Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Page 48
Helgarblað 12.–15. júní 201540 Lífsstíll
Þrif ehf. | Lækjasmári 86 | 201 Kópavogur | Sími: 8989 566 | www.thrif.net
Fyrirtæki og húsfélög, gerum
tilboð ykkur að kostnaðarlausu
Bjóðum sérhæfða þjónustu fyrir
íbúðir sem eru í túristaleigu
Hefur þú þörf fyrir
þrif
Hallgrímskirkja í
flippaðri kantinum
Eygló M. Lárusdóttir hannar undir sínu eigin merki EYGLO
E
ygló M. Lárusdóttir útskrif-
aðist úr Listaháskólanum
árið 2005. Hún stofnaði fljótt
eftir það sitt eigið merki,
EYGLO.
Hún er einn eigenda verslunar-
innar Kiosk að Laugavegi 65,
en þar reka sjö hönnuð-
ir saman fataverslun.
Hönnunarhornið
heyrði í Eygló til að
fá hennar álit á ís-
lenskri hönnun
og hvað henni er
efst í huga þegar
minnst er á:
Flík: „Milla
Snorrason ullar-
peysan. Ég var svo
lukkuleg að eignast
flíkina um daginn
og þykir mér gaman
að sjá hresst upp á
íslensku ullarpeys-
una. Hún er gerð úr
frábærri litasamsetn-
ingu og munsturgerð.“
Skartgripur: „Orri
Finn er mér efst í huga og þá
helst línan þeirra „Flétta“. Það er
eiginlega með ólíkindum hvernig
þau fara að þessu.“
Bygging: „Hallgrímskirkja! Í
Listaháskólanum var svolítið talað
niður til Hallgríms-
kirkju af því hún á
að vera blanda
af svo mörg-
um stílum.
Mér er alveg
sama um það,
ég elska þessa
byggingu. Hún
er svo hress í
flippaðri kantin-
um.“
Er eitthvað annað
íslenskt sem þér finnst
sérstaklega heillandi?: „Staur-
umbúðirnar. Þær minna mig á
hljómsveitina Stjórnina og góðar
stundir. Ég verð alveg brjáluð ef þau
hjá Freyju fara að krukka í þessu.“
Eiðistorg – „Hvet fólk til að gera
sér ferð þangað og skoða sig um.
Svolítið eins og að ganga inn í tíma-
vél á Benidorm.“ n
Hönn-
unar-
Horn
Kolfinna Von Arnardóttir
kolfinna@artikolo.is
EYGLO Eygló er óhrædd við að nota skopskyn í hönnun sinni.
Falleg hönnun Print er áberandi á flíkum frá EYGLO.
Saumastofa Klapparstíg Flíkurnar eru
að mestu unnar á saumastofunni hennar
Eyglóar á Klapparstíg.
Nýjar íslenskar sápur
Sótthreinsandi, nærandi og mýkja húðina
Á
lfheiður Eva Óladóttir og Bylgja
Bára Bragadóttir hefja íslenska
framleiðslu á froðusápum sem
sótthreinsa, næra og mýkja
húðina. Miana-handsápurnar eru
í hópi fyrstu vörulínu fyrirtækisins
MIA. Um er að ræða alíslenska fram-
leiðslu.
Sápurnar hafa fengið góðar við-
tökur eftir að þær komu í verslanir
í maí síðastliðnum. Nú fást sápurn-
ar í verslunum um land allt. Hægt
er að velja á milli nokkurra ómót-
stæðilegra ilmtegunda en einnig fást
sápurnar án ilmefna.
Hægt er að lesa sér betur til um
sápurnar á heimasíðunni www.mi-
ana.is n