Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Qupperneq 33
Helgarblað 12.–15. júní 2015 Kynningarblað - Ferðalög og útivist 5
Frábær aðstaða bæði fyrir tjöld og húsbíla - Stutt í sund, golf og gönguleiðir
Tjaldsvæðið á Patreksfirði
V
estfirðir eru ein af nátt-
úruperlum Íslands. Þang-
að finnst mörgum langt að
fara en þeir sem bera gæfu
til þess að ferðast um þetta
elsta landsvæði Íslands sjá ekki eftir
því. Fjöllin eru stórskorin og gróðurfar
frá einum firði til annars ótrúlega mis-
munandi. Einn fjörðurinn er fullur af
reynitrjám á meðan sá næsti er nánast
trjálaus eða ber niður í fjöru. Voldugt
landslagið hrífur þá sem um það fara.
Frábær aðstaða fyrir ferðamenn
Á Patreksfirði, sem er hjarta sunnan-
verðra Vestfjarða, er nýlegt og fallegt
tjaldsvæði með útsýni yfir fjörðinn.
Tjaldsvæðið er staðsett við félags-
heimili bæjarins þar sem góð að-
staða er fyrir ferðamenn. Þar eru
tvær sturtur og salerni og þvottavél.
Eldunaraðstaða fyrir gesti er góð og
setustofa þar sem hægt er að eyða
tíma ef kalt er í veðri. Einnig geta
hópar tekið sig saman og leigt sal og
eldunaraðstöðu í húsinu. Seyrulos-
un er á staðnum og gott aðgengi er að
rafmagni fyrir húsbíla og tjaldvagna.
Stutt í allar áttir
„Hingað koma margir sem fara í dags-
ferðir um firðina og gista svo hér á
tjaldsvæðinu. Það er stutt í allar átt-
ir héðan frá Patreksfirði,“ segir Mik-
ael, umsjónarmaður tjaldsvæðisins.
Dynjandi, Rauðisandur og Látra-
bjarg, minjasafnið á Hnjóti og Selár-
dalur eru fallegir staðir sem allir ættu
að skoða.
„Hér á Patreksfirði eru líka ýmis-
legt við að vera, stutt er í sundlaugina
á staðnum, við erum með ágætan
golfvöll og skemmtilegar gönguleið-
ir. Stúkkuhús er skemmtilegt kaffihús
og Heimsendir er veitingastaður hér í
bænum,“ segir Mikael. n
Patreksfjörður
Hraunborgir – fjölskylduvæna tjaldsvæðið – Sundlaug, golf, minigolf, pool og beinar útsendingar
Falin perla í Grímsnesi
H
raunborgir í Grímsnesi
bjóða upp á fjölbreytta
möguleika fyrir ferðalanga.
Falda perlan í Hraunborg-
um er hins vegar tjaldsvæði
sem stendur skammt frá orlofshúsa-
byggð. Tjaldsvæðið er ekki stórt í
samanburði við mörg af þekktari
tjaldsvæðum en hefur upp á mikla
fjölbreytni að bjóða. „Við hugsum
þetta sem fjölskylduvænt tjaldsvæði
þar sem fjölbreytt afþreying er í
boði,“ segir Guðmundur Svavarsson,
umsjónarmaður Hraunborga.
Sundlaug og golfvöllur
Skemmtileg sundlaug er í Hraun-
borgum og er þar jafnan fjör á sumr-
in. Golfarar finna allt fyrir sitt áhuga-
mál við Hraunborgir. Golfvöllurinn
– Ásgeirsvöllur – er stuttur níu holu
völlur þar sem allar holur er par 3.
„Völlurinn hentar vel byrjendum og
er hann vel sóttur af fólki sem er að
feta sig áfram í íþróttinni. Lengra
komnir æfa gjarnan stutta spilið hér,“
segir Guðmundur. Vallargjald er að-
eins 1.800 krónur og gildir fyrir allan
daginn. Minigolfvöllur er einnig að
Hraunborgum og fastur liður er að
haldin eru golfmót á báðum völlum
um verslunarmannahelgina og hafa
mótin verið vel sótt. Vaxandi fjöldi
fólks leggur leið sína að Hraunborg-
um um verslunarmannahelgi og
nýtur lifandi tónlistar og samveru í
barnvænu umhverfi.
Fjölskylduvænt tjaldsvæði
Einn kostur svæðisins er hvernig það
er byggt upp. „Fólk kemur hingað á
bílnum og leggur honum og allt er í
göngufæri.“ Guðmundur segir allar
nauðsynjar, eins og brauð og mjólk,
til sölu í móttökunni ásamt ís, gosi,
djús, góðum veigum og þess hátt-
ar í Hraunborgum. Vistleg setustofa
býður upp á þægilega stund og bein-
ar útsendingar yfir sumarið eru í
boði þegar þurfa þykir og hægt er að
njóta bjórs og léttvíns, úr kæli. Pool-
borð og fleiri leiktæki eru einnig á
staðnum og leiktæki fyrir börn ut-
andyra. Allir geta fundið eitthvað við
sitt hæfi að Hraunborgum, þessari
perlu í Grímsnesinu sem sífellt fleiri
fá vitneskju um. n
Leikfimi í sundlauginni Fjöldaleikfimi
í sundlauginni um verslunarmannahelgi.
Laugin hefur mikið aðdráttarafl.
Níu holu golfvöllur Golfvöllurinn heitir
Ásgeirsvöllur og er par 3 völlur. Hentar vel
byrjendum.
Aðstaðan í Hraunborgum Allt til alls fyrir þá sem vilja upplifa skemmtilegt tjaldsvæði.
Sundlaug, pottar, golf og leiktæki.