Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 90
90 matur & vín Helgin 18.-20. desember 2015
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/N
AT
7
73
12
1
1/
15
Settu hátíðarkraft í
sós una með Knorr
– kraftinum sem þú
þekkir og treystir!
...KEMUR MEÐ GÓÐA BRAGÐIÐ!
Knorr færir þér
hátíðarkraftinn
Hafrakúlur
Valli, Stulli og Árni, bruggmeistarar Borgar, voru hæstánægðir með heimsókn norsku kollega sinna frá
7 Fjell brugghúsinu. Hér skála þeir allir fyrir góðum veigum og heilbrigðum skeggvexti. Jens Eikeset er
lengst til hægri. Ljósmynd/Hari
Bjór Norskir Bruggarar heimsóttu ÍslaNd og Brugguðu Í Borg
Smugubjór á
markað á nýju ári
Norskir bruggarar frá 7 Fjell brugghúsinu í Bergen heimsóttu Ísland um síðustu
helgi. Þeir brugguðu með kollegum sínum í Borg brugghúsi og mun bjórinn
kallast Smugan með vísan í deilur Íslendinga og Norðmanna um samnefnt
veiðisvæði á árum áður. Ekki var að sjá þeir norsku bæru nokkurn kala til okkar
því þeir voru hæstánægðir með samstarfið og heimsókn sína hingað til lands.
Í sland var alveg frábært. Við komum hingað í þrennum tilgangi, til að brugga með Borg, til að kynna bjórana
okkar á Skúla og halda jólapartí fyrir starfs-
fólkið okkar. Allir sem við hittum, bæði hjá
Borg og á Skúla reyndust frábærir,“ segir
Jens Eikeset, framkvæmdastjóri norska ör-
brugghússins 7 Fjell.
Jens og félagar hans voru hér á landi um
síðustu helgi við leik og störf. Bjóráhuga-
fólk gat kynnt sér bjóra þeirra á barnum
Skúla og á næstu mánuðum lítur dagsins
ljós afrakstur samstarfs þeirra og Borg
brugghúss. Sá bjór á að heita Smugan með
vísan í veiðisvæði í Barentshafi þar sem Ís-
lendingar og Norðmenn bitust um veiðirétt
á árum áður.
Samkvæmt upplýsingum frá Borg brugg-
húsi verður bjórinn „einhvers staðar á bilinu
milli Wheat Wine og Eastcoast Double
Wheat IPA“ en áætlað er að hann verði c.a.
9-10% í áfengisstyrk. Hann er bruggaður
með talsverðu magni af hveiti en í hann fóru
einnig bragðsterk Kaffir-lime lauf, norsk
einiber, mosaic og citra humlar, auk hand-
fylli af harðfiski.
Hvað geturðu sagt mér um samstarf ykkar
með strákunum í Borg?
„Þeir eru alveg frábærir. Þeir vita sínu viti
og eru að gera margt spennandi. Ég er sér-
staklega spenntur fyrir tilraunum þeirra við
að brugga mjöð og tunnuþroskun. Bjórinn
sem við gerðum saman er Wheat Wine,
sem er afbrigði af Barley Wine sem margir
þekkja, en með ýmsum áhugaverðum
tvistum. Við settum smá norskan harðfisk
út í, þorsk sem var veiddur og þurrkaður af
brjáluðum veiðimönnum í Norður-Noregi.
Svo notuðum við norsk einiber og Kaffir
lime lauf. Þetta verður frábær bjór! Ég vona
að við fáum bretti af honum sent út til Nor-
egs en ég óttast að hann muni seljast fljótt
upp,“ segir Jens. Hann segir jafnframt að
stefnt sé að því að bruggararnir í Borg end-
urgjaldi heimsóknina og bruggi með 7 Fjell
í Bergen í febrúar eða mars á næsta ári.
Hvað var eftirminnilegast við ferðina?
„Æ, þetta er kannski klisja en við fórum í
Bláa lónið á laugardeginum, svona hæfilega
þunnir og það var ótrúlegt! Kaldur bjórinn
og heita vatnið gerði kraftaverk. Það var
reyndar alger synd að það sé ekki seldur
handverksbjór á stærsta ferðamannastað Ís-
lands. Það er eitthvað svo 1999.“
Hvernig leist þér á bjórmenninguna á Íslandi?
„Hún er mjög áhugaverð. Handverksbjór-
menningin virðist hafa þróast öðruvísi en
í Noregi. Hjá okkur byrjaði þetta á tveimur
gaurum í bílskúr og það tók stóru brugg-
húsin 12 ár að hoppa á vagninn. En á Íslandi
eru stærstu handverksbrugghúsin hluti
af stærri brugghúsum. Við smökkuðum
marga af bjórunum hjá Borg og vorum allir
mjög hrifnir af. Þeir gera mjög góða bjóra.
Við heimsóttum þrjá bjórbari, Skúla, Micro
Bar og Mikkeller. Þeir voru allir frábærir. Á
Micro Bar sá maður handverksbjóra-senuna
sem ungan og spennandi markað. Þar voru
margir áhugaverðir bjórar gerðir af ungum
og upprennandi brugghúsum.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Bruggað í Borg
Þegar Fréttatíminn heimsótti
norsku bruggarana í Borg fengu
þeir að gæða sér á ýmsum for-
vitnilegum bjórum, á meðan á
þeirra eigin framleiðslu stóð.
Þeir fengu meðal annars að
smakka tunnuþroskaða Surti og
nýfilteraðan Úlf úr brugghúsinu.
Þá var í boði Yuzu tilraunalögun
og bláberjabjór sem Borgar-menn
gerðu með Arizona Wilderness og
er í vinnslu. Að auki var hægt að
sjá tilraunir með tunnurþroskun,
svo sem Surt nr. 30 sem þrosk-
aður er í brennivínstunnu og mun
væntanlega líta dagsins ljós á
þorra.
Hafrakúlur fyrir krakka
Í matreiðslubókinni Eldum sjálf er að finna skemmtilegar upp-
skriftir fyrir krakka á aldrinum 4-10 ára sem ættu að nýtast vel
í önnum fyrir jólin. Hér er ein uppskriftanna; sígildar hafrakúlur
sem flest börn elska.
Uppskriftin dugar í 20
hafrakúlur
Tilbúið á 10 mínútum. 30
mínútur í kæli.
Einnig er hægt að velta
hafrakúlunum upp úr
kökuskrauti eða kókos-
flögum.
Uppskrift
3/4 dl smjörlíki
1 dl sykur
1 1/2 msk kakó
1 msk kaffi
2 dl. haframjöl
Kókosmjöl til að velta
kúlunum upp úr
Aðferð
1. Blandið öllum hráefn-
unum saman við mjúkt
eða bráðið smjör eða
smjörlíki.
2. Hnoðið litlar kúlur.
3. Veltið kúlunum upp úr
kókosmjöli, setjið þær í
kæli og látið þær bíða í 30
mínútur.