Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Blaðsíða 44
Helgarblað 12.–15. júní 201536 Sport
Helming liðsins
skortir leikform
n Strákarnir okkar almennt í góðu standi n Nokkrir hafa þó ekki spilað í fjórar til sex vikur
H
elming leikmannanna í
líklegu byrjunarliði Íslands
gegn Tékklandi skortir
leikform, samkvæmt mati
DV. Þeir leikmenn sem
leika á meginlandi Evrópu eða á
Bretlandseyjum hafa fæstir spil-
að leik síðan snemma í maí, eða í
fjórar til sex vikur. Álitamál er hvort
hvíldin sé kærkomin eða óþarflega
löng, þegar horft er til leikforms.
Þeirri spurningu geta þeir sjálfir
svarað á vellinum í dag, föstudag.
Almennt er standið á hópn-
um heilt yfir mjög gott og aðeins
einn leikmaður, Ari Freyr Skúla-
son, glímir við smávægileg meiðsli.
Aðrir eru heilir. Til samanburð-
ar mun einn skæðasti sóknar-
maðurinn í tékkneska liðinu, Dav-
id Lafata, verða fjarri góðu gamni
vegna meiðsla. Það eru góðar frétt-
ir eru að leikmennirnir í íslenska
landsliðinu sem spila á Norður-
löndunum eru allir í góðri leikæf-
ingu. Þegar síðasti landsleikur fór
fram var norska deildin í fríi og sú
danska nýlega hafin, svo dæmi séu
tekin. Á heildina litið eru lands-
liðsmennirnir, sem voru í byrjun-
arliðinu í síðasta leik, í góðu formi
og jafnvel úthvíldir. Hér eru þeir
leikmenn sem líklegt er að spili í
dag; byrjunarliðið frá síðasta leik
við Tékka og þeir þrír leikmenn
sem byrjuðu síðasta landsleik,
gegn Kasakstan. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Birkir Már Sævarsson
Félag: Hammerby, Svíþjóð Fæðingarár: 1984
Mínútur frá síðasta landsleik: 1.080
Spilaði síðast 90 mínútur: 7. júní
Niðurstaða: Í formi
Birkir hefur frá því síðasti keppnislandsleikur fór fram
spilað 12 heila leiki í efstu deild í Svíþjóð. Hann hefur spilað alla leikina.
Birkir kom inn í landsliðið í leiknum gegn Kasakstan í fjarveru Theódórs
Elmars, sem var meiddur. Hann er líklegur til að halda stöðu sinni.
Jóhann Berg Guðmundsson
Félag: Charlton, Englandi Fæðingarár: 1990
Mínútur frá síðasta landsleik: 540
Spilaði síðast 90 mínútur: 2. maí
Niðurstaða: Skortir leikform
Jóhann Berg spilaði sex af þeim sjö leikjum sem
Charlton lék frá síðasta landsleik. Aftur á móti hefur hann ekki spilað
leik í sex vikur þegar flautað verður til leiks í Laugardalnum. Jóhann
verður líklega í byrjunarliðinu en gæti verið í betra leikformi.
Eiður Smári Guðjohnsen
Félag: Bolton, Englandi Fæðingarár: 1978
Mínútur frá síðasta landsleik: 288
Spilaði síðast 90 mínútur: Fyrir löngu síðan
Niðurstaða: Skortir leikform
Eiður hefur ekki spilað 90 mínútur frá síðasta
landsleik. Hann hefur aftur á móti í þrígang spilað lungann úr leikjum
Bolton. Hann hefur komið við sögu í sex leikjum og spilað að jafnaði
einn hálfleik. Eiður hefur æft vestanhafs undanfarið og ber sig vel.
Emil
Hallfreðsson
Félag: Verona, Ítalíu
Fæðingarár: 1984
Mínútur frá síðasta
landsleik: 432
Spilaði síðast 90
mínútur: 30. maí
Emil ætti að vera í fínu
formi. Hann hefur spilað
sex leiki frá síðasta
landsleik og hefur fengið
nokkurra daga hvíld. Ekki
víst að hann byrji inn á.
Jón Daði
Böðvarsson
Félag: Viking, Noregi
Fæðingarár: 1992
Mínútur frá síðasta
landsleik: 625
Spilaði síðast 90
mínútur: 7. júní
Jón Daði hefur komið
við sögu í 13 leikjum með
Viking frá leiknum við
Kasaka og hefur skorað í
þeim fjögur mörk. Er í fínu
leikformi.
Gylfi Þór
Sigurðsson
Félag: Swansea, Englandi
Fæðingarár: 1989
Mínútur frá síðasta landsleik: 615
Spilaði síðast 90 mínútur: 17. maí
Gylfi spilaði síðasta leikinn í ensku
úrvalsdeildinni sem fór fram 17. maí
– gegn Manchester City. Þar skoraði
hann mark. Hann hefur fengið
kærkomna hvíld í nokkrar vikur –
eftir að hafa spilað nánast hvern
einasta leik í vetur. Smá spurning er
hvort hvíldin sé of löng.
Kolbeinn
Sigþórsson
Félag: Ajax, Hollandi
Fæðingarár: 1990
Mín. frá síðasta landsleik: 275
Spilaði síðast 90 mín.: 11. apríl
Langt er síðan Kolbeinn spilaði
síðast heilan leik. Hann hefur frá
síðasta landsleik tekið þátt í fimm
leikjum, þar af þremur í byrjunarliði.
Í þessum fimm leikjum skoraði
hann tvö mörk. Ljóst má vera að
Kolbeinn gæti verið í betra leik-
formi – en hann er þó alltaf líklegur
til að skora.
Kári Árnason
Félag: Rotherham, Englandi
Fæðingarár: 1982
Mínútur frá síðasta landsleik: 519
Spilaði síðast 90 mínútur: 2. maí
Rúmur mánuður er síðan Kári lék
síðasta keppnisleikinn í Champ-
ionship-deildinni. Hann hefur
spilað sex leiki frá því flautað var
af í Kasakstan. Í fimm þeirra
spilaði hann 90 mínútur. Ef til vill er
mánaðarhvíld kærkomin eftir langt
og strangt tímabil.
Aron Einar
Gunnarsson
Félag: Cardiff City, Englandi
Fæðingarár: 1989
Mínútur frá síðasta landsleik: 606
Spilaði síðast 90 mínútur: 2. maí
Aron Einar hefur eins og Kári
fengið kærkomna hvíld eftir að
ensku deildarkeppninni lauk. Hann
lék 48 leiki í vetur og var því undir
nokkru álagi. Hann hefur ekki
leikið keppnisleik síðan 2. maí en
óvíst er að það komi að sök.
Hannes Þ. Halldórsson
Félag: Sandnes Ulf, Noregi
Fæðingarár: 1984
Mínútur frá síðasta landsleik: 900
Spilaði síðast 90 mínútur: 7. júní
Norska deildarkeppnin er í fullum
gangi og Hannes er fastamaður í
byrjunarliði Sandnes Ulf í næstefstu deild
Noregs. Fyrir síðasta leik var leikformi
markvarðarins ábótavant en það kom
ekki að sök því Ísland hélt hreinu.
Birkir Bjarnason
Félag: Pescara, Ítalíu
Fæðingarár: 1988
Mínútur frá síðasta landsleik: 1.035
Spilaði síðast 90 mínútur: 5. júní
Birkir er í toppformi. Hann hefur spilað
12 leiki frá síðasta landsleik og verið í
stóru hlutverki hjá Pescara í Seria B. Í
þessum leikjum hefur hann skorað sex
mörk. Hann fórnaði úrslitaleik gegn
Bologna til að spila með landsliðinu.
Ari Freyr Skúlason
Félag: OB, Danmörku
Fæðingarár: 1987
Mínútur frá síðasta landsleik: 760
Spilaði síðast 90 mínútur: 7. júní
Ari Freyr fór meiddur af velli í síðustu
umferð dönsku úrvalsdeildarinnar.
Hann hefur sagst vera á batavegi og er
bjartsýnn á að verða leikfær. Ari hefur
verið fastamaður í liði OB á leiktíðinni
en er sjálfur ekki nógu ánægður með
spilamennskuna.
Theódór Elmar
Bjarnason
Félag: AGF, Danmörku
Fæðingarár: 1987
Mínútur frá síðasta leik: 881
Spilaði síðast 90 mín.: 31. maí
Theódór er byrjunarliðsmaður
í liði Randers í Danmörku og
hefur spilað næstum 10 heila
leiki frá síðasta landsleik. Gæti
misst sæti sitt til Birkis Más.
Ragnar
Sigurðsson
Félag: Krosnodar,
Rússlandi
Fæðingarár: 1986
Mínútur frá síðasta
landsleik: 720
Spilaði síðast 90
mínútur: 30. maí
Niðurstaða: Í formi
Ragnar er fastamaður
í liði Krasnodar, sem
er í toppslagnum
í Rússlandi. Liðið
hafnaði í þriðja sæti
í deildinni í vetur,
jafnt CSKA Moskvu
að stigum. Deildinni
er nýlokið og hefur
Ragnar fengið tveggja
vikna hvíld þegar
flautað verður til leiks
í Laugardalnum.
Í formi
Í formi
Í formi
Tæpur
Skortir
Leikform
Skortir
Leikform
Skortir
Leikform
Skortir
LeikformÍ fo
rmi
Í formi
Í formi