Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Blaðsíða 31
Helgarblað 12.–15. júní 2015 Kynningarblað - Ferðalög og útivist 3
H
afberg köfunarvörur var
stofnað af Þorvaldi Hafberg
árið 2011 og er fyrirtæki
sem selur, þjónustar og
leigir köfunarbúnað ásamt
ýmsu öðru sem tengist sjó og vatni.
Lögð er áhersla á góða þjónustu og
búnað sem hentar vel íslenskum að-
stæðum.
Fyrirtækið er með aðstöðu í
Kópavogi og er þar með verslun þar
sem boðið er upp á vörur sem tengj-
ast bæði köfun, sundi og bátavör-
um. Vefverslunin kofunarvorur.is er
opin allan sólarhringinn. Nýlega var
vörulína félagsins aukin og býður
nú upp á Aqua Sphere sundfatnað,
fyrir konur og karla. Til sölu eru ekki
aðeins hefðbundin sundföt, held-
ur einnig þríþrautargallar og fleira.
Þríþrautargallarnir eru úr neon-
prene og hrinda frá sér vatni. Með
því minnkar viðnám við líkamann
og sundmaðurinn á að ná meiri ferð
fyrir vikið og halda betri hita. Köf-
unarbúnaður af öllum toga fæst í
Hafberg köfunarvörur í Auðbrekku
í Kópavogi. Gallar, öryggishjálmar,
bátar og bátakerrur, lungu, gleraugu
og í raun nánast allt sem þarf til að
stunda vatnasport á Íslandi.
Skírteini niður á 18 metra
Hafberg köfunarvörur býður upp á
köfunarnámskeið. Að loknu nám-
skeiðinu öðlast þátttakendur al-
þjóðleg réttindi til að kafa niður á
18 metra í þurrgalla og fá alþjóð-
legt skírteini því til staðfestingar.
Námskeiðið er í raun fjórþætt. Þátt-
takendur fá sendan heim fræðslu-
pakka sem þeir kynna sér áður en
verklegar æfingar hefjast. Í fyrsta
tíma er bókleg fræðsla þar sem far-
ið er í saumana á öryggisþáttum og
öllu er lýtur að búnaði og almennri
vitneskju. Kostnaði er stillt í hóf
og verðið fyrir grunnnámskeið er
89.900 krónur.
Kafað undir Skógafoss
Verklegu æfingarnar eru tvíþætt-
ar. Fyrst í stað fara þær fram í sund-
laug, þar sem undirstöðuatriðin
eru æfð. Að þeim loknum er farið í
verklegar æfingar í sjó, sem er í raun
lokahnykkurinn á námskeiðinu.
Þorvaldur segir mikinn áhuga á
köfun og námskeið og kennsla fari
fram nánast daglega. „Við söfn-
um ekki upp í námskeið. Allir sem
hafa samband fara strax í ferli og við
erum að kenna oft í viku.“ Hann er
mjög reyndur kafari og hefur kafað
frá 1992. Hann hefur víða komið á
þeim ferli sem spannar 23 ár. Einn
sérstakasti staðurinn sem hann hef-
ur kafað á, eða öllu heldur undir, er
sjálfur Skógafoss. Hann upplýsir að
þar sé ekki gullkista eins og þjóð-
sagan hermir en þó var mikið af sjó-
birtingi, sem mörgum þykir á við
gull. Fleiri merkir staðir sem Valdi,
eins og hann er kallaður, hefur kaf-
að við er flakið af El Grillo sem ligg-
ur á botni Seyðisfjarðar og hefur oft
komist í fréttir í gegnum tíðina með-
al annars vegna olíuleka. Þá hefur
hann margsinnis skoðað hverastrýt-
urnar merku í Eyjafirði, en lífríkið í
kringum þær er virkilega magnað.
Upplýsingar um vörur og verð
má finna á kofunarvorur.is í síma
612 5441 eða sala@kofunarvorur.is
Auðbrekka 20 í Kópavogi, opið alla
virka daga frá 16.00–18.00. n
Viltu læra að kafa?
Hafberg köfunarvörur bjóða sundvörur, köfunarútbúnað, köfunarnámskeið og bátavörur
Ýsuseiði leitar sér skjóls í örmum risamarglyttu.
Þorvaldur í versluninni í Kópavogi. Steinbítur fylgist grannt með köfurum.
Rauðmagi ver hrognin sín.