Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Page 89

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Page 89
Vikublað 8.–10. september 201568 Lífsstíll Barónsstíg 11 - 101 Reykjavík Sími: 551 9555 argentina.is Borðapantanir 551 9555 Þú átt skilið að njóta hins besta - prófaðu Black Angus rib eye við fyrsta tækifæri 130 daga kornalið og 45 daga hægmeyrnað t Hvað er það sem að þínu mati ein- kennir góða garðhönnun? „Ef garðeigandinn kemur heim eftir góðan vinnudag, staldrar örstutt við í eldhúsinu til að ná sér í kaffi eða góðan svaladrykk og fer beint út í garð til að slaka á, þá er garð- urinn vel hannaður. Til þess að svo megi verða þarf að vera þrenns kon- ar skjól. Skjól fyrir vindum, skjól fyrir regni og skjól fyrir forvitnum augum. Margir þeirra garða sem ég er hvað ánægðastur með hafa fæðst upp úr hugmynd garðeigandans. Þá hefur hann séð einhverjar hug- myndir í sumarfríinu eða séð fallega mynd í blað eða á netinu. Sú hug- mynd er svo aðlöguð aðstæðum á staðnum, íslensku veðurfari og draumum garðeigandans. Þannig hafa margar þeirra útfærslna sem ég nota í dag orðið til úr góðu sam- starfi. Á seinni árum hef ég lagt meiri áherslu á endingu en með því að nota íslenskt grjót, steypu og endingargóðar viðartegundir má lengja líftímann um áratugi.“ Er eitthvað sem kalla má séríslenskt í þessum efnum? „Ég myndi segja að Íslendingar séu mjög framarlega í skandinavískri garðhönnun. Íslenskir garðar ein- kennast af rúmgóðum stéttum og pöllum, notadrjúgum bílastæðum, vönduðum grillum og vel nýttum heitum pottum. Línur eru gjarnan skýrar og gróðurval stílhreint. Birki og reyniviður geta verið ein- kennandi trjátegundir sem gefa ís- lenskt yfirbragð. Ef við horfum til framtíðar mun- um við sjá mun meira af sjálfbærum útfærslum. Algengara er að endur- nýta hellur, flutningagámar verða að geymslum sem grafnar eru inn í hól og innan örfárra ára verður gott framboð af íslensku timbri. Það er einnig algjör bylting í ætum gróðri en ég hanna varla þann garð í dag þar sem ekki eru berja- runnar, ávaxtatré og grænmetis- garður. Gróðurhús þar sem hægt er að undirbúa sáningu og rækta græðlinga eru einnig að sækja í sig veðrið. Að lokum má nefna að með aukinni vitund um mikilvægi góðrar heilsu eru púttvellir og lyftingatæki að ryðja sér til rúms í görðum lands- manna.“ n Ávextir í görðum Það er varla hannaður sá garður í dag þar sem ekki eru ávaxtatré eða berjarunnar en hér má tína ávexti beint af pallin- um á haustin. Minigolf Fyrir þá sem vilja frekar slá kúlu en gras er þessi lausn upplögð. Auk þess að vera gott undirlag fyrir púttvöll má einnig leggja handklæði á gervigrasið, leggjast og njóta sólar. Stuðlaberg Stuðlaberg er einkennandi fyrir íslenskt landslag og getur gefið garðsvæði sérstakan íslenskan blæ.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.