Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 32
Vatnsmýrin væri gott
svæði fyrir unga fólkið
Þegar Trausti Valsson mætti hippaandanum í Berlín árið 1967 hurfu ætlanir hans um nám í arkitektúr eins og dögg fyrir sólu. Hugsunin
um að vistvæn borg geti bætt líf okkar til hins betra dró ungan hugsjónamanninn í hin nýju og spennandi skipulagsfræði. Síðar varð
hann fyrsti Íslendingurinn til að verða doktor í skipulagsfræði og til að kenna þau við HÍ. Nú þegar Trausti undirbýr starfslok hefur hann
miðlað fræðunum í 12 bókum og 150 ritgerðum og nú síðast í sjálfsævisögulegri bók. Hann segir Íslendinga vera ansi óskipulagða, það
sjáist einna best á deilum um Landspítalann, og hann harmar þróun miðbæjarins sem í dag sé fyrir ofurríkt fólk og hótel.
É g lauk stúdentsprófi árið frá MR árið 1967 og þá hafði ég fyrir löngu ákveðið að ég
skyldi verða arkitekt. Ég taldi mig
hafa góðan listrænan grunn en svo
þegar ég kom til Berlínar í nám þá
var hippabyltingin að skella á og hún
breytti öllu,“ segir Trausti Valsson
sem nýlega gaf út ævisögulega bók
þar sem fókusinn er á starfsferilinn
Trausti Valsson var fyrsti Íslendingurinn til að mennta sig í skipulagsfræðum. Hann fagnar sjötugsafmæli á næsta ári og mun sama ár hætta kennslu við HÍ. Aðspurður segir hann tilhugsunina um starfslok vera að
venjast, mest af öllu hlakki hann til að vera laus við alla rútínu. „Ég er ekki komin með neitt plan fyrir næsta ár og þannig á það að vera, ekkert fastbundið. Ég á fjögur barnabörn og að eyða meiri tíma með þeim er
það eina sem er komið á dagskrána.“
Trausti fór snemma að velta fyrir sér áhrifum hlýnandi loftslags á borgarskipulag og
þetta er fyrsta kortið til að sýna mögulegar afleiðingar á Reykjavík. Kortið birtist í
bókinni Land sem Auðlind, árið 1993. Land sem líklegt er að tapist er rauðleitt.
Árið 2004 var Trausti gestakennari við Berkley háskólann þar sem hann stýrði kúrs
um áhrif lofstlagsbreytinga á borgir og tveimur árum síðar gaf hann út bókina How
the World will change with Global warming, sem er fyrsta ritið til að taka loftslags-
breytingar til greina í borgarskipulagi. Framhald á næsti opnu
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
en Trausti var fyrsti Íslendingurinn
til að læra skipulagsfræði og síðar
kenna hana við Háskóla Íslands.
Byltingarandinn í Berlín
„Þegar ég mætti í arkitektaskólann
í Berlín var að hann undirlagður
af veggspjöldum þar sem á stóð:
„Arkitektar hættið að teikna og
byrjið að hugsa!“ Þetta vakti undr-
um mína því ég var þarna kominn
til að teikna en ég tók fljótlega eftir
því að námið snerist fyrst og fremst
um að endurhugsa gömul konsept
og brjótast undan áþján eldri kyn-
slóðarinnar, sem var nasistakyn-
slóðin,“ segir Trausti sem auk þess
lærði það snemma að pólitík snert-
ir alla fleti samfélagsins.
„Við hjónin vorum þarna með
litla dóttur okkar sem fékk pláss á
barnaheimilinu á háskólasvæðinu,
en það var byggt í opnum anda því
börnin áttu að vera alin upp í bylt-
ingaanda. Börnin máttu til dæmis
ekki kalla foreldrana mömmu og
pabba, heldur bara eftir skírnar-
nöfnum. Ég varð fyrir miklum
áhrifum af þessu öllu og fann hjá
mér þörf til að breyta þjóðfélaginu
og sá að til þess væri betra að vera
skipulagsfræðingur en arkitekt því
skipulagsfræðin snýst að miklu
leyti um lífsstíl og hipparnir vildu
annarskonar lífsstíl.“
Trausti segir það hafa verið
ákveðið sjokk að koma svo aftur
til Reykjavíkur fjórum árum síðar.
„Mig rak í rogastans því ég sá borg-
ina auðvitað með alveg nýjum aug-
um og ég ætlaði hreinlega ekki að
trúa mínum eigin augum þegar ég
sá Breiðholtið. Það var nákvæmlega
eins og það sem skipulagsfræðin
í Berlín hafði afneitað, þ.e hrað-
brautavæðingunni og svefnhverf-
unum. Aðaláherslan í náminu hafði
verið á þéttari byggð og grænni lífs-
stíl, eins og er í umræðunni núna á
Íslandi.“
32 viðtal Helgin 18.-20. desember 2015