Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Qupperneq 12
Helgarblað 12.–15. júní 201512 Fréttir
iRobot Verslun - Helluhrauni 22
220 Hafnarfjörður - S:555-2585
Veldu þessa sem hentar þér best Líttu við hjá okkur og gerðu
verð- og gæðasamanburð.
Nánari upplýsingar færðu hjá okkur.
Láttu mig um að ryksuga
og notaðu tímann í annað.
„Það er búið að vera rosa-
lega mikið af músum“
n Tíðarfarið á Íslandi ástæðan n Áfellisdómur yfir köttum n Veggjalýs farnar að láta á sér kræla
M
eindýraeyðir segir mús-
um hafa fjölgað mik-
ið síðastliðin misseri og
segir að íslenskir heimilis-
kettir þurfi að hugsa sinn
gang. Veggjalýs eur farnar að láta á
sér kræla á nýjan leik eftir að tekist
hafði að útrýma þeim hérlendis fyrir
nokkrum árum.
„Húsamúsin að færa sig
upp á skaftið“
„Það er búið að vera rosalega mikið af
músum. Ég myndi ekki kalla það far-
ald því að það gæfi í skyn að við réð-
um ekki við ástandið en fjölgunin er
mjög mikil. Sérstaklega hefur húsa-
músin verið að færa sig upp á skaft-
ið,“ segir Guðmundur Óli Scheving
meindýraeyðir. „Mýsnar koma sér
fyrir í háaloftum, bílskúrum og jafn-
vel á milli þilja. Fólki er mjög illa við
þetta,“ segir Guðmundur Óli.
Góð haust helsta ástæðan
Aðspurður um ástæðuna segir Guð-
mundur Óli: „Það er fyrst og fremst
tíðarfarið. Í hefðbundu árferði tímg-
ast mýsnar ekki frá því í september-
október. Síðustu tvö ár hefur haustið
hins vegar verið svo gott að mýsn-
ar hafa verið að gjóta alveg fram í
nóvember. Við erum að ná mörgum
hálfstálpuðum dýrum þessi misserin
sem staðfestir að um síðbúið got er að
ræða.“
Áfellisdómur yfir köttum í
Vesturbænum
„Þær eru í raun alls staðar á höfuð-
borgarsvæðinu en sérstaklega þó í
jaðarbyggðunum, uppi í Kjós og sum-
arbústaðalöndunum. Ég er líka að
taka talsvert í Vesturbæ Reykjavíkur
þar sem er köttur í öðru hverju húsi.
Þeir eru orðnir svo góðu vanir að þeir
bíða bara við diskana eftir túnfiskn-
um og eru hættir að kunna að meta
villibráð. Í rauninni er þetta ástand
áfellisdómur yfir köttum í Vestur-
bænum,“ segir Guðmundur Óli og
skellihlær.
Veggjalúsin farin að láta
á sér kræla
Aðspurður um ástand annarra mein-
dýra segir Guðmundur Óli að önn-
ur óværa, sem tekist hafði að útrýma
hérlendis, sé byrjuð að taka veru-
lega við sér. Það sé veggjalúsin, sem
er blóðsuga sem kann best við sig í
rúmfötum. „Við byrjuðum að verða
varir við hana í kjölfar þess að erlend-
ir farandverkamenn fluttust hingað í
stórum stíl frá lönd-
um þar sem
veggjalúsin
er landlæg.“
Hin gríðar-
mikla aukn-
ing ferðamanna
til landsins hafi
svo ýtt enn frekar undir
þessa óværu.
Flestir í ferðaþjónustunni
með forvarnir
„Mest verða hótelin og gistiheimil-
in vör við þetta. Sem betur fer eru
flestir í ferðaþjónustunni komnir
með forvarnir, það er að segja skor-
dýragildrur, bæði sýnilegar og ósýni-
legar. Þessar gildrur eru með sérstöku
hormóni sem laða kvikindin að sér.
Þannig er hægt að fylgjast með því ef
eitthvað gerist á meðan dvöl gestsins
stendur. Þeir sem
þrífa herbergin
kíkja í gildrurnar á
hverjum degi og þá
er hægt að grípa til aðgerða ef ein-
hver skordýr hafa orðið honum sam-
ferða. Fólk á því að vera ánægt ef það
sér skordýragildrur í hótelherbergj-
um. Það er til vitnis um að eftirlit sé í
gangi. Þegar ég ferðast erlendis þá tek
ég alltaf með mér nokkur límspjöld
og lauma því undir rúmið, ég er svo
hysterískur,“ segir Guðmundur Óli og
hlær. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Guðmundur Óli Scheving meindýraeyðir „Þegar ég ferðast erlendis þá tek ég alltaf
með mér nokkur límspjöld og lauma því undir rúmið, ég er svo hysterískur.“
Veggjalús - Cimex lectularius Á
vef Náttúrufræðistofnunar Íslands er
athyglisverð ráðlegging til að losna við
óværuna: „Þó skal getið einnar leiðar sem
sögð er hrífa. Sá sem gengur til rekkju
með veggjalúsum skal fyrir svefninn
taka inn góðan skammt af svefnlyfjum.
Veggjalýsnar innbyrða lyfin með blóðinu
og sofna værum blundi að neyslu lokinni.
Að morgni má svo fjarlægja þær svefn-
drukknar með rúmfötunum. Ef þetta er
endurtekið í nokkrar nætur má binda
vonir við að flest kvikindin í her-
berginu hafi látið ginnast. Þetta
ráð er ekki selt dýrara en
það var keypt en er e.t.v.
ekki eins fráleitt og það
kann að hljóma.