Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Blaðsíða 79
Vikublað 8.–10. september 201558 Sport
Satis.is
Satis ehf | Fákafeni 9 | Sími: 551 5100 | www.satis.is
Sjáðu SKY
með NowTV
netmyndlykli
Ekki lengur þörf að setja upp disk.
Kauptu SKY áskrift af Entertainment,
Sky Movies eða Sky Sports þegar þér
hentar í viku eða mánuð í senn.
Verð frá 3.490 kr. á mán.
Enginn
binditími
Eitt fullkomnasta VOD kerfi í heimi
„Lars er
taktískur
snillingur“
n Formaður KSÍ vill að landsliðsþjálfararnir haldi áfram eftir EM n Búið að ganga frá bónusum
G
eir Þorsteinsson, formað
ur KSÍ, er að vonum hæst
ánægður með að hafa ráðið
Svíann Lars Lagerbäck sem
landsliðsþjálfara árið 2011,
enda er íslenska karlalandsliðið á leið
á lokakeppni EM næsta sumar í fyrsta
sinn í sögunni eftir jafnteflið gegn
Kasakstan á sunnudagskvöld.
Taktískur snillingur
„Áður en ég réði hann höfðum við
hist, meðal annars þegar við spiluð
um við Svía og ég vissi hvaða mann
hann hafði að geyma. Það var mjög
ánægjulegt að fá hann til starfa fyr
ir okkur,“ segir Geir, sem var að sjálf
sögðu í sigurvímu þegar blaðamaður
ræddi við hann.
Spurður hvað hefði breyst hjá
landsliðinu með tilkomu Svíans seg
ir Geir að hann hafi þekkt það af eig
in reynslu að leiða lið alla leið í úrslit
á stórmótum. „Hann hafði reynsl
una og ég held að það sé ekki ofsög
um sagt að hann sé taktískur snilling
ur. Ég held að þú finnir ekki marga í
heiminum sem eru eins góðir í því.“
Sá efniviðinn í Danmörku
En hafði Geir trú á því að karlalands
liðið kæmist í lokakeppni á stórmóti
áður en Lagerbäck var ráðinn? „Ég
hafði gríðarlega trú á þessum hópi.
Maður sá það vel í Danmörku [á loka
keppni U21 árs liðsins 2011] að þarna
vorum við komnir með gríðarlegan
efnivið. Ég sá hvernig þeir stigu upp
þar. Við áttum að fara í undanúrslit og
þarna sá ég að við vorum komnir með
rosalega öflugt lið og kjarna sem gæti
myndað framtíðarlið.“
Hafa öfundað aðrar þjóðir
Knattspyrnusamband Íslands fær
1,7 milljarða króna frá Evrópska
knattspyrnusambandinu fyrir að
komast í lokakeppni EM. Geir seg
ir það fyrst og fremst vera stóra
lyftistöng fyrir íslenska knattspyrnu
að komast í lokakeppnina. Bónusinn
sé að ávinningurinn er líka fjárhags
legur. Fyrst þarf þó að einbeita sér að
fótboltanum og klára undankeppn
ina. „Við erum alveg meðvitaðir um
að það fylgja því miklar tekjur að
komast í lokakeppni. Við höfum horft
öfundaraugum á þær þjóðir sem þar
hafa verið reglulega og þá miklu fjár
muni sem þær hafa fengið úr sjóð
um UEFA og FIFA, sem við höfum
ekki notið fyrr en munum gera í fyrsta
skipti á næsta ári. Það verður mik
il lyftistöng fyrir okkur fjárhagslega,“
segir hann.
Völlur, hótel og læknamiðstöð?
Hvað ætlar Geir að gera við pening
ana sem frúin í Hamborg gaf honum?
„Ég hef ekki stýrt KSÍ þannig að við
höfum eytt peningunum fyrirfram,“
svarar hann varkár.
Þegar hann er spurður hvort
endurbættur Laugardalsvöllur sé
ekki á óskalistanum segir hann um
breytingar á vellinum vera mjög
mikilvægar. Koma þurfi fleira fólki
á leikina, vegna aukinna vinsælda
landsliðsins, og nefnir að völlurinn
þyrfti að taka ekki færri en 20 þúsund
áhorfendur.
„Það sem við þyrftum er leikvang
ur sem er lifandi, sem gæti skilað tekj
um allt árið. Þetta er ákveðinn fjöldi
af knattspyrnuleikjum en það þarf að
vera þjónusta í byggingunum, ekki
bara sæti. Það þarf kannski að vera
hótel, læknamiðstöð, veitingastaðir
eða annað sem getur rekið slík mann
virki.“
Burt með hlaupabrautina
Hann telur það algjört skilyrði að
losna við hlaupabrautina af Laugar
dalsvellinum. „Það er löngu orðið
tímabært að það verði byggður sér
stakur leikvangur fyrir frjálsar íþróttir.
Hlaupabrautin hér uppfyllir á engan
hátt alþjóðlegar kröfur lengur.“
Bónusar klárir
Geir lét hafa eftir sér fyrir tveimur
árum að ef landsliðið kæmist í loka
keppni HM myndi KSÍ borga leik
mönnunum bónusa. Ekkert varð af
því en hvernig verður þessu hátt
að núna? Fá leikmenn og þjálfar
ar bónusa fyrir að komast til Frakk
lands? „Já, við höfum samið um það.
Það er frágengið mál en ég ætla ekki
að upplýsa meira um það á þessari
stundu,“ segir hann.
Vill Lagerbäck áfram
sem þjálfara
Lars Lagerbäck hefur talað um að
hann ætli að hætta knattspyrnuþjálf
un eftir lokakeppnina næsta sumar
en 30 ár eru liðin síðan hann hóf þjálf
araferil sinn. Til stendur að Heimir
Hallgrímsson, sem þjálfar landsliðið
með honum, taki alfarið við stjórn
inni. Geir segir það enga spurningu
að KSÍ vilji hafa bæði Lagerbäck og
Heimi áfram við stjórnvölinn. „Núna
ætlum við að setjast niður og spjalla
saman. Við höfum ekki gert það enn
þá. Þegar ég ræddi fyrst við Lars þá
var hann að hætta en ég sannfærði
hann um að koma. Hann gerði það
af því að hann þekkti til okkar stráka
og hafði mikinn áhuga. Svo tókst mér
að sannfæra hann um að vera tvö ár
í viðbót. Þannig að það er eitt skref í
einu í þessu,“ segir formaðurinn. „Það
má ekki gleyma þætti Heimis, sem er
frábær. Hann hefur staðið sig gríðar
lega vel og það má alls ekki vanmeta
hans miklu og góðu störf með Lars.“
Draumur síðan í barnæsku
Geir getur ekki beðið eftir því að sjá
íslenska landsliðið spreyta sig á EM
í Frakklandi næsta sumar. „Það er
mjög spennandi að upplifa þetta
allt saman. Frá því maður var ung
ur drengur er maður búinn að horfa
á hverja einustu úrslitakeppni í sjón
varpi og stundum fara á leiki en núna
fær maður að upplifa þetta með
sitt eigið lið, sem er búinn að vera
draumurinn,“ segir hann. n
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Ánægður Geir Þorsteins-
son ásamt Lars Lagerbäck
landsliðsþjálfara.
MynD SigTryggur Ari JóHAnnSSon
Ísland eins og
hálf Ósló
Umsagnir erlendra miðla
„Fyrir leikinn sagði þjálfarinn Lars Lager-
bäck að ef Ísland kæmist í lokakeppnina
myndi það hafa meiri þýðingu en að
komast þangað með Svíum. Ísland hefur
færst upp um 100 sæti á FIFA-listanum
síðan Lagerbäck tók við stjórninni árið
2011. Núna er liðið í 23. sæti, fyrir ofan
þjóðir á borð við Frakkland, Úkraínu og
Rússland.“ - BBC
„Hugsið ykkur að þjóð með 330 þúsund
manneskjur, sem er eins og hálf Ósló eða
þrír Camp Nou-leikvangar, geti safnað
saman ellefu mönnum sem virðast geta
unnið hvaða þjóð sem er.“ - Verdens
gang
„Markalaust jafntefli á rigningarkvöldi
í Reykjavík var nóg til að tryggja Íslandi
sæti í lokakeppni EM næsta sumar.
Þetta verður fyrsta lokakeppni liðsins,
sem er ótrúlegt vegna þess að innan við
350 þúsund manns búa á þessari litlu
eyju.“ - nBC
„Ísland hefur í mörg ár verið talið minni
máttar í fótbolta. Það hefur breyst síð-
ustu ár, því U-21 árs liðið hefur áður kom-
ist í lokakeppni EM.“ - Jyllandsposten
„Á meðan stórveldið Holland virðist
ætla að missa af lokamóti EM hefur hið
pínulitla Ísland tryggt sér þátttökurétt í
fyrsta sinn.“ - Cnn
Kjörinn leiðinlegastur í Svíþjóð
Fulltrúar sænskra fjölmiðla voru mættir á
Laugardalsvöll á sunnudaginn, gagngert
til þess að fylgjast með því þegar Lars
Lagerbäck og íslenska liðið myndu tryggja
sætið á Evrópumótið.
Í samtali DV við blaðamann Aftonbladet
sannaðist hið forkveðna að enginn veit
hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Lager-
bäck skilaði frábæru starfi með sænska
liðið en eftir því sem á leið þá súrnaði
samband hans við sænska blaðamenn og
í raun sænsku þjóðina, sem náði hámarki
þegar hann var kjörinn „Leiðinlegasti
maður Svíþjóðar“. Sænskir fjölmiðlar
fylgjast núna grænir af öfund með ár-
angrinum sem Lagerbäck er að ná með ís-
lenska liðið og ljóst er að frægðarsól hans
rís hátt þessi misserin í heimalandinu.