Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2015, Side 20
Vikublað 24.–26. mars 20154 Veitingar - Kynningarblað
„Góður matur
tekur tíma“
Ban Thai valinn besti taílenski veitingastaðurinn í Reykjavík sex ár í röð
V
eitingastaðurinn Ban
Thai, sem staðsettur er
á Laugavegi 130, Reykja-
vík hefur verið starfandi í
26 ár og býður upp á ekta
taílenskan mat eins og hann er í
Taílandi.
Staðurinn var valinn einn af
tíu bestu veitingastöðunum á Ís-
landi af DV í júní 2011. Auk þess
hefur hann verið kosinn besti taí-
lenski veitingastaðurinn í Reykja-
vík sex ár í röð, frá 2009 til 2014, af
tímaritinu Reykjavík Grapevine. Á
Ban Thai er allur matur eldaður frá
grunni úr fersku gæðahráefni. All-
ur matur er eldaður eftir pöntun
og ekkert er tilbúið fyrirfram og
því er gott að gefa sér góðan tíma
þegar farið er á staðinn. „Góður
matur tekur tíma,“ segir eigandinn
Tómas Boonchang.
Boðið er upp á fjölbreytt úr-
val rétta og allir geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi, sama hvort það
er sterkt eða milt. Allur matur er
létt eldaður úr ferskum hráefnum
og því heldur hann næringargildi
sínu og upprunalegu bragði vel.
Tómas vill jafnframt benda
gestum staðarins á að athuga vel
styrkleika réttanna sem pantaðir
eru, en allir réttir eru merktir með
chili-merkjum, eftir því hversu
sterkir þeir eru. Ef þú ert ekki
vön/vanur að borða sterkan mat,
er best að panta rétt sem er ekki
merktur með neinu chili-merki.
Hægt er að fá sér taílenskan
bjór og taílenskt vín með matnum.
Bæði er hægt að borða á staðn-
um eða panta „take-away“, en ekki
er boðið upp á heimsendingu.
Á efri hæð staðarins er góð að-
staða fyrir hópa og hægt að taka
þar við allt að 40 manns.
Ban Thai er á Laugavegi 130,
Reykjavík, síminn er 552-2444 og
692-0564, netfangið er banthai@
banthai.is. Opnunartími er sunnu-
daga til fimmtudaga frá kl. 18.00–
22.00 og föstudaga og laugardaga
frá kl. 18.00–23.30.
Tómas rekur alls fimm veitinga-
staði í Reykjavík, auk Ban Thai rek-
ur hann Yummi Yummi sem stað-
settur er á Hverfisgötu beint á móti
Ban Thai og í Smáralind, Na Na
Thai í Skeifunni og YAM í Þverholti
Mosfellsbæ. n Maturinn Allir réttir eru eldaðir frá grunni.
Staðurinn Ban Thai var kosinn besti
taílenski veitingastaðurinn í Reykjavík.
Staðurin Ban Thai
er á Laugavegi 130.