Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Blaðsíða 32
4 Ferðalög og útivist - Kynningarblað Helgarblað 12.–15. júní 2015
Aðdragandi og undirbúningur samtakanna stóð í sjö ár - Unnið að fræðsluefni um Holuhraun
Samtökin Vinir Vatnajökuls
V
inir Vatnajökuls eru
hollvinasamtök Vatnajök-
ulsþjóðgarðs. Vatnajök-
ulsþjóðgarður er þjóðar-
gersemi okkar Íslendinga.
Hann er einn stærsti þjóðgarður í
Evrópu og hefur mikla sérstöðu í
náttúrufarslegu tilliti í heiminum,
m.a. vegna þess að þar eru átök
elds og ísa enn í fullum gangi.
Aðdraganda að stofnun Vina
Vatnajökuls og Vatnajökulsþjóð-
garðs má meðal annars rekja til
þess að árið 2002 undirrituðu Alcoa
og Landsvirkjun viljayfirlýsingu
þess efnis að fyrirtækin vilji styrkja
landsvæði umhverfis og norðan
Vatnajökuls. Til að finna farveg fyrir
styrkveitingu fyrirtækjanna þannig
að styrkurinn nýttist þar sem til
var ætlast, var endurvakin tillaga
Hjörleifs Guttormssonar sem hann
lagði fram til Alþingis árið 1998 um
fjóra jöklaþjóðgarða á hálendi Ís-
lands. Þeirri tillögu var breytt 1999
í umhverfisnefnd Alþingis í tillögu
um Vatnajökul einan og sér. Til-
lagan var samþykkt en málið fór
ekki lengra. Á árunum 2003–2004
var unnið að stofnun Vatnajökuls-
þjóðgarðs á vegum ráðgjafarnefnd-
ar sem skipuð var af umhverfisráð-
herra. Þjóðgarðurinn var stofnaður
í júní árið 2008.
Stofnun Vina Vatnajökuls
Þegar ljóst varð að stofnun Vatna-
jökulsþjóðgarðs yrði að veruleika
fóru aðilar í aðliggjandi sveitar-
félögum tilvonandi þjóðgarðs að
vinna að stofnun félags til stuðn-
ings góðum málefnum er vörðuðu
þjóðgarðinn og umhverfi hans.
Undirbúningsvinnan hófst árið
2007, með því að skipaður var átta
manna samstarfshópur fulltrúa
sveitarfélaga og ferðamálasamtaka
frá svæðunum sem liggja að þjóð-
garðinum. Verkefni hópsins var að
undirbúa stofnun hollvinasamtaka
Vatnajökulsþjóðgarðs.
Frá stofnun samtakanna hafa
Vinirnir varið yfir þrjú hundruð
milljónum til að styrktarverkefna.
Samtökin hafa gefið út fræðsluefni
meðal annars, bókina Leiðsögn um
Vatnajökulsþjóðgarð á íslensku,
ensku og þýsku, einu bókina sem
rituð hefur verið um þjóðgarðinn.
Og Upplifðu náttúru Vatnajökuls-
þjóðgarðs með barninu þínu, bók-
in er ætluð fullorðnum sem ferðast
með börn og vilja kynna þeim nátt-
úruna með leik og fræðslu. Þá hafa
Vinirnir gefið út 4 hefti, sem nefnast
Litli landvörðurinn, þau eru ætl-
uð börnum sem heimsækja þjóð-
garðinn. Vinirnir styrktu gerð kvik-
myndarinnar Jöklaveröld sem sýnir
gersemar Vatnajökulsþjóðgarðs.
Kvikmyndina má sjá í gestastofum
þjóðgarðsins Hún ásamt bókum
sem Vinirnir hafa gefið út er til sölu
hjá bókabúðum, vefverslun Vina
Vatnajökuls og í gestastofum þjóð-
garðsins. Þann1. desember síðast-
liðinn opnuðu Vinirnir nýja vef-
síðu, www:vinirvatnajokuls.is, þar
má sjá umsóknir um öll verkefni
sem hlotið hafa styrk frá Vinunum
og niðurstöður verkefnanna um
leið og þær berast.
Unnið að fræðsluefni um
Holuhraun
Mikilvægt starf er unnið hjá Vin-
um Vatnajökuls varðandi Vatna-
jökulsþjóðgarð og umhverfi hans,
segir Kristbjörg Hjaltadóttir, fram-
kvæmdastjóri Vinanna. Hún segir
Vinina nú m.a. vinna að fræðslu-
efni um Holuhraun í samstarfi
við þjóðgarðinn og sýningu sem
sett verður upp í gestastofu þjóð-
garðsins á Kirkjubæjarklaustri.
Einnig er í vinnslu fræðslustefna
fyrir Vatnajökulsþjóðgarð sem
Vinirnir styrkja. Vinirnir líta á
svæðið frá Húsavík austur fyrir land
að Kirkjubæjarklaustri sem mark-
aðssvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.
Svæðið er um 40% af Íslandi en þar
búa aðeins rúmlega 18.000 manns
eða tæplega 6% landsmanna. Þjóð-
garðurinn dregur að gesti og veit-
ir starfstækifæri um leið og hann
treystir íbúum svæðisins til að
hýsa, fæða, fræða og skemmta gest-
um þjóðgarðsins. Vinir Vatnajökuls
óska árlega eftir styrkumsóknum
frá 1. ágúst og stendur umsóknar-
frestur til 30. september. Á vefsíðu
Vinanna býðst öllum að gerast Vin-
ir og styrkja starf samtakanna. n
Hlutverk
og markmið
Samtökin Vinir Vatnajökuls voru
stofnuð þann 21. júní 2009. Hlutverk og
markmið samtakanna er:
n Að afla fjár til að styðja við rannsóknir,
kynningar- og fræðslustarf um Vatna-
jökulsþjóðgarð með það að markmiði
að auka þekkingu almennings og stuðla
að því að sem flestir geti notið náttúru
Vatnajökulsþjóðgarðs.
n Að stuðla að uppbyggingu Vatna-
jökulsþjóðgarðs í samráði við stjórn
þjóðgarðsins og með samstarfi við
hagsmunaaðila, innlenda og erlenda.
n Að efla fræðslu og rannsóknir í Vatna-
jökulsþjóðgarði og næsta umhverfi hans.
n Að styrkja verkefni sem stuðla að
samspili Vatnajökulsþjóðgarðs og
samfélagsins.
n Að beita áhrifum sínum til að efla
samkennd um mikilvægi Vatnajökuls-
þjóðgarðs fyrir nærliggjandi byggðir og
alla landsmenn.
n Að efla skilning umheimsins á mikil-
vægi Vatnajökulsþjóðgarðs og einstakri
náttúru hans á heimsvísu.
Þjóðgarðurinn skartar sínu fegursta.
Myndir Vinir VatnajökUlS
Svartifoss í Skaftafelli.
Morsárjökull.