Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 2
Ef þú hefur áhuga á að kynna starfsemi þína eða kaupa auglýsingu í þessu spennandi
blaði hafðu þá samband við auglýsingadeild
Fréttatímans auglysingar@frettatiminn.is eða í síma 531-3310.
"Heilsuárið 2016 hefst
með heilsublaði 8 janúar.
Með blaðinu fylgir
sérblað um heilsurækt
og næringu sem og veg-
legur kafli í aðalblaðinu
um ýmis spennandi
námskeið sem hefjast í
upphafi árs."
Heilsan á nýju ári
Aukinn lestur
Fréttatímans
Lestur Fréttatímans jókst milli mánaðanna
október og nóvember, samkvæmt nýrri
lestrarkönnun Gallup sem birt var fyrr í
vikunni. Á höfuðborgarsvæðinu var lestur
blaðsins 48,1% í nóvember en hann var
46,5% í október. 41,2% höfuðborgarbúa,
18-49 ára, lesa Fréttatímann núna en 37%
lásu í október. Aukningin milli mánaða er
10%. Lestur Morgunblaðsins er 20% hjá
þessum hópi en 53,9%hópsins lesa Frétta-
blaðið. Í nóvember var lestur Fréttatímans
á landinu öllu 37,8%, miðað við 36,4% í
október. Aukningin milli mánaða er 4%.
Svarthöfði við Stórhöfða
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í
Reykjavík og Óli Gneisti Sóleyjarson
þjóðfræðingur festu í gær upp skiltið
Svarthöfði á gatnamótum þessar nýju
götu við Stórhöfða. Gatan hét áður
Bratthöfði en nafninu var breytt að til-
lögu Óla Gneista.
Læknaskortur á
Vestfjörðum
Viðvarandi læknaskortur á Vestfjörðum
er mikið vandamál, að því er Hallgrímur
Kjartansson, framkvæmdastjóri lækninga
á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, segir í við-
tali við vef Bæjarins besta á Ísafirði, bb.is.
Þetta geri það að verkum að erfitt reynist
að fá lækna til starfa og þeir haldist stutt í
starfi eða vilja ekki setjast að, en einungis
fjórir fastráðnir læknar eru við störf við
Fjórðungssjúkrahúsið og Heilsugæsluna á
Ísafirði nú, en ættu samkvæmt áætlun að
vera níu, auk eins sérnámslæknis.
KviKmyndir HeimsKa á Hvíta tjaldið
Verðlaunaleikstjóri vill kvikmynda Heimsku
Þóra Hilmarsdóttir kvikmyndaleikstjóri
hefur tryggt sér réttinn til að gera kvik-
mynd eftir nýjustu skáldsögu Eiríks Arn-
ar Norðdahl, Heimsku. Þóra las bókina
og hreifst svo af henni að hún hafði sam-
band við Forlagið með hraði og tryggði
sér réttinn, enda lengi dreymt um að gera
íslenska vísindaskáldskaparkvikmynd.
Nýjasta mynd Þóru, Sub Rosa, hlaut
verðlaun sem besta stuttmyndin á kvik-
myndahátíðinni San Diego Film Festival
í október síðastliðnum, og sérstaka við-
urkenningu á RIFF. Á námsárum sínum
í Central St. Martins-skóla í London
vann hún hjá kvikmyndafyrirtækinu RSA
Films í Bretlandi sem rekið er af hinum
virta kvikmyndaleikstjóra Ridley Scott
og fjölskyldu hans. Þóra vinnur nú ásamt
Snjólaugu Lúðvíksdóttur handritshöfundi
að nýrri stuttmynd sem kallast Frelsun
og verður tekin upp á Íslandi. Þær eru
einnig að skrifa handrit að mynd í fullri
lengd.
Skáldsagan Heimska er framtíðarsaga
sem gerist á Ísafirði og hefur rétturinn á
útgáfu bókarinnar þegar verið seldur til
forlaganna Metailié í Frakklandi og Rá-
mus í Svíþjóð, en skáldsaga Eiríks Arnar,
Illska, hefur hressilega slegið í gegn í
þeim löndum báðum. - fb
Þóra Hilmarsdóttir
kvikmyndaleikstjóri
hefur fest sér
kvikmyndaréttinn af
Heimsku Eiríks Arnar
Norðdahl.
stjórnmál Hugsanlegum forsetaframbjóðendum fjölgar
a ðstæður á Íslandi er mjög sérstæðar þegar kemur að forsetakosningum,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmála-
fræði, beðinn um að skilgreina hvað frambjóðendur
til forsetaembættis þurfi að hafa til að bera til að
eiga möguleika á að ná kosningu. „Í flestum öðrum
löndum eru forsetar kosnir pólitískri kosningu og
standa fyrir einhvern pólitískan málstað, jafnvel þar
sem þeir eru valdalausir. Hér hefur það ekki verið
þannig, þótt ekki sé að fullu komið í ljós hvaða áhrif
forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar hefur á það.
Auðvitað hefur alltaf verið ákveðinn pólitískur blær
á forsetanum, sumir hafa þótt meira til vinstri en
aðrir, en það hefur aldrei verið þannig að flokks-
pólitík hafi bein áhrif í forsetakosningum. Það gildir
því, eins og alltaf í persónukjöri af þessu tagi, að það
er nauðsynlegt að vera þekkt andlit áður en farið
er fram. Það er mjög erfitt fyrir einhvern sem ekki
er þekktur að koma sér á framfæri, sama hversu
miklum kostum viðkomandi væri búinn.“
Spurður hvort hann sjái það fyrir sér að ein-
hver gæti sigrað Ólaf Ragnar, fari hann fram, segir
Gunnar Helgi að það hljóti að ráðast af því hversu
sterkur frambjóðandi það væri. „Hann fékk um
helming atkvæða síðast og það þýðir náttúrulega
að það er töluvert útbreidd andstaða við hann.
Aðstæður núna eru honum töluvert andstæðar að
því leyti að hann er í hugum fólks tengdur við nú-
verandi ríkisstjórn sem er ekki vinsæl. Síðast þá
spilaði hann dálítið inn á andstöðu við óvinsæla
ríkisstjórn og græddi á því. Leikurinn sem hann er
að leika núna, og þá geri ég því skóna að hann hafi
hug á að fara fram, er kannski frekar sá að fæla fólk
frá framboði með því að gefa það til kynna að hann
verði í baráttunni. Það langar varla mjög marga að
fara í þann slag því hann er erfið glíma fyrir alla.
Ég myndi hins vegar ekki ganga það langt að segja
að það gæti enginn sigrað hann. Það þyrfti bara
að finna einhvern sem væri nægilega sterkur og
tilbúinn til að fara í slaginn.“
Af þeim sem staðfest hafa að velta framboði fyrir
sér er bara ein kona, myndi það skipta máli ef hæf
kona fyndist í framboð? „Það gæti alveg gert það,
já. Ef það yrðu bara tveir frambjóðendur þá held ég
að það skipti mjög miklu máli til hvaða hópa við-
komandi höfðar og hvernig hann eða hún sker þá
inn í hugsanlegan stuðningsmannagrundvöll Ólafs
Ragnars. Ef það eru fleiri er þetta flóknara og þá
gæti frambjóðandi hugsanlega unnið kosninguna
með þrjátíu og eitthvað prósent atkvæða eins og
Vigdís gerði á sínum tíma. Þá gæti kyn, til dæmis
algjörlega verið úrslitaatriði.“
Er það þá jákvætt fyrir Ólaf Ragnar að sem flestir
verði í framboði? „Ég myndi halda það, já. Sérstak-
lega ef það kæmi enginn verulega sterkur fram-
bjóðandi fram. Kosningafyrirkomulagið er svo
ófullkomið að í prinsippinu gæti frambjóðandi orðið
forseti með tíu prósent atkvæða á bak við sig, jafnvel
bara fimm, það er algjörlega óásættanlegt.“
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
„Ef þetta er tilfellið og ríkið á að
borga mismuninn hefði verið
nær að gefa þeim nýja lóð
og láta garðinn standa
og breyta í opið svæði
eða byggja kringum
hann. Annars byggði
langafi minn þennan garð
með vinnufélögum sínum,
kostaði líklega ekki 500 millj-
ónir þá,“ segir Andri Snær
Magnason rithöfundur
um fréttir þess efnis að
áætlaður kostnaður við
að færa nýja og gamla
hafnargarðinn við Austur-
bakka í Reykjavík nemi um
500 milljónum króna.
Hitamælirinn
500 milljónir í að færa hafnargarðinn?
Gott fyrir Ólaf Ragnar að
sem flestir bjóði sig fram
Þeim sem staðfesta að þeir íhugi forsetaframboð á næsta ári fjölgar dag frá degi, nú síðast
steig Hrannar Pétursson fram og lýsti yfir að hann íhugaði framboð. Gunnar Helgi Kristinsson,
prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, segir fyrirkomulag forsetakosninga á Íslandi frábrugðið því
sem gerist í öðrum löndum og því sé nauðsynlegt að frambjóðendur séu þekkt andlit til að eiga
möguleika á að ná kosningu.
Framboð Ólafs Ragnars hefur ekki áhrif
„Mér hefur lengi verið umhugað
um hlutverk forsetans og hvernig
hann á að sinna sínum skyldum,“
segir Hrannar Pétursson sem í
gær staðfesti að hann væri alvar-
lega að velta framboði til forseta
fyrir sér. „Það hafa margir spurt
mig á undanförnum vikum hvort
ég ætli ekki bjóða mig fram og
þegar nafnið er sett í samhengi
við þörfina á betri samskiptum,
aukinni virðingu fyrir ólíkum
skoðunum og meiri sanngirni í
umræðunni þá finnst mér rétt að
staldra við og hugsa þetta í fullri
alvöru.“
Spurður hvort það muni hafa
áhrif á hugsanlegt framboð hvort
Ólafur Ragnar fari fram eða ekki
neitar Hrannar því. „Ég held að
hver sá sem hefur skoðanir á
þessu embætti og kann að hafa
áhuga á því að leggja sitt af mörk-
um til að bæta samfélagið þurfi
að fara fram, eða fara ekki fram,
á sínum eigin forsendum en ekki
láta ákvarðanir annarra stýra því.
Ég hugsa þetta út frá minni sýn
og mínum aðstæðum, engu öðru.“
Hrannar er Þingeyingur að ætt
og uppruna, fæddur og uppalinn á
Húsavík og á þar sinn frændgarð,
finnst Þingeyingum kannski kom-
inn tími til að þeir fái forseta úr sín-
um röðum? „Ef ég þekki þá rétt þá
finnst þeim það löngu tímabært,“
segir Hrannar og glottir. „En það
mun ekki hafa úrslitaáhrif á mína
ákvörðun hver sem hún verður.“
Stefán Jón Hafstein. Halla Tómasdóttir. Bergþór Pálsson. Hrannar Pétursson. Þorgrímur Þráinsson.
2 fréttir Helgin 18.-20. desember 2015