Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 20
20 kvikmyndir Helgin 18.-20. desember 2015
Logi geimgengill
Sveitadrengurinn sem bjargaði heiminum er náttúrulega
klassík í ævintýraheiminum. Loga okkar tekst þó ekki að
krækja í prinsessuna að lokum því hún er auðvitað systir hans.
En honum tekst næstum því að verða töffari eftir því sem hann
kemst lengra í jedi lærdómnum. Alltaf eimir þó af nöldrandi
unglingnum sem bjó í kjallaranum hjá Owen frænda og Beru
frænku. Það er þó ekkert sem geislasverðsbardagi eða tveir í
nýju myndunum bjarga ekki.
Lea prinsessa
Grjótharður uppreisnarmaður
sem lét Svarthöfða ekki hræða
sig og svo gott sem eina kven-
hlutverkið í fyrstu þremur
myndunum. Vonandi fær hún
geislasverð í nýju myndunum.
Kyrkti svo náttúrulega Jabba
íklædd gullbikiníinu sem fékk
margan bólugrafinn 80’s ung-
linginn til að hugsa meira um
sitt eigið geislasverð.
Han Solo
Það má deila um það hvort Han Solo sé góður kall enda smygl-
ari og morðóður skítalabbi í upphafi. Han Solo skaut fyrst og
allt það. Hann var þó hald og traust uppreisnarmanna í öllum
aðal bardögunum. Bjargaði sveitalubbanum oftar en einu sinni
en vandamál þess sem horfir á gömlu myndirnar, sérstaklega
þrjú, er að Harrison Ford var engan veginn að nenna þessu og
það má sjá hann hálf engjast þegar hann fer með nokkrar af
verri línum myndarinnar og þær eru þarna nokkrar.
Yoda
Litli græni vinur okkar var nálægt því að
verða Jar Jar óþolandi en fór hringinn
og er eiginlega sá eini úr gömlu
myndunum sem kom nokkuð
vel frá forleiknum. Enda
skartaði hann þessum líka
hörku seventís börtum og náði
í geislasverðið sitt með mættinum
þegar tími var kominn til að slást.
Það er þó gamli góði prúðuyódann
sem við öll elskum og dáum.
Talandi afturábak með dólg,
deilandi úr viskubrunni þess sem
er á barmi 900 ára afmælisins.
Svarthöfði
Svarthöfði sjálfur er í grunninn ekki bara flottastur í Star Wars
heiminum heldur eitt svalasta illmenni kvikmyndasögunnar.
Ef ekki það svalasta. Þótt stofnandinn sjálfur, George Lucas,
hafi reynt nokkurn veginn hvað hann gat til þess að lækka í
honum rostann. Fyrst með því að velja tvo aula til að túlka hinn
unga Anakin og já, það er í lagi að kalla barn aula ef það er auli
og svo er hann þarna eilífðarunglingurinn og grenjuskjóðan,
Hayden „kúkalabbi“ Christiansen gjörsamlega óþolandi í alla
staði. Bæta svo gráu ofan á svart með því að láta svo hans
fyrsta verk í búningnum flotta vera að væla. Loka svo sögu
þessa ægilega illmennis með því að láta hann líka væla í loka-
senunni sem höfðinn svarti. Hræðilega illa gert allt saman. En
Gogga tókst þó ekki að draga okkar mann alveg niður í svaðið
og því stendur Vader uppi sem svalasta illmennið í Star Wars –
og bara sá svalasti í bálknum öllum.
Grand Moff Tarkin
Grjótharður yfirmaður herafla
keisarans og var svo gott sem með
Svarthöfða í bandi í fyrstu myndinni.
En dramb er falli næst og hann, eins og
svo margir aðrir, sprakk í loft upp með
fyrsta Helstirninu.
Darth Maul
Það flottasta við forleikinn var Darth Maul. Hvað var verið
að spá þegar hann var látinn drepast er svo spurning fyrir
aldirnar. Myrkur í gegn og lekur af honum Sith sjarmurinn í
gegnum tvöfalda geislasverðið. Enda hafa verið gerðar margar
sögur um Maul og hann var meira að
segja lífgaður við í teiknimynda-
bálkinum Clone Wars. Þar fannst
hann helmingi styttri en upphaf-
lega en lifandi þó. Hékk á hatrinu
einu saman og eftir að honum
var tjaslað saman fór hann um
drepandi allt og alla. Ætlaði að
meira að segja að steypa Darth
Sidius af stóli en tókst það
ætlunarverk þó
vitaskuld
ekki.
Já, en ég
er hann
pabbi þinn
S tar Wars heimurinn er í grunninn svo gott sem fullkom-inn ævintýraheimur. Góðir og vondir skiptast í augljósar fylkingar, þar sem baráttan er alltaf á brattann fyrir þá
góðu – og það er meira að segja prinsessa. Þetta tókst hinum
unga George Lucas að skapa með því að búa til – og við skulum
vera alveg hreinskilin hér, miðað við nútíma bíó, miðlungs b-
mynd. Hæga og á köflum rosalega hallærislega og leiðinlega
mynd. En hún var svo sem frumsýnd fyrir tæpum fjörutíu
árum þannig að það fyrirgefst svo sem. En tæknibrellurn-
ar, bardagar í geimnum og geislasverðin innsigluðu stjörnu-
stríðin í hugum þeirra sem sáu og eins og trúboðar í Afríku
sannfæra þeir næstu kynslóðir. Ef við reynum svo að gleyma
flestu sem kom fram í forleiknum og horfa meira á skáld-
og teiknimyndasögurnar er ástæðulaust að ætlast til neins
annars en að framtíðin sem, nota bene, er í höndum á manni
sem tókst að gera skemmtilegar Star Trek myndir sem er af-
rek útaf fyrir sig, sé björt eins og sólríkur dagur á Tatooine.
Rifjum aðeins upp gömlu hetjurnar áður en við hleypum þeim
nýju inn í líf okkar.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Keisarinn
Smeðjulegi þingmaðurinn
frá Naboo, Sheev Palpatine,
sem var auðvitað hinn illi
Darth Sideus sem tók sér
svo keisaratign. Vondur í
gegn fullnema í Sithfræðun-
um og einkar ljótur eftir að
Mace Windu endurkastaði
puttaeldingunum til heima-
húsanna í lok forleiksins.
Qui Gon-Jinn
Það kom tvennt gott úr forleikjunum, Darth
Maul og Liam Neeson. Annað þar var frekar
mikið drasl. Ef svo einhver annar en Lucas
hefði leikstýrt myndinni væri hlutverk Qui
Gon-Jinn sjálfsagt enn eftirminnilegra.
Lando Calrissian
Eini svarti maðurinn í geimnum í mjög
langan tíma. Billy D. túlkaði þennan spilaóða
tækifærissinna ljómandi vel og hann átti
auðvitað Fálkann, hraðskreiðasta skipið í
sólkerfinu áður en Han og Loðinn hirtu það.
Jar Jar Binks
Það elskar enginn Jar Jar, svo mikið er víst.
samsæriskenningamenn hafa þó undan-
farið fært ágætis rök fyrir því að téður Jar
Jar hafi átt að verða aðal vondi kallinn í
öllum Stjörnustríðsheiminum.
Chewbacca
Þú annað hvort elskar hann eða hatar.
Labbandi teppið sem vælir næstum því
stöðugt en það sem allir bíða eftir er að
hann drattist til að rífa handlegg af ein-
hverjum óheppnum náunga.
Boba Fett
Þrátt fyrir fáar línur hefur Fettarinn alla tíð
átt trygga aðdáendur. Aum urðu þó enda-
lokin þegar blindur Solo sendi hann óvart
beint ofan í maga Sarlacsins, Þar sem hann
liggur væntanlega enn — hálfmeltur.
Kylo Ren
Nóg að horfa á stikluna til að vita að Kylo
er harður og þess verður að komast í þessa
upptalningu. Nóg að sjá krossgeislasverðið
sem aftur segir okkur að Kylo er ekki
hræddur við að missa þumal.
Bib Fortuna
Smeðjulegi þjónn Jabba the Hutt, þessi
með skeifugörnina utan um hálsinn, á
sérstakan stað í hjörtum margra Stjörnu-
stríðsaðdáenda. Ein minnsta en jafn framt
eftirminnanlegasta persóna myndanna.
Jabba The Hutt
Risastór slímugur glæpasnigill sem
skemmtir sér yfir mannfórnum og fá-
klæddum konum. Hengir svo þá sem skulda
peninga upp á vegg og sýnir að ekki allar
geimverur líta út eins og Homo sapiens