Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Blaðsíða 53
Afmælisblað 8. september 20154 40 ára
É
g tók tali fimm starfsmenn
Dagblaðsins sem voru með
alveg frá byrjun, þá Jóhannes
Reykdal, útlitsteiknara
blaðsins (JR), Jóni Birgi
Pétursson fréttastjóra (JBP), Sigurð
Hreiðar blaðamann (SH), Má E.
M. Halldórsson afgreiðslustjóra
(MH) og Svein R. Eyjólfsson fram
kvæmdastjóra (SRE).
Forsaga stofnunar Dagblaðsins
var sú að sumarið 1975 hótuðu til
teknir aðilar innan Stéttarsambands
bænda að beita Heklu hf. viðskipta
banni vegna skrifa Jónasar Krist
jánssonar, ritstjóra Vísis, um land
búnaðarmál. Stjórnarformaður
útgáfufélags Vísis á þeim tíma var
Ingimundur Sigfússon, forstjóri
Heklu, sem flutti inn margvísleg tæki
til landbúnaðar og jarðvinnslu. Svo
fór loks að Jónasi var sagt upp störf
um. Þeir Sveinn og Jónas veltu því
upp þeirri hugmynd að stofna nýtt
dagblað og flestir reyndustu blaða
menn Vísis lýstu sig fúsa til þátttöku
í slíku verk efni. Stjórn Reykjaprents,
útgáfufélags Vísis, fór fram á lögbann
við því að Jónas Kristjánsson not
aði nafnið „Nýr Vísir“ á blaðið. Lög
bannið náði fram að ganga og var
lagt á í fógetarétti Reykjavíkur. Þetta
varð kveikja að auglýsingum fyrir hið
nýja dagblað.
MH: Auglýsingarnar vöktu mikla
athygli. Sér í lagi sjónvarpsauglýs
ingarnar, þar sem sagði: „Vísir að
dagblaði – LÖGBANN!“
Undirbúningur að stofnun Dag
blaðsins fór fram á heimili Jónasar
Kristjánssonar að Fornuströnd á
Seltjarnarnesi. Eftir vinnudag á Vísi
komu þangað þeir starfsmenn sem
hugðust taka þátt í stofnun nýs blaðs.
JR: Ég kom skömmu síðar. Ég var
í Noregi þegar undirbúningurinn
hófst.
SH: Menn veltu því mikið fyrir
sér í „gryfjunni“ á Fornuströnd hvað
blaðið ætti að heita og fljótlega kom
upp nafn Dagblaðsins.
„Gryfjan“ var í stofunni heima hjá
Jónasi Kristjánssyni á Fornuströnd á
Seltjarnarnesi. Þar var bollalagt um
framtíð blaðsins.
JR: Jú, endurreisa Dagblaðið. Ég
annaðist útlit blaðsins og bjó til al
veg nýtt „lúkk“.
JBP: Vinur minn í Stokkhólmi
hafði stungið Aftonbladet í vasa
minn, sagði mér að fá hugmyndir um
útlit og efnistök þaðan. Það leiddi til
þess að við hófum birtingu mynda af
blaðamönnum með greinum þeirra.
Þetta vakti mikla lukku.
SRE: Dagana áður en útgáfan
hófst var heimilissýning í Laugar
dalshöllinni, þar sem við komum
upp bás og spiluðum í sífellu
einkennis lag blaðsins: „ Dagblaðið
– Dagblaðið – Dagblaðið er óháð
og frjálst.“ Þar söfnuðum við fjölda
áskrifenda.
JBP: Herbert Guðmundsson
samdi lagið og einnig annað lag sem
þó var ekki notað.
Fundað í 17 klukkustundir
Upphaflega var gert ráð fyrir fá
blaðið prentað hjá Blaðaprenti hf.
sem annaðist prentun Vísis, Alþýðu
blaðsins, Tímans og Þjóðviljans, en
Sveinn og Jónas áttu tæplega fjórð
ungshlut í Blaðaprenti. Hvernig gekk
að fá blaðið prentað þar?
SRE: Haldinn var 17 klukku
stunda langur fundur í stjórn
Blaðaprents um það hvort prenta
ætti blaðið, en fundað var á skrif
stofum Framsóknarflokksins við
Rauðar árstíg. Ingi R. Helgason, full
trúi Þjóðviljans, stóð með okkur,
framsóknarmenn voru á móti, en
kratarnir tvístígandi. Þar sem við
sátum þrír saman ég, Jónas og Ingi
R. varð Jónasi á orði: „Ég er hættur!“
en honum þótti sýnt að þetta tækist
ekki. Ingi R sagði þá við mig: „Farðu
út með manninn.“ Sem ég gerði og
gekk með Jónasi um Norðurmýrina í
klukkutíma og talaði hann til.
Svo fór að lokum að meirihluti
stjórnar Blaðaprents féllst á að
prenta blaðið. En hvernig höfðu
átökin á Vísi komið við starfsmenn
ina?
JR: Það voru búin að vera leiðindi
og nudd.
JBP: Það var legið í mér að fara
ekki frá Vísi.
SH: Ég var raunar búinn að segja
upp.
MH: Við fylgdum Sveini. Sumir
hefðu fylgt Sveini hvert sem var.
Menn voru bara óðir í þetta verkefni.
Hvar var skrifstofunum komið
fyrir?
SRE: Við komum okkur fyrir á
skrifstofu Hilmis í Síðumúla, þar sem
Vikan var gefin út og þrengdum bara
að Vikunni.
JBP: Það var furðulegt að koma
inn á ritstjórnina, fjöldi skrifborða.
Mjög þétt reyndar, öll voru þau sólar
gul á lit. Okkur þótti þetta flott.
Ekki tjaldað til einnar nætur
Í ársbyrjun 1976 tók stjórn Blaða
prents þá ákvörðun að henda Dag
blaðinu alfarið út úr prentsmiðjunni.
Dagblaðsmönnum var gefinn þriggja
vikna frestur áður en sú ákvörðun
tæki gildi. Nú voru góð ráð dýr, enda
aðeins ein önnur prentsmiðja hér
lendis sem gat prentað dagblöð,
en það var Prentsmiðja Morgun
blaðsins.
JR: Þegar prentunin var í upp
námi þá vorum við búnir að fá vilyrði
fyrir prentvél frá Maine í Bandaríkj
unum. Vélina átti að flytja inn með
flugi, en hún var of há fyrir Gull
faxa. Mér var bent á að hægt væri að
klippa rúllur ofan af henni. Þannig
var búið að sjá fyrir öllu. Það var al
veg sama hvaða hindranir urðu á
vegi okkar við stukkum yfir þær allar.
SRE: Ég átti þá í viðræðum
við Harald Sveinsson, fram
kvæmdastjóra Árvakurs, um að
þeir tækju að sér prentunina og
tjáði honum að við værum þess
albúnir að flytja inn prentvél sjálfir.
Haraldur tók af mér það loforð að
ekki yrði tjaldað til einnar nætur og
úr varð að hann, Leifur bróðir hans
og Gunnar Hansson arkitekt mynd
uðu meirihluta í stjórn Árvakurs sem
studdi þá tillögu að taka Dagblaðið
til prentunar. Geir Hallgrímsson, for
maður stjórnar og forsætisráðherra,
var á móti. Gunnar Hansson átti svo
síðar eftir að teikna hús DV í Þver
holti.
JBP: Þetta var í fyrsta skiptið sem
stjórn Árvakurs klofnaði. Blaðaprent
fór á hausinn eftir þetta.
SRE: Áður átti alltaf að vera 10
prósent hagnaður af rekstri Blaða
prents, en héðan í frá var samþykkt
að reka félagið á núlli og Blaðaprent
var síðan látið niðurgreiða tapið af
blöðunum.
Hið nýja dagblað kallaði sig óháð
og frjálst. Í hverju birtist það?
MH: Embættismaður í ónefndri
ríkisstofnun hringdi til okkar þegar
blaðið var að byrja og kvaðst vilja
styrkja okkur og fá tíu blöð í áskrift.
Ég sagði honum að honum væri vel
komið að fá áskrift en við vildum
ekki styrki. Síðar seldum við ríkis
stofnunum blaðið í áskrift, enda gátu
þær ekki án þess verið.
JR: Fyrirkomulagið var þannig að
ríkið var áskrifandi að 600 eintökum
sem fóru upp í Arnarhvol og var
dreift á hinar ýmsu stofnanir. Þetta
var ekkert annað en ríkisstyrkur og
við vildum enga styrki.
Fimm Dagblaðsmenn, sem voru með allt frá
byrjun, teknir tali í hringborðsumræðum.
Mummi meinhorn Hann var vinsælt hrekkjusvín.
Samfellt ævintýri
Fræknir félagar Frá vinstri:
Jóhannes Reykdal, Sveinn R.
Eyjólfsson, Már E. M. Halldórsson,
Sigurður Hreiðar og Jón Birgir
Pétursson.