Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 18
S
Snörp viðbrögð urðu í kjölfar jafnréttis-
þings í haust þar sem birt var niðurstaða
viðmælendagreiningar velferðarráðu-
neytisins og fjölmiðlavaktarinnar þar sem
gerð var grein fyrir kyni viðmælenda í
völdum fréttaþáttum í útvarpi og sjónvarpi
á tímabilinu frá september 2014 til septem-
ber 2015. Í sjónvarpsfréttatímum RÚV voru
konur viðmælendur á bilinu 31,4 til 32,6%
viðmælenda og svipað var uppi á teningnum
hjá viðmælendum í sjónvarps-
fréttum 365 þar sem konur
voru 30,7% viðmælenda. Í
útvarpsfréttatímum var hlut-
fall kvenna sem viðmælenda
á bilinu 25,6% til 29,8 og enn
var staðan svipuð hjá 365
þar sem konur voru 22,9%
viðmælenda í morgunfréttum
og 26,8% í hádegisfréttum. Að-
eins ein kona komst á lista yfir
10 vinsælustu viðmælendur
útvarpsþátta.
Hlutfall frétta þar sem fjallað er um kon-
ur eða við þær talað er enn lægra sé litið
til reglulegrar rannsóknar sem gerð er á
fimm ára fresti af Global Media Monitoring
Project þar sem vaktaðir eru á sama degi
fréttamiðlar í 114 löndum. Hérlendis voru
greindar fréttir í RÚV útvarpi og sjónvarpi,
Stöð 2, Bylgjunni, Morgunblaðinu, Frétta-
blaðinu, dv.is, Eyjunni, Pressunni, Kjarn-
anum, mbl.is og ruv.is. Rannsóknin nú, árið
2015, sýndi að hlutfall frétta þar sem fjallað
er um konur eða við þær talað, miðað við
fyrrgreinda miðla, er 20% hér á landi. Það
er lægra en var í sambærilegri könnun hér-
lendis árið 2010.
Á fyrrgreindu jafnréttisþingi kom fram
að hlutur kvenna sem viðmælendur fjöl-
miðla hefur lítið breyst frá því að málið var
skoðað fyrir fimmtán árum. Á þessu er ein
markverð undantekning, Fréttatíminn. Frá
öndverðu hefur rík áhersla verið lögð á kon-
ur sem viðmælendur í blaðinu. Fréttatíminn
er mun útbreiddari og meira lesinn en fyrr-
greindir fjölmiðlar, að Fréttablaðinu einu
undanskildu, en Fréttatíminn er vissulega
helgarblað en ekki dagblað. Tryggð kvenna
í lesendahópi Fréttatímans hefur haldist frá
upphafi, fyrir rúmum fimm árum, en 62%
kvenna á höfuðborgarsvæðinu, 25 ára og
eldri, lásu Fréttatímann í síðustu lestrar-
mælingu Gallup. Sé litið til landsins alls
lásu 47% kvenna á þessum aldri blaðið. Það
er sami lestur og var við upphaf mælinga
Gallup.
Tölurnar eru sláandi þegar litið er á mæl-
ingu forsíðuviðtala Fréttatímans. Þar er
kynjahlutfall allt annað en fyrrgreindra fjöl-
miðla á íslenskum markaði. Sé litið til þess
árs sem nú er að líða, sem er svipað hlut-
fallslega og önnur ár sem á undan fóru hvað
kynjahlutfall forsíðuviðmælenda varðar,
er hlutfall kvenna sem helstu viðmælenda
blaðsins 71,4%. Hlutfall karla á forsíðu blaðs-
ins er 18,4%. Hlutfall karla og kvenna saman
sem forsíðuviðmælenda Fréttatímans á þessu
ári er 10,2%.
Sé litið til mikillar útbreiðslu og lesturs
Fréttatímans, miðað við aðra fjölmiðla lands-
ins, hefðu aðstandendur og frummælendur
á nýliðnu jafnréttisþingi, þar sem fjallað var
um birtingarmyndir kynjanna í fjölmiðum,
að skaðlausu getað bent á þennan gríðarlega
mun, þar sem Fréttatíminn er sannarlega
eins og vin í eyðimörkinni sé litið til hlutfalls
kvenna sem helstu viðmælenda í íslenskum
fjölmiðlum.
Í skýrslu velferðarráðherra um stöðu og
þróun jafnréttismála árin 2013-2015 var
fjallað um birtingarmynd kynjanna í fjöl-
miðlum og bent á mikilvægi þess að fjölmiðl-
arnir skoðuðu sjálfir hvaða myndir þeir draga
upp af konum og að þeir auki fjölbreytni til
að endurspegla á réttari máta samfélagið og
heilbrigðar fyrirmyndir fyrir bæði ungar kon-
ur og karla. Þar sagði meðal annars að miðað
við mynd af konum í fjölmiðlum í dag væru
miklar líkur á, vegna sterkra langtímaáhrifa
fjölmiðla, að staðalímyndir af kynjunum hafi
verið festar í sessi í fjölmiðlum. Eygló Harð-
ardóttir bætti því við á jafnréttisþinginu að
fjölmiðlar væru hvorki að endurspegla fjöl-
breytileikann í samfélaginu, stjórnmálum,
atvinnulífinu, né hátt menntunarstig kvenna.
Fyrrgreindar tölur sýna að slíkt á ekki við
um Fréttatímann.
Yfir 70 prósent forsíðuviðmælenda Fréttatímans eru konur
Vin í eyðimörkinni
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýSdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
18 viðhorf Helgin 18.-20. desember 2015
Jólatilboðsverð kr. 159.615,-
Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál
og svunta
Fullt verð kr. 199.518,-
Vitamix Pro 750 á sér
engann jafningja.
Nýtt útlit og nýir
valmöguleikar.
5 prógrömm og
hraðastillir sjá til þess
að blandan verður
ávallt fullkomin og
fersk!
Galdurinn við
ferskt hráefni
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Ef þú hefur áhuga á að kynna starfsemi þína eða kaupa auglýsingu í þessu spennandi
blaði hafðu þá samband við auglýsingadeild
Fréttatímans auglysingar@frettatiminn.is eða í síma 531-3310.
"Heilsuárið 2016 hefst
með heilsublaði 8 janúar.
Með blaðinu fylgir
sérblað um heilsurækt
og næringu sem og veg-
legur kafli í aðalblaðinu
um ýmis spennandi
námskeið sem hefjast í
upphafi árs."
Heilsan á nýju ári
Fallegar
erlendar
bækur