Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Side 39
Helgarblað 25.–29. júní 2015 Kynningarblað - Sumarhátíðir 3
Kvöldið endar með stór-
kostlegri flugeldasýningu
Sumar á Selfossi með sléttusöng og brennu
B
æjarhátíðin Sumar á Sel-
fossi verður haldin dagana
7. til 9. ágúst, frá fimmtu-
dags til sunnudags. Sumar
á Selfossi er rótgróin bæjar-
og fjölskylduhátíð er haldin árlega
aðra helgina í ágúst en hún var fyrst
haldin árið 1995. Um er að ræða
stærstu bæjarhátíðina á Suðurlandi
og verður nóg að gera fyrir alla.
Þessa helgi skreyta bæjarbúar
heimili, götur og torg í litum hverf-
anna. Mikil samkeppni er á milli
hverfa, hugmyndaflug óþrjótandi
í skreytingum og um að gera að
skoða þessa umhverfislist.
Einn af hápunktum hátíðarinnar
er sameiginlegur morgunverður á
laugardagsmorgni, haldinn í stóru
tjaldi í miðbæjargarðinum. Þangað
eru allir velkomnir til að gæða sér
á morgunmat og hittast og spjalla
undir harmoníkutónlist. Morgun-
verðurinn er í boði fyrirtækja af
svæðinu; Guðna bakara, Mjólkur-
búinu, kjötvinnslunni Krás, Köku-
gerð HP, Bónus, Samkaupum ásamt
fleirum.
Á laugardagskvöldinu verður
kveikt í brennu og sunginn sléttu-
söngur í miðbæjargarðinum und-
ir dyggri leiðsögn tónlistarmanns,
í fyrra var það Ingó Veðurguð. Á
sléttusöngnum verða veitt verð-
laun fyrir best skreytta hverfið og
munu íbúar hörðustu hverfanna
mæta klæddir sínum einkennislit-
um. Kvöldið endar svo með stór-
kostlegri flugeldasýningu og sveita-
balli í tjaldinu.
„Við erum full tilhlökkunar, há-
tíðin er mjög skemmtileg og mik-
il lyftistöng fyrir bæjarfélagið, við
ætlum að endurtaka leikinn í ár og
vonum að fólk taki helgina frá til að
gleðjast með okkur á Suðurlandi,“
segir Guðjón Bjarni Hálfdánarson,
þjálfari Knattspyrnuliðs Árborgar
og skipuleggjandi hátíðarinnar, en
knattspyrnuliðið er framkvæmda-
aðili hátíðarinnar í samstarfi við
sveitarfélagið.
Brúarhlaupið verður á sínum
stað, en það var haldið í fyrsta sinn í
fyrra. Þá keppti ofurhlauparinn Kári
Steinn Karlsson sem hljóp tíu kíló-
metra á 30 mínútum og 40 sekúnd-
um, við boðhlaupslið Knattspyrn-
ufélags Árborgar sem kom í mark
þremur mínútum síðar.
Á sunnudeginum verður haldinn
hinn árlegi Delludagur með frá-
bærri dagskrá í Hrísmýri á Selfossi
eða fyrir utan á, eins og heimamenn
segja. Þar verður kassabílarall, drift,
spólsýning, drulluspyrna og fleira
sem mun freista bílaáhugamanna.
Delludagurinn er haldinn af Bif-
reiðaklúbbi Suðurlands og hefur
verið í samstarfi við Sumar á Sel-
fossi frá árinu 2012.
Dagskráin verður samofin Olís
fótboltamóti sem fer fram á Sel-
fossi sömu helgi og mæta margir
þátttakendur mótsins í morgun-
matinn, á varðeldinn, sléttu-
sönginn og til þess að horfa á flug-
eldasýninguna. n