Skagfirðingabók - 01.01.2012, Qupperneq 162
162
Hjaltadalurinn er, eins og þeir vita
sem vel þekkja til, girtur háum fjöll
um á þrjá vegu. Þekktast þeirra er án
efa Hólabyrðan, þetta formfasta, fall
ega fjall sem rís 1244 m upp frá sjáv
armáli og veitir Hólastað skjól fyrir
norðan og austlægum vindum. Byrð
an sjálf er öll skorin af giljum en nyrst
á henni, í u.þ.b. 650 m hæð, er högg
eða stallur sem heitir Gvendarskál og
segir sagan að þangað hafi Guðmund
ur góði Hólabiskup gengið til bæna
gjörða. Því til staðfestingar má sjá
leif ar af altari uppi í skálinni. Fremur
örðugt er til uppgöngu í Gvendarskál
sökum mikils bratta og illfærrar urðar
sem er þar á brúninni, en þó leggja
margir leið sína þangað frá Hólum.
Leiðin er stikuð og tekur það fullfrískt
fólk á að giska 3–4 klst. að ganga
báðar leiðir. Það atvik sem hér verður
greint frá átti sér stað um miðjan
febrúar 1993, en þá var undirritaður
ráðs maður á Hólum.
Föstudaginn 12. febrúar 1993 var
Antony Patric King vinnumaður á
Hóla búinu að gefa hópi ungra stóð
hesta, tveggja til fjögurra vetra, rúllur
í svokölluðu Nesi, skammt norðan
Hólastaðar. Veður fór mjög versnandi
og var komið hávaðarok með miklu
úrfelli, eða sannkölluð asahláka, þegar
hann fór með síðustu rúlluna. Bar þá
svo við að allir folarnir, 16 að tölu,
voru horfnir úr heyinu og hvergi
sjáanlegir í hólfinu. Við fórum um
svifa laust að svipast um eftir þeim, en
hvort tveggja var, að veðrið færðist í
aukana og myrkur skall á. Datt okkur
helst í hug að þeir hefðu fælst einhvers
konar fjúkandi dót, stokkið á girðing
una og tekið strikið eftir þjóðveginum
niður dalinn, en mikill snjór var alls
staðar utan vegar.
Eftir óhemju vatnsveður um nóttina
stytti upp með frosti á laugardags
morg uninn. Fórum við strax í birt
ingu að leita að hópnum, ókum um
allan Hjaltadal og spurðumst fyrir á
bæjum, en án árangurs. Allar slóðir
voru útmáðar eftir rigninguna og rifa
hjarn yfir öllu, aðeins stöku rindar
upp úr. Seinnipart dagsins, þegar við
vorum búnir að leita af okkur allan
grun í byggð, fékk ég Erling Garðars
son bónda í NeðraÁsi til að fara með
mig á snjósleða til frekari leitar ef vera
skyld i að rekast mætti á slóðir. Hóla
og Víðinesdalur liggur norðan Byrð
unnar og úr honum má komast niður í
GUNNAR RÖGNVALDSSON, LÖNGUMÝRI
HROSSIN Í
HÓLABYRÐUNNI
____________