Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Qupperneq 21
Helgarblað 12.–15. júní 2015 Fréttir Erlent 21
H E I L S U R Ú M
SUMAR
TILBOÐ
ROYAL BASE
Stök dýna 21.595 kr. - NÚ 12.957 kr.
Með botni 66.235 kr. - NÚ 39.741 kr.
(90x200 cm)
ROYAL CORINNA
Stök dýna 64.900 kr. - NÚ 51.920 kr.
(153x200 cm) Einnig til í öðrum stærðum
Í stórhættu á leið í skólann
Eftirskjálftar Grunnskólanemendur í Tókíó notuðu þessar hettur til að vernda sig ef til
annars jarðskjálfta kæmi árið 2011. Nemendunum var uppálagt að ganga með hetturnar til
og frá skólanum og ef þau væru á gangi á götum úti.
Að hruni komin Grunnskólastúlkur leggja leið sína í skólann í Nagari Koto Nan Tigó á
Súmötru. Nemendur frá 46 fjölskyldum þurftu að fara leiðina sem stúlkurnar fara, yfir
stórfljót, þar sem engin brú var á staðnum árið 2012.
Milli ríkja Ungur drengur frá Haítí bíður eftir traustu taki föður síns á leið sinni í skólann.
Fjölskylda hans býr á Haítí en hliðið sem sést á myndinni aðskilur það frá Dóminíska lýð-
veldinu og borginni Dajabon. Drengurinn stundar nám í Dajabon og þarf að leggja talsvert á
sig til að komast í skólann.
Yfir skóginn Theo Harcourt leggur leið sína yfir tré á leið sinni í skólann í Islington í Norður-
London í október 2013. Rok og óveður töfðu samgöngur í borginni, ollu miklum skemmdum
og var óveðrið á endanum nefnt eftir dýrlingnum Jude, en 28. október er dagur hans í
Bretlandi og víðar.
Fyrsti dagur skólaársins Kona fylgir nemendum þar sem þeir vaða yfir grynningar við
strönd í Sitio Kinabuksan norður af Manilla. Þau eru að ganga á afar grýttri strönd á flóði.
Myndin er tekin 1. júní síðastliðinn á fyrsta degi skólans. 24 milljónir barna sækja skóla á Fil-
ippseyjum samkvæmt fréttum þar í landi og hófu nám á þessu misseri í byrjun mánaðarins.
„Kanill getur drepið“
Fjögurra ára drengur kafnaði eftir að hafa fundið kryddið á eldhúsbekk
M
óðir fjögurra ára drengs
sem kafnaði eftir að hafa
borðað kanil varar ung-
menni við „kanil-áskorun-
inni“ og bendir þeim á að hún getur
verið stórhættuleg.
Litli drengurinn, Matthew Rader,
var eftirlitslaus í eldhúsinu á heimili
sínu á miðvikudaginn í síðustu viku
þegar hann fann kryddstauk með
kanil á eldhúsbekknum. Drengur-
inn prílaði upp á eldhúsbekkinn og
ákvað að smakka. „Hann missti al-
veg andann. Það var eins og hann
væri að fá flog og svo missti hann
meðvitund,“ segir móðir hans,
Brianna Rader. Drengurinn var
fluttur í snarhasti á sjúkrahús og var
úrskurðaður látinn 90 mínútum síð-
ar. Jarðarför hans fór fram á mið-
vikudag.
„Kanill getur drepið,“ seg-
ir Brianna. „En ef andlát hans, litla
barnsins míns, getur orðið öðrum
víti til varnaðar lagar það örlítið sár-
ið í hjarta okkar,“ segir hún.
Kanil-áskorunin
Litli drengurinn var að sjálfsögðu
ekki að taka þátt í kanil-áskorun,
heldur sá hann aðeins eitthvað sem
hann vildi prófa. Það er hins vegar
svo að á samfélagsmiðlum er og hef-
ur verið í gangi samkeppni, sérstak-
lega milli ungmenna, þar sem þau
prófa að fá sér teskeið eða meira af
þurru kanildufti. Það reynist yfir-
leitt þrautinni þyngri að kyngja því
og getur að sögn læknis og réttar-
meinafræðings verið stórhættulegt.
Brianna tekur undir það og segir:
„Allir þessir krakkar hugsa ekki um
að þetta getur skaðað þau.“ Rétt-
armeinafræðingurinn úrskurðaði
að andlát Matthew hefði verið slys
og greindi frá því að andlát sem
þessi væru ótrúlega algeng, mun al-
gengari en fólk gerir sér grein fyrir.
Kanill þurrkar upp munnvatn
og mikið magn af honum gerir fólki
erfitt um vik með að kyngja. Í áskor-
uninni er yfirleitt mælst til þess að
fólk reyni að kyngja honum, segi
eitthvað fyndið með munninn fullan
og skori á fleiri að taka þátt. „Það er
líklegt að fólk þurfi að kasta upp eft-
ir að hafa fengið sér kanilinn,“ segir
Elwin Crawford, læknir á sjúkrahús-
inu þar sem Matthew lést.
Hann segir að gall geti að auki
skilað sér og farið ofan í lungun. Það
getur valdið lungnabólgu, samföllnu
lunga og endað með dauða. n
Matthew Rader „En ef andlát hans,
litla barnsins míns, getur orðið öðrum víti
til varnaðar lagar það örlítið sárið í hjarta
okkar,“ segir móðir litla drengsins.