Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Blaðsíða 89
Vikublað 8.–10. september 201568 Lífsstíll
Barónsstíg 11 - 101 Reykjavík
Sími: 551 9555
argentina.is
Borðapantanir
551 9555
Þú átt skilið að njóta hins besta
- prófaðu Black Angus rib eye við fyrsta tækifæri
130 daga kornalið og 45 daga hægmeyrnað
t
Hvað er það sem að þínu mati ein-
kennir góða garðhönnun?
„Ef garðeigandinn kemur heim eftir
góðan vinnudag, staldrar örstutt
við í eldhúsinu til að ná sér í kaffi
eða góðan svaladrykk og fer beint
út í garð til að slaka á, þá er garð-
urinn vel hannaður. Til þess að svo
megi verða þarf að vera þrenns kon-
ar skjól. Skjól fyrir vindum, skjól fyrir
regni og skjól fyrir forvitnum augum.
Margir þeirra garða sem ég er
hvað ánægðastur með hafa fæðst
upp úr hugmynd garðeigandans.
Þá hefur hann séð einhverjar hug-
myndir í sumarfríinu eða séð fallega
mynd í blað eða á netinu. Sú hug-
mynd er svo aðlöguð aðstæðum
á staðnum, íslensku veðurfari og
draumum garðeigandans. Þannig
hafa margar þeirra útfærslna sem
ég nota í dag orðið til úr góðu sam-
starfi.
Á seinni árum hef ég lagt meiri
áherslu á endingu en með því
að nota íslenskt grjót, steypu og
endingargóðar viðartegundir má
lengja líftímann um áratugi.“
Er eitthvað sem kalla má séríslenskt í
þessum efnum?
„Ég myndi segja að Íslendingar séu
mjög framarlega í skandinavískri
garðhönnun. Íslenskir garðar ein-
kennast af rúmgóðum stéttum og
pöllum, notadrjúgum bílastæðum,
vönduðum grillum og vel nýttum
heitum pottum. Línur eru gjarnan
skýrar og gróðurval stílhreint.
Birki og reyniviður geta verið ein-
kennandi trjátegundir sem gefa ís-
lenskt yfirbragð.
Ef við horfum til framtíðar mun-
um við sjá mun meira af sjálfbærum
útfærslum. Algengara er að endur-
nýta hellur, flutningagámar verða
að geymslum sem grafnar eru inn
í hól og innan örfárra ára verður
gott framboð af íslensku timbri.
Það er einnig algjör bylting í ætum
gróðri en ég hanna varla þann
garð í dag þar sem ekki eru berja-
runnar, ávaxtatré og grænmetis-
garður. Gróðurhús þar sem hægt
er að undirbúa sáningu og rækta
græðlinga eru einnig að sækja í sig
veðrið. Að lokum má nefna að með
aukinni vitund um mikilvægi góðrar
heilsu eru púttvellir og lyftingatæki
að ryðja sér til rúms í görðum lands-
manna.“ n
Ávextir í görðum Það er varla hannaður sá garður í dag þar sem ekki eru ávaxtatré eða berjarunnar en hér má tína ávexti beint af pallin-
um á haustin.
Minigolf Fyrir þá sem vilja frekar slá kúlu en gras er þessi lausn upplögð. Auk þess að vera
gott undirlag fyrir púttvöll má einnig leggja handklæði á gervigrasið, leggjast og njóta sólar.
Stuðlaberg Stuðlaberg er einkennandi fyrir íslenskt landslag og getur gefið garðsvæði sérstakan íslenskan blæ.