Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Síða 25
Helgarblað 12.–15. júní 2015 Umræða 25
Myndin Mikilvægur leikur „Það er búið að vera kalt og erfitt að fá þau svæði góð sem fóru illa í vetur,“ sagði Kristinn Jóhannsson, vallarstjóri á Laugardalsvelli, í samtali við
DV fyrr í vikunni. Hann telur samt að völlurinn verði í góðu ásigkomulagi fyrir leikinn gegn Tékkum á föstudagskvöld. Mynd sigtryggur ari
Á
vorin, þegar krakkarn-
ir streyma úr skólunum
með möppurnar sínar og
einkunnablöðin, uppskeru
vetrarins, er tími til að þakka fyrir
skólastarf á öllum skólastigum. Að
þakka fyrir leikskólana, grunnskól-
ana, frístundaheimilin og félags-
skapinn við uppeldið.
Mikilvægt er að meta kennslu og
virða þá sem henni sinna, kennara
og leikskólakennara. Fólk sem hefur
ákveðið að leggja stund á uppeldi og
kennslu. Að sinna börnum frá öllum
heimilum, úr öllum stéttum samfé-
lagsins og taka þátt í því með heim-
ilunum og fjölskyldunum að koma
þeim til manns.
Í sterku og samhentu samfélagi
eru góðir skólar sem njóta trausts og
virðingar. Á forsendum samfélags-
ins, heildarinnar og framtíðarinnar.
Stundum hefur verið sagt að sterk-
ur grunnskóli sé eitt öflugasta jöfn-
unartæki sérhvers samfélags. Horn-
steinn jafnaðar og samheldni.
Krakkarnir eru öflugir og bjart-
sýnir og fullir af fyrirheitum og
framtíðardraumum. Unglingar leita
á vit ævintýranna og svo virðist sem
allt sé hægt.
Um leið og bjartsýni og kraftur
einkennir þessa daga eru tilfinn-
ingar blendnar. Hvers konar samfé-
lag erfa þessir krakkar? Hvaða fram-
tíð bíður þeirra á landinu bláa? Er
gætt að innviðum samfélagsins,
jöfnuði og velferð? Er náttúrunni
borgið og sjálfbærni í öndvegi? Er
menntun metin til launa? Er staða
kynjanna jöfn og staða stelpna
sterk?
Vinstri og hægri skipta máli
Með ríkisstjórn ríka fólksins við
stjórnvölinn eru þessi gildi öll í
hættu. Það skiptir nefnilega máli
hvað kosið er. Hægri og vinstri eru
mikilvæg hugtök í pólitík. Hverjir
eiga að borga mest til samfélagsins?
Hverjir eiga að njóta góðs af sam-
félaginu? Hversu miklu máli skipt-
ir jöfnuður og velferð? Allar þessar
spurningar varða grundvöll stjórn-
málanna. Hægri stjórnir hygla þeim
ríku, lækka skatta og einkavæða.
Þannig hefur það verið á öllum tím-
um um allan heim og þannig er það
hér líka. Hægri stjórnir leggja meiri
áherslu á gjaldtöku í heilbrigðis-
og menntakerfinu en minni á sam-
neysluna. Þannig hefur það líka ver-
ið á öllum tímum um allan heim
og þannig er það hér líka. Hægri
stjórnir eru líklegri til skammsýni í
auðlindanýtingu og þeim hættir til
að ganga á auðlindirnar með ósjálf-
bærum hætti. Þannig er það hér
líka.
Samfélagi, náttúru og auðlind-
um er best borgið hjá vinstri stjórn
með græn sjónarmið að leiðarljósi
og þar sem ekkert hik er í því að hafa
kynjasjónarmið í hávegum. Ekki
bara tala um þau heldur láta þau
endurspeglast í sérhverri ákvörðun
og sérhverri ráðstöfun. Það skiptir
máli hvað kosið er. Það skiptir máli
fyrir krakkana okkar og framtíðina.
Allt árið um kring.
Sem betur fer er nú styttra í
næstu kosningar en frá þeim síð-
ustu. Það er mikilvægt að þær kosn-
ingar snúist um þessi grunngildi því
við viljum að Ísland sé spennandi og
áhugaverður kostur fyrir komandi
kynslóðir. Allar kosningar snúast
um komandi kynslóðir, möguleika
þeirra og tækifæri. Nú er tímabært
að hefja undirbúning fyrir þáttaskil
við næstu kosningar. Þegar krakk-
arnir okkar koma út úr skólunum
vorið 2017. Í síðasta lagi. n
Allir eldri kvenlæknar
gerðu þetta
auðólfur gunnarsson segir það hafa verið algengt að nota ekki hanska við þreifingu á kviðvegg. – DV
Þetta
er leikurinn
Heimir Hallgrímsson segir um stórleik toppliða á föstudag að ræða. – DV
Það er ekki
lógískt
stefanía Pálsdóttir segir konur ekki þurfa að hylja sig „af því bara“. – DV
svandís svavarsdóttir
Þingmaður Vinstri grænna
Kjallari
Mest lesið
á DV.is
1 Árás ljónynju Síðustu andartök Kate Chappel Árás ljóns
á tæplega þrítuga konu náðist á mynd
sem hefur ratað á vefinn. Kate Chappel
var bitin til bana af ljóni, en Chappel var
á ferðalagi í Jóhannesarborg og var eitt
af markmiðum ferðarinnar að safna
fjármunum til að vernda dýr frá veiði-
þjófum. Gerði ljónið skyndilega árás
þegar Chappel hafði opnað gluggann til
þess að geta virt dýrin betur fyrir sér.
Lesið: 47.561
2 „Harma upplifun hennar“ Kvensjúkdómalæknir
á eftirlaunaaldri sem borinn er þungum
sökum segir ásakanirnar óréttlátar og
segist harma upplifun Hildar Lilliendahl
af samskiptum þeirra.
Lesið: 42.146
3 „Ég fór inn í hús þar sem aðili var búinn að skera
sig á háls og hann neitaði að
hleypa okkur inn“ Átakanlegar
sögur frá lögreglumönnum sem standa í
kjarabaráttu.
Lesið: 28.881
4 Lögreglumaður fengið þrívegis nálgunarbann
gegn Sunnu Lögreglumaður upp-
lýsti í réttarhöldum yfir Sunnu Guðrúnu
Eaton í Héraðsdómi Reykjavíkur á
miðvikudag að hann hefði þrívegis þurft
að fá nálgunarbann á Sunnu vegna
ónæðis. Sunna er ákærð fyrir að hafa
rofið skilmála nálgunarbanns sem hún
sætti gagnvart lögreglumanninum í
október á síðasta ári.
Lesið: 25.506
5 „Tilfinningin þegar ég sá son minn í fyrsta skipti
var ömurleg“ Jóhann Óli Eiðsson
blaðamaður birti áhrifamikinn pistil
þar sem hann lýsti baráttu sinni við
þunglyndi og hvernig sú barátta hefur
litað samskipti hans við þá sem eru
honum kærastir.
Lesið: 24.108
Í síðasta lagi vorið 2017
„Samfélagi, nátt-
úru og auðlindum
er best borgið hjá vinstri
stjórn með græn sjónar-
mið að leiðarljósi og þar
sem ekkert hik er í því að
hafa kynjasjónarmið í
hávegum.