Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Blaðsíða 62
Helgarblað 12.–15. júní 201554 Fólk
Þ
að skemmtilegasta sem ég
veit er að baka fyrir fólk.
Svo finnst mér ennþá betra
ef fólk prófar uppskrift
sem ég gef því. Ég dýrka
það,“ segir Lilja Katrín Gunnars
dóttir, fjölmiðlakona og áhuga
bakari, sem opnaði á dögunum
bloggsíðuna Blaka.is þar sem hún
deilir dýrindis kökuuppskriftum
með lesendum sínum. Með blogg
síðunni er gamall draumur að ræt
ast, en hún hefur lengi haft ástríðu
fyrir bakstri og elskar að deila af
rakstrinum með umheiminum.
„Þetta hefur verið leyndur
draumur lengi, en ég hef ekki haft
nógu mikla trú á sjálfri mér til
að láta hann verða að veruleika.
Það var bara kominn tími til að
ég hefði smá trú á sjálfri mér og
því ákvað ég að slá til núna. Ég er
náttúrlega ekki menntaður bakari
samt,“ segir hún hlæjandi, en bæt
ir við: „En það er rosa mikil ást í
öllum mínum kökum.“
Bakar fram að fæðingu
Það er ekki nema mánuður síð
an Lilja Katrín kom heim frá
Taílandi eftir þriggja mánaða dvöl
þar í landi ásamt fjölskyldu sinni;
kærastanum og þremur börnum.
En það fjórða er á leiðinni. Þegar
blaðamaður nær tali af henni er
hún nákvæmlega gengin fulla
meðgöngu og barnið því vænt
anlegt á hverri stundu. Það hef
ur þó ekki aftrað henni frá því að
baka hverja kökutegundina á fæt
ur annarri og deila vel heppn
uðum uppskriftum á bloggsíð
unni. Henni fannst tilvalið að nýta
þennan tíma, frá því að hún kom
frá Taílandi og fram að fæðingu
barnsins, í að koma síðunni af
stað. „Maður stendur þá allavega
upp úr sófanum og gerir eitthvað,“
segir Lilja Katrín sem er eldhress
þrátt fyrir að vera komin á steypir
inn.
Taílenskar bökunarvörur öðru-
vísi
„Ég ætlaði að byrja á þessu áður en
ég fór út og var með háleitar hug
myndir um að baka í Taílandi, en er
mjög fegin að ég hætti við það. Bæði
af því það var nóg annað að gera og
svo eru eldhúsin í Taílandi ekki mjög
flott. Fyrir utan að allar bökunarvör
ur bragðast öðruvísi. Það er ótrú
lega skrýtið, meira að segja hveitið er
öðruvísi. Ég bakaði einu sinni köku
þarna úti og hún var ekkert sérstak
lega góð,“ segir Lilja Katrín hlæjandi.
Hún setti því hugmyndina í salt á
meðan hún var úti, en var þó búin að
undirbúa síðuna að einhverju leyti.
Lilja Katrín er óhrædd við að
prófa sig áfram með hinar ýmsu
uppskriftir. „Mér finnst svo gam
an að prófa eitthvað nýtt. Stund
um heppnast það og stundum ekki,“
segir hún kímin, en viðurkennir að
misheppnuðu kökurnar rati aldrei
á bloggið. En hver borðar svo allar
þessar kökur? „Ég á mjög svangan
unglingsstjúpson sem er góður
smakkari. Svo er frystirinn orðinn
ansi fullur. En ég er líka mjög dug
leg að fara með kökurnar og gefa ein
hverjum og bjóða fólki í heimsókn.
Ég má sjálf eiginlega ekki við meiru.
Fólk er mjög velkomið í heimsókn til
mín og ég á alltaf til kökur,“ tekur hún
skýrt fram, svo það sé alveg á hreinu.
Erfitt að koma heim
Lilja Katrín viðurkennir að það séu
ansi mikil viðbrigði að koma aftur
heim til Íslands eftir þriggja mánaða
dvöl í Taílandi. „Mér fannst mjög
erfitt að koma heim, án gríns. Ekki
bara út af veðrinu, heldur líka verð
laginu og almennri stemningu. Ég
náði að slaka svo vel á og maður
verður mun bjartsýnni og hressari
þegar það er alltaf sól. Svo kom
um við heim í hversdagslífið og ég
kveikti ekki á fréttum í mánuð. Bara
nennti ómögulega að taka þátt í röfl
inu,“ segir Lilja Katrín sem sagði upp
starfi sínu sem blaðamaður á Frétta
blaðinu þegar hún hélt á vit ævin
týranna í Taílandi. Aðspurð segist
hún ekkert vita hvað tekur við eftir
fæðingarorlof en viðurkennir að það
sé erfitt að slíta sig frá fjölmiðlun
um. Hún fær þó einhverja útrás fyr
ir skrif á blogginu sínu og hver veit
nema hún leggi baksturinn fyrir sig.
Blaka.is hefur allavega vakið athygli,
sérstaklega hjá sælkerum sem njóta
þess að skoða matarblogg og prófa
nýjar uppskriftir. „Ég er eiginlega
hálf hissa á viðbrögðunum. Fólk er
að taka virkilega vel í þetta, sem er
mjög skemmtilegt. Ég bjóst ekki við
neinu, enda er þetta bara ég að baka
og röfla á netinu.“
Lilja Katrín segir allar uppskrift
irnar vera mjög einfaldar og að allir
geti bakað þær. „Ég er ekki það ná
kvæm að ég nenni að hafa mikið ves
en í kringum baksturinn. Það flókn
asta inni á síðunni er marengs og
það geta allir bakað marengs. Maður
þarf bara að nenna að bíða eftir því
að hann þeytist,“ segir Lilja Katrín
hlæjandi að lokum. n
Fæst í FK , Hagkaupum, Byko,Net tó og Krónunn i Se l foss i
Heimilisskammtari
fyrir ál-og plastfilmur
Engar flækjur - Ekkert vesen
• Klippir álfilmur og plast
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
• Afar auðvelt í notkun
„Það er mikil ást í
mínum kökum“
n Lilja Katrín opnaði nýlega bloggsíðuna Blaka.is n Prófar sig áfram með kökuuppskriftir
„Það skemmtileg-
asta sem ég veit er
að baka fyrir fólk
Komin níu mánuði á leið Lilja Katrín lætur fulla meðgöngu ekki aftra sér frá því að baka.
Girnilegar Lilja Katrín segir allar kökuupp-
skriftirnar á blogginu vera frekar einfaldar.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is