Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.12.2015, Page 10

Fréttatíminn - 18.12.2015, Page 10
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 Akureyri • Sími 461 1099 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 72 59 3 Kanarí Tenerife Frá kr. 74.900 Kanarí & Tenerife Los Tilos Frá kr. 74.900 Netverð á mann frá kr. 74.900 m.v. 3 fullorðna í íbúð. Netverð á mann frá kr. 79.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 4. janúar í 9 nætur. Tamaimo Tropical m/allt innifalið! Frá kr. 113.900 Netverð á mann frá kr. 118.900 m.v. 3 fullorðna í íbúð. Netverð á mann frá kr. 113.900 m.v. 2 fullorðna í stúdíó. 5. janúar í 8 nætur. La Siesta m/hálft fæði innifalið! Frá kr. 108.900 Netverð á mann frá kr. 108.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 140.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi. 5. janúar í 8 nætur. Parquesol Frá kr. 80.900 Netverð á mann frá kr. 80.900 m.v. 4 fullorðna í smáhýsi. Netverð á mann frá kr. 104.900 m.v. 2 fullorðna í smáhýsi. 4. janúar í 9 nætur. Roque Nublo Frá kr. 76.900 Netverð á mann frá kr. 76.900 m.v. 3 fullorðna í íbúð. Netverð á mann frá kr. 79.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 4. janúar í 9 nætur. SÉRTILBOÐ SÉRTILBOÐ SÉRTILBOÐ SÉRTILBOÐ SÉRTILBOÐ Útboð á seinni verkhluta ljós- leiðarahringtengingar á Vest- fjörðum hefur verið auglýst á vef Ríkiskaupa. Tilboð verða opnuð 28. janúar næstkomandi. Stefnt er að verklokum á komandi ári. Þá verða Vestfirðir hringtengdir með ljósleiðara sem gerir nú- verandi afkastaminni og óá- reiðanlegri varasambönd óþörf. Þannig eykst til muna áreiðan- leiki fjarskipta á öllu landsvæð- inu, að því er fram kemur á vef innanríkisráðuneytisins. Verkhlutinn snýst um að leggja ljósleiðarastreng milli fjarskiptahúss við Nauteyri og Reykjaness í Ísafjarðardjúpi sem innifelur þverun Ísafjarðar með sæstreng. Jafnframt verður lagður ljósleiðarastrengur milli Látra og símstöðar á Súðavík sem innifelur þverun Skötu- fjarðar, Hestfjarðar og Álfta- fjarðar. Fyrri verkhlutinn, sem er langt kominn, er lagning ljós- leiðarastrengs milli Staðar í Hrútafirði og Hólmavíkur. Fyrir er ljósleiðarastrengur milli Búð- ardals og Súðavíkur um sunnan- og vestanverða Vestfirði. H ugmyndin kemur upphaflega frá Save the Children, systursamtökun-um okkar í Bretlandi og við héldum fyrstu áheitasöfnunina fyrir tveimur árum,“ segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. Samkvæmt venju ríkir mikil jólastemning á skrifstofu Barnaheilla og er jólapeysan staðalbúnaður í desember. „Það er mjög fyndið að það kippir sér enginn upp við það lengur hérna á skrifstofunni hjá okkur ef einhver er í jólapeysu, sama hversu skrautleg hún er, en mér finnst allar jólapeysur fallegar,“ segir Erna. Jólapeysuæðið byrjaði hjá Barnaheillum Fjölmörg fyrirtæki hafa nýtt átakið til að skapa stemningu og leggja góðu málefni lið. „Við bendum fólki á að muna eftir okkur þegar jólapeysupartíin eru haldin, en við átt- um eflaust stóran þátt í að koma jólapeysu- menningunni af stað hér á landi, sem okkur finnst afar skemmtilegt,“ segir Erna. Á hverju ári verður nýtt málefni fyrir valinu og í ár verður safnað fyrir sýrlenskum flótta- börnum og fjölskyldum þeirra í dvalar- og móttökulöndum við Sýrland. „Það er mikil þörf á söfnun eins og þessari og hefur verið í gegnum árin. Þetta er ekki nýtt ástand en við sjáum að það er Íslendingum mjög hug- leikið um þessar mundir,“ segir Erna. Seðlabankastjóri og uppistandari í dómnefnd Skráning fer fram á www.jolapeysan. is þar sem hægt er að setja inn myndir og fylgjast með keppendum. Á morgun, laugardag, fer fram verðlaunaafhending í Gamla Bíói þar sem valdir verða sigurveg- arar í fimm flokkum. „Flokkarnir eru fal- legasta, ljótasta og frumlegasta jólapeysan, auk bestu endurvinnslupeysunnar. Einnig hlýtur vinsælasta peysan sérstök verðlaun, en það er sá hópur, eða einstaklingur, sem safnar mestu,“ segir Erna. Í fyrra var það Már Guðmundsson seðlabankastjóri sem safnaði mestu og situr hann í dómnefnd í ár ásamt Sögu Garðarsdóttir og Hrafni Jökul- ssyni, en hann hlaut viðurkenningu Barna- heilla í ár. Fulltrúi frá Barnaheillum, ásamt Ernu, er Herdís Ágústa Linnnet, formaður ungmennaráðs Barnaheilla. Athöfnin hefst klukkan 14 og hægt verður að skoða sigurpeysurnar í allri sinni dýrð. Þó svo að verðlaunin verði veitt á morgun heldur áheitasöfnunin áfram út allan desember. „Við hvetjum fólk til að taka þátt, annað hvort með því að skrá sig sjálft eða fara inn á jolapeysan.is og heita á einstaklinga eða hópa.“ Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is  Byggðamál ÚtBoð á lagningu ljósleiðara Ljúka á hringtengingu ljósleiðara vestra Það kippir sér enginn upp við það leng- ur hérna á skrif- stofunni hjá okkur ef einhver er í jóla- peysu.  góðgerðamál BarnaHeill styrkja sýrlensk flóttaBörn Jólapeysan hefðbundinn klæðnaður allan desember Jólapeysan er árlegt fjáröflunarverkefni Barnaheilla sem snýst um að gleðjast saman klædd jólapeysum og styrkja gott málefni um leið. Í ár er safnað fyrir sýrlensk flóttabörn og fjöl- skyldur þeirra í dvalar- og móttökulöndum við Sýrland. Áheitasöfnunin fer fram á jolapeysan. is og stendur allan desember. Verðlaun verða hins vegar veitt í fimm skemmtilegum flokkum á morgun, laugardag, og meðal þeirra sem sjá um að velja ljótustu og fallegustu peysuna eru Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Saga Garðarsdóttir uppistandari. Barnaheill hvetja fólk til að klæðast jólapeysum á aðventunni og styrkja gott málefni í leiðinni. Áheitasöfnun stendur yfir allan desember á jolapeysan.is. Verðlaun verða veitt í ýmsum flokkum og í dómnefnd sitja Már Guðmundsson, sem safnaði flestum áheitum í fyrra, Herdís Ágústa Linnnet, formaður ungmennaráðs Barnaheilla, Saga Garðarsdóttir uppistandari, Hrafn Jökulsson sem hlaut viðurkenningu Barnaheilla í ár og Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. 10 fréttir Helgin 18.-20. desember 2015
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.