Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Qupperneq 61
AFP
AFP
Heidi Klum sýnir
mikið hugmynda-
flug með þessum
fjórum gervum.
Það er varla hægt að
trúa því að þetta sé allt
sama manneskjan.
30.10. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 61
SJÓNVARP NBC er að velta fyrir sér að gera nýja
þáttaröð af gamanþáttunum Will & Grace. Þetta kemur
í kjölfar vinsælda sérstaks kosningaþáttar af Will &
Grace, sem frumsýndur var á dögunum.
Hollywood Reporter hefur eftir áreiðanlegum heim-
ildum að takmarkið sé að gera tíu þætti.
Ekki er búið að skrifa undir neina samninga enn við
Eric McCormack, Debru Messing, Megan Mullally og
Sean Hayes. Viðræður standa yfir við aðalstjörnurnar
fjórar og höfundana David Kohan og Max Mutchnick, en
sá síðarnefndi kom með hugmyndina að kosningaþætt-
inum.
Will & Grace gekk í átta þáttaraðir og hreppti 16
Emmy-verðlaun og 83 Emmy-tilnefningar.
Will hittir Grace aftur
Debra Messing
leikur Grace.
TÓNLIST Japanski grínistinn Pikotaro er
kominn í heimsmetabók Guinness fyrir að
vera höfundur stysta lags sem náð hefur inn
á Billboard 100-listann. Þetta er jafnframt
fyrsta japanska lagið sem kemst á listann í 26
ár. Hann sló í gegn á YouTube með laginu
„PPAP (Pen Pineapple Apple Pen)“ en lagið
er aðeins 45 sekúndna langt. Búið er að horfa
á myndbandið yfir 130 milljón sinnum á
síðastliðnum mánuði.
Hann hefur nú gert langa útgáfu af laginu
sem er lengra en tvær mínútur fyrir þá sem
vilja dansa aðeins meira. Langa útgáfan var
sett inn á YouTube á föstudag.
Heimsmetapenni, ananas og epli
Pikotaro varð enn vinsælli þegar Justin Bieber
skrifaði um þetta myndband á Twitter.
AFP
Það er ekki skrýtið að grímur með andliti forseta-
frambjóðendanna Hillary Clinton og Donalds Trumps
njóti vinsælda á hrekkjavöku í ár í ljósi þess að kosn-
ingarnar fara fram 8. nóvember næstkomandi.
Óhugnanlegar grímur af ýmsu tagi seljast síðan
jafnan vel.
Trúðabúningar hafa verið sérstaklega vinsælir og
hafa selst hvað best í Bandaríkjunum og víðar.
Svo má ekki gleyma því hvað það er skemmtilegt
að búa sjálfur til búning og má þá líta til bæði kvik-
mynda- og tónlistarheimsins. Af hverju ekki vera eins
og persóna úr nýjustu Stjörnustríðsmyndinni? Eða
fara í gulan kjól og halda á hafnaboltakylfu og fá að
vera Beyoncé í eina kvöldstund?
AFP
HREKKJAVAKA Á MÁNUDAGINN
Vinsælustu
búningarnir
Forsetaframbjóðendurnir heilla á hrekkjavöku.
AFP
Sumir vilja bara vera í hryllilegum búningum.
Óhugnanlegir trúðabúningar hafa notið mikilla vinsælda.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum.
Frábært til að bæta hormónajafnvægi
fyrir konur á öllum aldri
Heilbrigðari og grennri
Rannsókn sýna að konur sem hafa
mikið lignans i blóðinu eru að
meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa
en þær konur sem skortir eða hafa
lítið af Lignans.**
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Mulin hörfræ - rík af Lignans
Trönuberjafræ
Kalk úr hafþörungum
CC FLAX
• Regluleg inntaka stuðlar að kjörþyngd
• Omega 3- ALA
• Fjölbreyttar trefjar
NÝJAR
UMBÚÐIR
SLEGIÐ Í
GEGN
Í VINSÆLDUM
- FRÁBÆR -ÁRANGUR
P
R
E
N
T
U
N
.IS