Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Side 99

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Side 99
78 Menning Sjónvarp Vikublað 8.–10. september 2015 Hin óhefta gleði Fótboltaleikir geta haft áhrif á skap þjóðar Í þróttaspekúlant, einn af þeim sem lýstu knattspyrnuleik Ís- lands og Kasakstan, sagði að nú tæki við tímabil þar sem Ís- lendingar yrði glaðir og kátir fram eftir árinu 2016. Þetta eru bestu tíðindi sem maður hefur heyrt lengi. Þegar íslensk þjóð er úr- ill og kvartsár þá er hún al- veg óhemju leiðinleg og ákaflega þreytandi. En þegar hún er í góðu skapi þá er hún verulega skemmti- leg. Ef fótboltaleik- ur, þar sem ís- lenska liðinu tókst ekki einu sinni að skora mark, verður til þess að fylla þjóðina gleði í heilt ár þá gerist maður snarlega hópsál og ríg- heldur í góða skapið. Á laugardögum og sunnu- dögum eru þjóðmála- þættir á dagskrá út- varps og sjónvarps. Ljóst var hvar hugur umsjónarmanna þeirra þátta var um síðustu helgi. „Áfram Ísland,“ sögðu umsjónar- mennirnir næstum því upp úr þurru og spurðu svo viðmælend- ur sína: „Hvernig heldurðu að leikurinn fari?“ Og viðmæl- endur lýstu glaðir yfir áhuga sín- um á leiknum. Þeim virtist reynd- ar finnast miklu skemmtilegra að tala um fótbolta en pólitík. Alla- vega var svo einlægur áhugi og innileiki í tali þeirra um íþróttina meðan vottur af mæðutón var í talinu um pólitíkina. Ýmislegt sem snýr að knattspyrnu er merkilegt. Ís- lendingar eru yfirleitt ekki vilj- ugir til að syngja hinn hátíðlega þjóðsöng sinn en þegar kemur að mikilvægum íþróttaviðburðum þá syngur fólkið á áhorfendapöllun- um eins og einn maður og af því- líkri tilfinningu og innlifun að ekki er annað hægt en að hrífast. Að syngja háu tón- ana í þjóðsöngnum er í sjálfu sér keppni og þegar menn ná því eru þeir strax komn- ir í baráttuham. Nokkuð sem er nauðsynlegt ætli maður sér að sigra. Hugmyndin um að skipta um þjóð- söng er sennilega bara bölvuð vit- leysa. Það er oft miklu skemmtilegra að fylgjast með við- brögðum áhorfenda eftir úrslitaleik en að horfa á leikinn sjálfan. Eftir leikinn um síðustu helgi mátti sjá fólk faðmast og knúsa hvert ann- að. Einhverjir grétu svo af gleði. Fólk var svo miklu hamingjusam- ara þennan dag en það hafði ver- ið daginn áður. Allt út af úrslitum í fótboltaleik þar sem enginn skor- aði mark. Merkilegt! n Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport Þriðjudagur 8. september 11.00 Setning Alþingis B Bein útsending frá setningu Alþingis. 12.00 EM stofa Hitað upp fyr- ir leik Serbíu og Íslands á EM í Berlín. 12.20 Serbía-Ísland B (EM í körfubolta karla) Bein útsending frá leik Íslands og Serbíu í loka- keppni Evrópumótsins í körfubolta. 14.10 EM stofa Leikur Íslands og Serbíu á EM í körfu- bolta karla gerður upp. 15.30 Þýskaland-Tyrkland B (EM í körfubolta karla) Bein útsending frá leik Þýskalands og Tyrk- lands í lokakeppni EM. 17.40 Melissa og Joey e 18.00 Vísindahorn Ævars 18.05 Landakort 18.15 Táknmálsfréttir 18.25 Öldin hennar (30:52) e 18.30 Konunglegar kræsingar (2:3) (Hofretter) Danskur matreiðsluþáttur með konunglegu ívafi. Hinrik Danaprins opnar eldhúsið og leyfir áhorfendum að fylgjast með. e 19.00 Fréttir (8:365) 19.25 Íþróttir (6:250) 19.30 Veður (8:365) 19.35 Stefnuræða for- sætisráðherra B Bein útsending frá Alþingi þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis- ráðherra flytur stefnu- ræðu sína og fylgja umræður í kjölfarið. 22.00 Tíufréttir (5:200) 22.15 Veðurfréttir (5:200) 22.20 EM stofa Samantekt frá leikjum dagsins í lokakeppni EM. 22.40 Kóðinn (4:6) (The Code) Pólítísk, áströlsk spennuþáttaröð. Tvær unglingsstúlkur slasast alvarlega í bílslysi í miðri eyðimörk Ástralíu. Sú staðreynd að enginn hringir á aðstoð stúlkunum til bjargar vekur forvitni ungs blaðamanns. Hann fær bróður sinn í lið með sér til að komast að hinu sanna en setur þá báða í stórhættu í leiðinni. 23.35 Vitnin (5:6) (Øyevitne) e 00.33 Fréttir (5:200) 00.45 Dagskrárlok (2:200) Stöð 2 Sport 2 Stöð 3 11:45 Undankeppni EM 2016 (Ísland - Kazakhstan). 13:35 Undankeppni EM 2016 (Finnland - Færeyjar) 15:15 Undankeppni EM 2016 (Rúmenía - Grikkland) 16:55 Undankeppni EM 2016 (Armenía - Danmörk) 18:35 Undankeppni EM 2016 (Svíþjóð - Austurríki) B 20:45 NBA (NBA Special: Clutch City) 22:00 Undankeppni EM 2016 (Slóvakía - Úkraína) 23:40 Undankeppni EM 2016 (Svíþjóð - Austurríki) 07:30 Undankeppni EM 2016 (Skotland - Þýskaland) 11:35 Chelsea - Crystal Palace 13:25 Newcastle - Arsenal 15:05 Goðsagnir efstu deildar (Tryggvi Guð- mundsson) 16:00 Swansea - Man. Utd. 17:40 Premier League Review 18:35 Undankeppni EM 2016 (England - Sviss) B 20:45 Undankeppni EM 2016 (Skotland - Þýskaland) 22:25 Tottenham - Everton 00:10 Undankeppni EM 2016 (England - Sviss) 18:35 Baby Daddy (18:22) 19:00 World's Strictest Parents (9:11) 20:00 Suburgatory (14:0) 20:25 One Born Every Minute (11:20) 21:15 Justified (13:13) 22:00 The Last Ship (5:10) 22:45 Legit (1:13) Gaman- þættir um Jim og félaga hans sem ákveða að reyna verða betri mann- eskjur en þau eru. 23:10 The Originals (14:22) 23:55 The Mysteries of Laura (6:22) Skemmti- legir gamanþættir með Debra Messing í aðalhlutverki. 00:40 World's Strictest Parents (9:11) 01:25 Suburgatory (14:0) 01:50 One Born Every Minu- te (11:20) 02:40 Justified (13:13) 03:25 The Last Ship (5:10) 04:10 Tónlistarmyndbönd frá Bravó 06:00 Pepsi MAX tónlist 08:00 Everybody Loves Raymond (4:26) 08:20 Dr. Phil 09:00 The Biggest Loser 09:45 The Biggest Loser 10:30 Pepsi MAX tónlist 13:30 Cheers (26:26) 13:55 Dr. Phil 14:35 The Office (25:27) 15:00 Top Chef (12:17) 15:45 The Good Wife (14:22) 16:25 Eureka (17:20) 17:05 America's Next Top Model (11:16) 17:50 Dr. Phil 18:30 Nánar auglýst síðar 19:10 The Late Late Show with James Corden 19:50 Welcome to Sweden 20:15 Reign 7,7 (15:22) Mary, drottning Skotlands, er ætlað að giftast frönskum prins og tryggja þar með bandalag Frakkklands og Skotlands. Hún kemst hins vegar fljótt að því að ráðahagurinn er síður svo öruggur og að pólítískir fjandmenn í frönsku hirðinni leggja allt í sölurnar til að koma í veg fyrir brúð- kaupið. 21:00 Parenthood (12:13) 21:45 Ray Donovan (3:12) 22:30 The Late Late Show with James Corden 23:10 American Odyssey 23:55 Girlfriends' Guide to Divorce (9:13) 00:40 Satisfaction (7:10) 01:25 Parenthood (12:13) 02:10 Ray Donovan (3:12) 02:55 The Late Late Show with James Corden 03:35 Pepsi MAX tónlist 07:00 Barnatími Stöðvar 2 08:05 Junior Masterchef Australia (12:22) 08:50 The Middle (4:24) 09:15 Bold and the Beautiful 09:35 The Doctors (36:50) 10:15 Suits (16:16) 11:00 Silicon Valley (8:8) 11:30 The World's Strictest Parents (4:9) 12:35 Nágrannar 13:00 Britain's Got Talent 14:05 Britain's Got Talent 15:05 Touch (13:14) 15:50 The Amazing Race 16:35 Teen Titans Go 17:00 Bad Teacher (12:13) 17:20 Bold and the Beautiful 17:40 Nágrannar 18:05 Simpson-fjölskyldan 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:47 Íþróttir 18:55 Ísland í dag. 19:25 Anger Management 19:50 Hjálparhönd (2:8) 20:15 Empire (11:12) 21:00 The Casual Vacancy 6,6 (1:3) Vandaðir breskir þættir byggðir á metsölubók J.K Rowling og eru úr smiðju HBO. Þættirnir fjalla um líf íbúa bæjarins Pagford í Bretlandi en þegar Barry Fairbrother bæjarfulltrúi lætur lífið eru þó nokkrir sem sækjast eftir sæti hans í bæjarráðinu. Það eru leyndarmál í hverju horni og allir virðast hafa eitthvað að fela. 22:00 The Strain (6:13) 22:45 Louie (2:8) 23:10 Covert Affairs (10:16) 23:50 Mistresses (11:13) 00:40 Rita (6:8) 01:25 Major Crimes (13:0) 02:10 Mandela: Long Walk to Freedom 04:35 Think Like a Man too Atvinna í boði á einum skemmtilegasta vinnustað landsins DV óskar eftir góðu og jákvæðu símasölufólki Umsóknir sendist á atvinna@dv.is Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera kurteis, samviskusamur, jákvæður og hafa gott vald á íslenskri tungu. Umfram allt vera duglegur og góður sölumaður. Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann. Hvítur leikur og vinnur! Staðan kom upp í 3. um- ferð Heimsmeistaramóts kvenna, 20 ára og yngri, sem fram fer í Khanty- Mansiysk í Rússlandi þessa dagana. Nastassia Ziaziulkina (2401) frá Búlgaríu hafði hvítt gegn Dorsa Derakhshani (2192) frá Íran. 10. Rdb5! axb5 11. Bb6! Db8 12. Rxb5 og svarta stað- an er að hruni komin. Skáklandið dv.is/blogg/skaklandid Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Við tækið „Fólk var svo miklu hamingjusam- ara þennan dag en það hafði verið daginn áður.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.