Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Qupperneq 51
Helgarblað 12.–15. júní 2015 Menning 43
miður sé engum nærbuxum hent
á sviðið, enda kasthönd gesta lík-
lega ekki það sem hún eitt sinn var.
Og samt hljómar hann örlítið and-
laus á köflum, kannski ekki gam-
an að syngja sama lagið í hálfa öld.
Í miðju setti er eins og hann taki
fram sín eigin uppáhaldslög frekar
en þau sem áhorfendur vilja heyra.
Hér rísa tónleikarnir hæst, Elvis er
minnst og kántrí á borð við God‘s
Gonna Cut You Down er flutt og ég
fæ minn Cohen með Tower of Song,
lag sem allir gamlir menn á sviði
eiga að syngja. Kynþokkafyllstur
verður hann með Joe Cocker laginu
Leave Your Hat On. Jú, kannski var
eitthvað heillandi við þessa kyn-
slóð karlmanna sem gátu sagt kon-
um að fara úr án þess að hringt væri
í lögguna.
Eftir uppklapp fáum við James
Bond-lagið Thunderball, sem minn-
ir á að Sir Tom var alls staðar in ðe
sixtís. Síðan seinni tíma slagar-
ann Kiss eftir Prince, en það
var alltaf eitthvað afkáralegt
við að sjá kyntröllið leika
eftir kynlífsálfinn. Tom Jo-
nes er kannski ekki einn
af þeim stærstu, en hann
var þarna þegar allt
var að gerast og kvöld
með honum er kvöldi
vel eytt. Hinni löngu
æsku 68-kynslóðar-
innar er brátt að fara
að ljúka. Það er heið-
ur að fá að verða vitni
að dauðateygjunum. n
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
HÚSAVÍK
AKUREYRI
SAUÐÁRKRÓKUR
ÍSAFJÖRÐUR
REYKJAVÍKKEFLAVÍK HÖFN
EGILSSTAÐIR
AVIS bílaleiga sími 591 4000 – avis.is
VANTAR
ÞIG BÍL?
Karl sem elskar konur
Lokað, búið, bless?
n Íslenski skálinn á myndlistarhátíðinni í Feneyjum enn lokaður n Enginn fær að sjá verkið sem Íslendingar greiddu fyrir
Engin viðbrögð frá stjórnvöldum
Á tveggja ára fresti fær mennta- og
menningarmálaráðuneytið boð um
að senda listamann fyrir hönd ís-
lensku þjóðarinnar á tvíæringinn.
Undanfarinn áratug hefur Kynn-
ingarmiðstöð íslenskrar myndlist-
ar haft umsjón með verkefninu. Yf-
irleitt hefur fagráð valið að eigin
frumkvæði listamann og sýningar-
stjóra sem undirbúa skálann, en fyrir
árið 2015 var í fyrsta skipti tekið upp
á því að velja úr innsendum tillög-
um. KÍM er sjálfseignarstofnun sem
lifir að mestu leyti á ríkisstyrkjum. Í
stjórn miðstöðvarinnar sitja fulltrúar
safna og sambanda myndlistarmanna
en einnig fulltrúar tilnefndir af bæði
menntamálaráðuneytinu og utanrík-
isráðuneytinu. Þrátt fyrir þetta álíta ís-
lensk stjórnvöld það ekki vera á þeirra
ábyrgð að beita sér í málinu.
Í svari menntamálaráðuneytisins
við fyrirspurn DV kemur fram að fram-
hald málsins sé í höndum Kynningar-
miðstöðvarinnar og ekki hafi verið
óskað eftir íhlutun að atbeina ráðu-
neytisins í samskiptum við stjórnvöld
í Feneyjum. „Það er eðlilegt hlutverk
mennta- og menningarmálaráðherra
að styðja íslenska myndlist eftir því
sem kostur er, þar með tjáningarfrelsi
listamanna hér á landi jafnt sem á er-
lendri grundu. Sem fyrr segir hefur
Kynningarmiðstöð íslenskrar mynd-
listar á þessu stigi ekki óskað eftir
íhlutun eða atbeina ráðuneytisins í
málinu,“ segir í svari ráðuneytisins.
Utanríkisráðuneytið vísar að
sama skapi á Kynningarmiðstöðina:
„Menningarfulltrúi utanríkisráðu-
neytisins hefur átt sæti í stjórn KÍM
og var á stjórnarfundi 26. maí sl. upp-
lýstur um lokun íslensku sýningarinn-
ar sem og að listamaðurinn hygðist
reyna að fá að opna hana að nýju. Ut-
anríkisráðherra/ráðuneytið telur ekki
tilefni til að bregðast við lokuninni
að svo stöddu en samkvæmt samn-
ingi mennta- og menningarmála-
ráðuneytis og Kynningarmiðstöðvar
íslenskrar myndlistar sér Kynningar-
miðstöðin um þátttöku Íslands í Fen-
eyjatvíæringnum 2015 og ber á henni
ábyrgð. Ekki hefur verið óskað að-
stoðar utanríkisráðuneytisins vegna
lokunarinnar og málið hefur því ekki
komið til kasta utanríkisráðherra,“
segir í svari ráðuneytisins við fyrir-
spurn DV.
24 milljónir plús tveggja ára
starfslaun
Samkvæmt Björgu Stefánsdóttur,
framkvæmdastjóra KÍM, er kostnað-
ur við þátttöku Íslands á tvíæringnum
svipaður og undanfarin ár, milli 50
og 60 milljónir. 24 milljónir, eða tæp-
ur helmingur kostnaðarins, er greidd-
ur af fjárlögum frá menntamálaráðu-
neyti. Kynningarmiðstöðin þarf að
afla meirihluta fjármagnsins annars
staðar frá, en það eru einkaaðilar, ís-
lenskir og erlendir, sem fylla í gatið.
„Þetta er nánast ógerlegt,“ segir Björg
Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri mið-
stöðvarinnar.
Við það má bæta að listamaður-
inn hlýtur þar að auki starfslaun lista-
manna í tvö ár í aðdraganda sýningar-
innar, í þetta skiptið voru það 310.913
krónur á mánuði (árið 2014), eða
7.461.912 krónur. Kostnaðurinn sem
hefur runnið úr vösum skattgreið-
enda undanfarin ár er því um 30 millj-
ónir – og hærri ef við reiknum með því
að hluti almennra framlaga til KÍM fer
í vinnukostnað tengdan tvíæringnum,
en verkefnið er stærsta einstaka verk-
efnið á könnu KÍM sem fær 22,7 millj-
ónir á ári í ríkisstyrki. n