orðið kveikjanað skáldsögu treystir Arn-gunnur sér ekki til að svara
beint en segir: „Hún kom bara til
mín, þessi saga. Ég sá Unni fyrir
mér, stelpu sem komin var til Íslands
úr námi erlendis og síðan bættust
vinir hennar við og allt fór að gerast
af sjálfu sér.“
- Þegar Unnur kemur úr náminu í
Berlín finnst henni Ísland of lítið,
finnst eins og Reykjavík andi ofan í
hálsmálið á sér, eins og þú orðar það í
bókinni. Í eina tíð flutti fólk úr sveit-
inni á mölina, seinna úr þorpunum
suður og núna frá Reykjavík til út-
landa.
„Ég held þetta sé það sem fylgir
því að sjá heiminn í stærra samhengi.
Unnur er í þessu hugarástandi þegar
hún kemur heim vegna þess að hún
er búin að fara annað, en það skil-
greinir okkur Íslendinga að miklu
leyti hvað við erum fá og iðulega
koma upp einhver vandamál sem
kenna má fámenninu um. Annað sem
ég velti fyrir mér þegar ég var að
skrifa bókina var að þegar ég var í
landafræði í barnaskóla var alltaf
verið að segja okkur hvað Ísland
væri stórt land en svo aflærir maður
það þegar maður er orðinn fullorð-
inn, því það er ekki bara fámennt,
það er líka lítið,“ segir Arngunnur og
bætir við að hún tengi að vissu leyti
við þessa upplifun Íslendings sem
snýr aftur heim eftir dvöl í erlendri
stórborg: „Ég bjó sjálf í Berlín fyrir
nokkrum árum og byrjaði að skrifa
bókina um það leyti sem ég kom
heim. Við það að koma aftur heim
eftir að hafa verið í útlöndum sér
maður skýrt hvað þetta samfélag
getur verið þröngt, en það er ekki
bara neikvætt, því fylgja líka kostir.“
- Unnur og vinir hennar leggja upp
í ferðalag um landið, fara hringinn,
og rekast þá á túrista úti um allt.
Unnur upplifir þó mjög sterkt ilminn
og moldina og langar til að sameinast
landinu.
„Ég hafði lengi ekki náð að ferðast
um landið áður en ég byrjaði að
skrifa bókina, en þegar ég fór um
landið áttaði ég mig á því hve mikið
hefur breyst, hve ferðamennskan
hefur breytt miklu. Við erum oft með
miklar vísanir í náttúruna í listum og
menningu, en svo vaknar maður við
það einn daginn að náttúran er orðin
eitt helsta markaðssetningarfyrir-
bærið, hún er notuð til að markaðs-
setja hitt og þetta. Maður elskar
landið og náttúruna en sér um leið öll
þessi vörumerki þegar maður horfir
á fjöllin og þá verður jarðvegurinn
kannski það eina sem er ósnert.“
- Eins og Lára vinkona Unnar seg-
ir við þegar þau koma að Jökulsár-
lóni: „Þetta er bara vörumerki.“
„Það er allt orðið söluvarningur og
kannski kemst maður ekki hjá því að
koma allstaðar auga á auga á að það
er ákveðið breytingarskeið í gangi.“
- Náttúran er þó ekki bara falleg
og heillandi – í Vestmannaeyjum
gengur Unnur fram á dauða kind.
„Allur heimurinn er Unni fram-
andi, hún er svo viðkvæm gagnvart
umhverfi sínu og þegar hún kemur
til Vestmannaeyja í ömurlegu veðri
fer einhver vanlíðan af stað sem
vindur stöðugt upp á sig meðan hún
er þar. Þetta er lýsandi fyrir innra
ástand hennar, hvað hún er fælin, og
hræið kallast á við það sem er innra
með henni.“
- Það er fullt af túristum sem
borga fyrir það að nálgast náttúruna
en svo er líka fullt af hipsterum sem
borga fyrir það að sýnast náttúru-
legir – tvær hliðar á sama peningi.
„Þegar ferðafélagarnir eru staddir
á Akureyri er Unnur að agnúast út í
hipstera fyrir að vera fyrirsjáanlegir.
En þetta hugtak er erfitt og fæstir
vilja kannski kannast við það að vera
hipster. Eins og Lára bendir á er
Unnur er líklega sjálf sek um að vera
einn slíkur.“
- Undir lokin hefur finnst manni
eins og Unnur hafi náð ákveðnum
áfanga en samt veltir maður fyrir sér
hvort hún eigi eftir að fara annan
hring.
„Hún tekur ákveðið frumkvæði í
lífi sínu, lítið skref sem ég held samt
að sé mjög stórt í ákveðnu samhengi.
Hún er líklega að verða ástfangin.
Um leið hugsar hún um möguleikana
sem felast í þessu - möguleika á að
breyta heiminum. Í því samhengi má
sjá ástina sem róttækan gjörning.
Sem mér finnst skemmtileg and-
stæða við það hvernig ástin birtist oft
í skáldskap, þar sem fólk er gjarnan
eins og fórnarlamb ástarinnar. Í
staðinn er ástin róttækur verknaður
eða sköpun. Að verða ástfanginn er
að breyta heiminum.“
Ástin er róttækur
verknaður
Arngunnur Árnadóttir sendir frá sér sína fyrstu skáldsögu, Að heiman,
sem forlagið Partus gefur út, en undanfarin ár hefur Arngunnur starfað
sem fyrsti klarínettuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Í nýju smásagnasafni Steinars Braga, sem hann
nefnir Allt fer, birtist ástin í öllum sínum mynd-
um í nítján smásögum; slökknar á leið heim úr
fríi í útlöndum, kviknar milli manns og dýrs,
milli manns og skriðdýrs, milli manns og skor-
dýrs, ást frá veru til veru. Þetta er annað smá-
sagnasafn Steinars Braga, en hann hefur einnig
sent frá sér átta skáldsögur og þrjár ljóðabæk-
ur.
Mál og menning gefur út.
Þegar Þór Stefánsson var staddur í París árið
2012 að viða að sér ljóðum eftir frönskumælandi
skáld frá arabaheiminum stakk útgefandi einn
upp á að hann myndi snara á íslensku ljóðum
eftir franskar konur. Þór hafði samband við
tuttugu skáldkonur sem bentu honum á fleiri
skáld, en alls hafði hann samband við 75 skáld-
konur. Í bókinni Frumdrög að draumi birtast
svo ljóð eftir ríflega 50 konur sem sendu Þór
ljóð, mörg áður óbirt. Forlagið Oddur gefur út.
Ljóð franskra kvenna
Veröld hefur gefið út úrval sagna úr bókaröð-
inni Hrakningar og heiðavegir eftir þá Pálma
Hannesson og Jón Eyþórsson sem komu út um-
miðja síðustu öld. Í safninu, sem heitir Hrakn-
ingar á heiðavegum, má meðal annars finna frá-
sögu um hrakning Stefáns í Möðrudal, sagt er
frá vetrarferðum á Hellisheiði, lýst hrakningum
á Fróðárheiði 1937, feigðarför Áslaugar Þor-
kelsdóttur veturinn 1883 og svo má telja. Bjarni
Þorsteinsson valdi efnið og ritar inngang.
Hrakningar á heiðavegum
Sextánda bókin í vinjetturöð Ármanns Reynis-
sonar er komin út og heitir einfaldlega Vinj-
ettur XVI - Vignettes XVI, en eins og jafnan þá
eru vinjetturnar birtar á íslensku og ensku.
Fyrsta vinjettubók Ármanns kom út 2001, en
einnig hefur hann gefið út tvo sagnasöfn á
ensku, 88 Stories Around Iceland og 88 Stories
Around Reykjavik, og Vestnorrænar vinjettur
2014 og 2015.
ÁR – Vöruþing gefur bókina út.
Sextánda vinjettubókin
Um ástina
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177
Eigum úrval af